02.05.1933
Neðri deild: 63. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1911 í B-deild Alþingistíðinda. (2778)

150. mál, almennur ellistyrkur

Bjarni Ásgeirsson:

Ég hefi gerzt meðflm. að brtt. á þskj. 498 við það frv., sem hér liggur fyrir, vegna ákveðinna áskorana frá kjósendum mínum. Ég hefi getað fallizt á þær, af því að ég álít þessar breytingar á fyrirkomulaginu fyllilega réttlátar og sé ekki, að hér sé farið fram á annað en að um tilhögun og niðurjöfnun á þessum ellistyrktarsjóðsgjöldum sé farið í samræmi við þær reglur, sem viðurkenndar eru um allan heim og taldar réttlátastar um niðurjöfnun á opinberum gjöldum. Það er algild regla, að gjöldum til sveitarsjóða og bæjarsjóða er jafnað niður á hlutaðeigandi gjaldendur eftir efnum og ástæðum. Sama regla gildir um álagningu tekju- og eignarskattsins, og má segja, að hún sé alviðurkennd. Ég get ekki séð, að þessi gjöld til ellistyrktarsjóðanna eigi að hlíta annari álagningarreglu. Þau eru lögð í sjóð til styrktar öldruðu og ellihrumu fólki, sérstaklega því, sem ekki getur notið stuðnings efnaðra aðstandenda. Þess vegna finnst mér það afaróeðlilegt að leggja ellistyrktarsjóðsgjaldið á sem persónufrádrátt, jafnt á þá efnaðri og hina, sem ekki geta undir því risið, og eru jafnvel að verða styrksþurfar sjálfir úr ellistyrktarsjóðunum. Ég fæ ekki betur séð en að þessar brtt. okkar séu í fullu samræmi við þá venju, sem tíðkazt hefir frá alda öðli um þurfamannastyrkinn. Hann hefir verið lagður á gjaldendur eftir efnum og ástæðum. Og þó að þessi þáttur af þurfamannastyrknum, sem kallaður er ellistyrkur, hafi verið tekinn út úr, þá get ég ekki séð, að hann sé í sjálfu sér annars eðlis en venjulegur sveitarstyrkur gamalmenna. En hitt er að vísu rétt, að þeir, sem þiggja ellistyrk, tapa ekki kosningarrétti sínum, að því leyti kemur hann betur við þá en fátækrastyrkur. Því hefir verið haldið fram, að lausamenn, sem bæru lítið útsvar, mundu að nokkru leyti losna við að greiða ellistyrktarsjóðsgjaldið samkv. brtt. okkar. En vitanlega er hægðarleikur að láta slíka menn greiða hærri upphæð til sveitarþarfa, ef þeir eru færir um það, og við álagningu útsvara er jafnan tekið mest tillit til gjaldþols einstaklinganna. Það er réttlátara að miða niðurjöfnunina á ellistyrktarsjóðsgjaldinu við þau, heldur en að skipta því niður sem nefskatti á þá, sem ekkert gjaldþol hafa.

Hv. l. þm. S.-M. benti á það, að samkv. brtt. á þskj. 498 ætti hið árlega gjald til ellistyrktarsjóðs að reiknast jafnt af öllum einstaklingum 18 ára eða eldri, og hvort sem þeir væru þurfamenn eða ekki, og taldi hann, að með þessu væri sveitarsjóðunum íþyngt stórkostlega og lagðar óeðlilegar byrðar á gjaldendur þeirra. En þar sem íbúar hverrar sveitar og kaupstaðar, þeir sem helzt eru þurfandi, eiga aftur að njóta þessara auknu útgjalda í hækkuðum ellistyrk, þannig að það fer ekki út úr sveitinni, þá er ekki hægt að segja, að sveitarfélögunum sé íþyngt með þessu. Því hærra sem ellistyrktarsjóðsgjaldið er, því meiri ellistyrk fær aldraða fólkið, þannig að það hlýtur að létta á sveitarsjóðunum útgjöldum vegna fátækrastyrks, sem nú eru tilfinnanlegust víðast hvar.

Hv. þm. Ak. talaði um, að í brtt. á þskj. 498 væri gert ráð fyrir óheppilegri aðferð við niðurjöfnun og innheimtu ellistyrktarsjóðsgjaldsins, þar sem sýslumenn ættu að innheimta það á manntalsþingum jafnframt tekju- og eignarskatti. Ég skal ekki um það deila. Það getur vel verið, að heppilegast sé að leggja þetta gjald á með útsvörum og láta sveitarstjórnir eða oddvita innheimta það ásamt útsvörum. Þetta er aðeins fyrirkomulagsatriði, og má vera, að það sé betra en hitt, sem við höfum stungið upp á í brtt. Um það og önnur formsatriði erum við fúsir að ræða til breytinga eftir samkomulagi. En aðalatriðið í brtt., hækkun á ellistyrktarsjóðsgjaldinu og niðurjöfnun þess í hlutfalli við útsvör, er bæði réttlátt og sanngjarnt, og því getum við ekki vikið frá.