11.04.1933
Neðri deild: 50. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 309 í B-deild Alþingistíðinda. (281)
1. mál, fjárlög 1934
Bjarni Ásgeirsson:
Ég á 4 brtt. við fjárlögin. Sú fyrsta er frá landbn. í heild. Hún er á þskj. 376, VIII. liður. Er þar farið fram á, að 1500 kr. styrkur verði veittur Samúel Ketilssyni til framhaldsnáms í Þýzkalandi í sútun og meðferð skinna.
Það er öllum kunnugt, hversu mikil hreyfing er að komast á hér á landi um sútun og leðurgerð. Við vitum, að flutt er inn kynstur af sútuðum skinnum, og meginið af okkar skinnum er flutt út, unnið ytra, sumt flutt inn aftur og selt við rándýru verði. Sjá allir, hversu mikið fjárhagslegt tjón er að þessu, þar sem líka vantar atvinnu í landinu sjálfu. Eina rétta leiðin er að stefna að því, að íslenzk skinn verði unnin í landinu sjálfu. Við verðum að vinna að því, að ekki verði fluttar erlendis frá þær vörur, sem hægt er að framleiða hér á landi. Enda býst ég við, að hv. þdm. viti, að komið hafa áskoranir í þessa átt úr næstum öllum sveitakjördæmum landsins. Tveir menn úr bændanefndinni hafa líka borið fram þáltill. um að heimila ríkisstj. að láta rannsaka þetta mál, undirbúa það og leggja fram tillögur fyrir næsta þing. Það segir sig sjálft, að ef skriður kemst á þetta, þá er nauðsynlegt að undirbúa menn til þess að standa fyrir þessum nýja iðnaði, svo að landið yrði sjálfu sér nóg í þessu efni. Ég býst ekki við því, að Íslendingar gætu fyrst um sinn tekið þetta að sér, en það er rétt að undirbúa unga menn undir þennan starfa, svo að þeir gætu tekið við stjórninni af útlendingunum sem allra fyrst.
Samúel Ketilsson útskrifaðist úr menntaskólanum 1930 með góðri 1. einkunn. Hann lét innrita sig í sútunardeild tekniska háskólans í Darmstadt, en varð að hætta þessu námi vegna féleysis. Nú í vetur, þegar hann sá, að áhugi var vaknaður meðal landsmanna fyrir því að koma upp slíkum fyrirtækjum, sneri hann sér til áhugasamra manna eins og Helga Bergssonar og Sigurðar búnaðarmálastj. og ráðgaðist um við þá, hvort ekki myndi tiltækilegt að sækja um styrk til þingsins í þessu skyni. Báðir þessir menn voru því mjög hlynntir og gáfu honum beztu meðmæli sín. Auk þess hefir hann meðmæli frá kennurum sínum ytra, sem bera það með sér, að hér er um efnilegan og reglusaman mann að ræða. Nefndin leggur til, að þessi litli námsstyrkur verði veittur og lítur svo á, að með þessu sé stigið fyrsta sporið til þess að fá efnilega unga menn til þess að veita nýjum iðnaðarfyrirtækjum forstöðu.
Önnur brtt. mín á þskj. 376, merkt X, sem ég flyt ásamt hv. þm. Dal., er um það, að veita ferðamannaskrifstofu Íslands 2500 kr. styrk, en til vara 2000. Ferðamannaskrifstofan var sett upp síðastl. ár hér í Reykjavík og starfaði hún 3 mánuði. Þetta er fyrsta ferðamannaskrifstofan á Íslandi og er ekki nema vísir, ef borið er saman við samskonar skrifstofur erlendis. Fljótt á litið virðist það ef til vill skrítið, að ríkið fari að styrkja slíka skrifstofu. En ég lít svo á, að aukinn ferðamannastraumur til landsins geti orðið stór liður í atvinnulífi þjóðarinnar. Auðugir ferðamenn leggja nú fleiri og fleiri leið sína norður á bóginn. Tekjur Norðmanna af ferðamönnum eru taldar 35 millj. króna á ári, en það er meira en allar tekjur af útfluttum landbúnaðarafurðum þeirra og meira en timburútflutningurinn. Tekjur Svía af ferðamönnum eru 31 millj. kr. á ári og Finna 20 millj. kr. Mega allir sjá af þessu, hversu geysimikil tekjugrein umferð erlendra ferðamanna er í þessum löndum, og væri ekki úr vegi, að Íslendingar fengju að njóta einhvers þar af. Og Ísland hefir margt það til að bera, sem gæti gert það að ferðamannalandi. Má þar til nefna, að hér er sérkennileg náttúrufegurð. Dómur erlendra ferðamanna, sem hingað hafa komið, er á þá lund, að ef því væri verulegur gaumur gefinn að opna augu þeirra manna, sem tækifæri hafa til þess að ferðast, fyrir landinu, þá myndi takast að beina straumnum óðfluga hingað. Þær tekjur, sem Íslendingar myndu hafa af þessu, eru miklar og margvíslegar. T. d. er eitt af því laxveiðarnar. Sennilega mætti hafa miklar tekjur af því að leigja útlendingum laxárnar til skemmtiveiða. Auk þess yrðu tekjur af flutningum bæði á bílum og hestum. Síðast en ekki sízt má benda á það, að með auknum ferðamannastraumi inn í landið skapaðist markaður fyrir landbúnaðarafurðir á þeim gistihúsum, sem risu upp víðsvegar um landið. Þetta yrði áreiðanlega mikill styrkur fyrir landbúnaðinn. Með öðrum orðum: Þeir tekjumöguleikar, sem við þetta skapast, eru svo margvíslegir, að við höfum ekki ráð á því að bægja þeim frá, á meðan nágrannaþjóðirnar ausa upp milljónum króna ár frá ári í sambandi við erlenda ferðamenn.
Ferðamannaskrifstofa Íslands er stofnuð af tveimur duglegum og áhugasömum mönnum, og hafa þeir lagt mikið í kostnað við að semja rit um Ísland og á hvern hátt sé hægt að ferðast hér og dreifa þessum ritum út. Það má búast við því, að útgjöldin verði mikil fyrst, áður en nokkurra verulegra tekna er að vænta. Þó að erlendar ferðamannaskrifstofur beri sig vel og séu gróðafyrirtæki, þá er ekki hægt að búast við hinu sama hér fyrr en langt er um liðið og ferðamannastraumurinn orðinn örari til landsins.
Flestir ferðamenn, sem nú koma hingað, koma að tilhlutun erlendra ferðamannafélaga. Skipsgjöld og mikið af því, sem þeir borga fyrir komu sína hingað, rennur í vasa erlendra félaga. Stofnun íslenzkrar ferðamannaskrifstofu er fyrsta sporið til þess að láta tekjurnar renna inn í landið sjálft. Vona ég, að hv. þdm. sjái við nánari yfirvegun, að við höfum ekki efni á því að skella við þessu skolleyrum — og mæli ég eindregið með því, að þessi styrkur til ferðamannaskrifstofunnar verði veittur.
Þriðja till. mín á þskj. 376, merkt XVIII, er um slysavarnir, símalagningu að Hjörsey og Straumfirði á Mýrum. Ég lagði þessa till. fram við 2. umr., og talaði þá fyrir henni og sé því ekki ástæðu til þess að endurtaka það hér. Ég tók till. aftur til 3. umr. og vænti þess, að ég fái nú betri undirtektir en þá, en því miður hefir hv. fjvn. ekki viljað taka hana upp sem sína till. Ég vil bæta því við, að síðan hefir borizt áskorun frá 50 sjómönnum og útgerðarmönnum á Akranesi, sem ég leyfi mér að lesa hér upp:
„Vér undirritaðir Akurnesingar, sem sækjum sjó hér vestur í flóann, og aðrir þeir, sem er ljós sú hætta, sem sjófarendum sífellt stafar af þessu ógurlega hættusvæði, Mýrunum, teljum það stórt spor í öryggisátt, að sími verði lagður út í Hjörsey á Mýrum. Er ekki óhugsandi, að til bjargar mætti koma af sjó, þó ekki væri af landi, og getur í slíku tilfelli síminn bjargað. Skorum vér því á Alþingi að leggja síma ofan á Mýrar á þessu ári“.
Hér er nákvæmlega því sama haldið fram og ég hélt fram við 2. umr., og ef eitthvað hefir vantað á, að hv. þm. væru sannfærðir um nauðsyn þessa máls, þá vona ég, að þetta vottorð nægi til þess að tryggja fylgi þeirra.
Síðasta till. mín á þskj. 376, merkt XXXVI, er brtt. við 22. gr. fjárl. Það er nýr liður, um að ríkið gangi í ábyrgð fyrir allt að 60000 kr. láni handa samvinnufélaginu „Grími“ í Borgarnesi, til að kaupa fiskiskip, enda nemi lánið eigi meiru en 4/5 af kaupverði skipanna fullbúinna til fiskiveiða.
Þetta er samskonar till. og hv. 1. þm. S.-M. og þm. Seyðf. hafa borið fram vegna sinna kjördæma. Um mitt kjördæmi er það að segja, að þetta er líka tilraun til þess að bæta úr því atvinnuleysi, sem nú steðjar að í kauptúnum landsins.
Borgarnes er aðallega verzlunarstaður og íbúarnir þar lifa aðallega á verzlun og samgöngum, auk þess er þar smábúskapur verkamanna í kauptúninu, og hafa þeir af því dálítinn styrk. En eftir því, sem fólkinu fjölgar og kauptúnið byggist, og þar sem vöruflutningar hafa minnkað, þá hefir þeim dottið í hug að bæta við einum lið í atvinnugreinir sínar með því að stunda fiskiveiðar og fá fisk í land til verkunar. Samvinnufélagið hefir hafizt handa um undirbúning á þessu, og á meðan það sjálft hefir engin skip til veiða, hefir það fengið fisk til verkunar sunnan úr Reykjavík. En ef félagið á að verða sjálfbjarga á þessu sviði, þá er nauðsynlegt, að það eignist fleytur sjálft til að veiða þann fisk, sem það verkar.
Í Borgarfirði hagar svo til, að þar er löng og örðug innsigling, en þó telja kunnugir, að vel væri hugsanlegt að láta 1—2 línubáta ganga frá Borgarnesi. Framan af vertíð, meðan dagur er skemmstur, mætti leggja upp á Akranesi, en eftir að kemur fram á vertíðina á Borgarnesi og verka fiskinn þar.
Um Borgarnes má hið sama segja og um önnur kauptún, að þar fer atvinnuleysi vaxandi, en ef hv. Alþ. sæi sér fært að veita þessa ábyrgð, þá er líka sá kostnaðarliður, sem annars færi til atvinnubóta, fallinn niður. Eina rétta stefnan í þessum málum er sú, að koma á atvinnubótum, sem geta orðið arðberandi fyrir þjóðina í heild. Vænti ég, að hv. þdm. líti á málið með sanngirni og veiti till. minni það brautargengi, að hún verði afgr. sem lög frá Alþ.