16.05.1933
Efri deild: 73. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1917 í B-deild Alþingistíðinda. (2789)

150. mál, almennur ellistyrkur

Frsm. (Jón Þorláksson):

Eins og nál. á þskj. 686 ber með sér, voru aðeins tveir nm. viðstaddir, þegar þetta mál var afgr., en þeir eru sammála um að mæla með því, að frv. verði samþ.

Í frv. felst það, að hækka um 50% öll framlög til ellistyrktarsjóða, bæði framlög ríkissjóðs og framlög einstakra gjaldenda. Í 3. gr. er ennfremur ákveðið, að úthlutunin skuli verða tiltölulega heldur meiri af tekjum sjóðanna en nú er. Þetta hvorttveggja miðar að því að gera mögulegt að hafa ellistyrki hærri en nú er.

Þó að erfiðleikar séu á því að leggja auknar byrðar á menn á þessum tímum, höfum við tveir nm. orðið sammála um að mæla með, að þetta verði gert vegna þeirrar nauðsynjar, sem við teljum á að geta lagt meira fram til handa öldruðu fólki, sem er orðið óvinnufært og ekki sjálfbjarga fjárhagslega, heldur en nú er hægt að leggja fram úr þessum sjóðum.

Aftur á móti leggjum við til, að 4. gr. verði felld úr frv. Hún er sérstaks eðlis og snertir ekki þessi ákvæði. Hún er um það, að heimilt sé að kæra út af úthlutun ellistyrks. Nú er það svo, að það er yfirleitt mikill fjöldi, sem sækir um þennan styrk af þeim gamalmennum, sem eru í hverju plássi. Það er því ljóst, að þrátt fyrir þessa aukningu á sjóðunum má búast við, að ekki verði mögulegt að veita hverjum einstaklingi þá upphæð, er hann fyrir sitt leyti hefði óskað eftir að fá. Ef nú á að fara að gefa öllum þessum gamalmennum rétt til að kæra yfir úthlutuninni, þá erum við ákaflega hræddir um, að það muni aðallega verða til þess að vekja og ala á óánægju. Hinsvegar lítum við svo á, að þegar fara ætti að úrskurða þessar kærur, þá mundu í flestum tilfellum engin gögn vera fyrir hendi til að fara eftir við þá úrskurði. Okkur finnst þess vegna ekki tímabært að setja slík kæruákvæði í þessa löggjöf, eins og eru t. d. í l. um niðurjöfnun útsvara, því að þar er ávallt hægt að útvega og leggja fram gögn til að meta kærurnar eftir og gera samanburð milli manna. Auk þess er þetta kærufyrirkomulag, sem þarna er stungið upp á, mjög svo umstangsmikið. Við höfum ekki heldur trú á því, að nauðsyn sé að setja í lög slík ákvæði sem þessi, sem eigi að tryggja, að sanngjarnlega verði jafnað niður því fé, sem fyrir hendi er til úthlutunar.

Við höfum enga brtt. flutt um þetta, en ég geri ráð fyrir því sem sjálfsögðu, að hæstv. forseti beri þessa gr. upp sérstaklega, og leggjum við þá til, að hún verði felld úr frv. Það eru engin tilsvarandi ákvæði í núgildandi löggjöf, og ég hefi ekki enn orðið var við, að nauðsyn bæri til að setja þau.