11.04.1933
Neðri deild: 50. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 322 í B-deild Alþingistíðinda. (290)
1. mál, fjárlög 1934
Frsm. fyrri kafla (Ingólfur Bjarnarson):
Ég ætla með fáum orðum að lýsa afstöðu fjvn. til þeirra brtt., sem fram hafa komið frá einstökum þm. og þeir hafa nú flestir mælt fyrir. Ég býst ekki við að þurfa að eyða til þess löngum tíma, enda eru svo fáir viðstaddir, að slíkt hefði ekki mikla þýðingu. Til þess að flýta fyrir, mun ég taka till. í þeirri röð, sem þær eru á þskj.
Þá er fyrst till. á þskj. 366 frá hv. 2. þm. Reykv., um að veita 1800 kr. úr póstsjóði til þess að kaupa einkennisbúninga handa bréfberum í Reykjavík. Eins og fram kom í ræðu flm., er hér í rauninni um launauppbót að ræða. Hann talaði um, að laun bréfberanna væru lág og þess vegna væri rétt að styrkja þá til fatakaupa. Ég hefi leitað mér nokkurra upplýsinga um þetta efni. Þessi beiðni bréfberanna hefir verið lögð fyrir stjórnarráðið ásamt skýrslu um launakjör þeirra, og sá stjórnarráðið ekki ástæðu til að taka hana til greina. Þó að sjálfsagt megi segja, að laun bréfberanna séu ekki há, þá býst ég fyllilega við, að margir hafi við lakari kjör að búa. Sá n. sér á engan hátt fært að ganga feti framar í þessu efni heldur en stjórnarráðið treysti sér til, og leggur hún því á móti þessari brtt.
Þá er hér brtt. frá hv. þm. N.-Ísf. um að hækka framlag til nýrra símalagninga um 35 þús. kr. samkv. aðaltill., en 12 þús. kr. til vara. Á sú hækkun að ganga til ákveðinnar línu heima í hans kjördæmi. Hv. þm. fór nokkuð út í það, hvaða áhrif þetta mundi hafa á tekjur símans, og fannst mér hann vilja reikna út, að þetta framlag mundi borga sig nokkuð vel. Út í þá útreikninga tel ég þýðingarlítið að fara, en geri ráð fyrir, að þeir muni vera nokkuð út í bláinn, þar sem engin rannsókn liggur fyrir um þessa hluti.
Viðvíkjandi því, sem hv. þm. sagði og hafði eftir landssímastjóra, að till. hans um símalagningar hefðu verið bundnar við fyrri ára till., án þess í rauninni hefði verið athugað nægilega, hvað þarflegar þær væru, þá verð ég að segja, að mér þykir mjög undarlegt, af landssímasjóri hefir gefið slíka yfirlýsingu. N. hefir haft það fyrir reglu að hreyfa sem minnst við þeim till., sem landssímastjóri hefir lagt fram, því hún hefir ekki þótzt hafa kunnugleika til þess að gera þar upp á milli; hefir hún því venjulega farið eftir þeim í sínum till. Hvort till. landssímastjóra hafa fengið nægilega athugun áður en þær voru lagðar fram, það getur n. ekki dæmt um. En mér þykir nokkuð ósennilegt, að landssímastjóri vilji sjálfur halda því fram, að till. hans séu lítið athugaðar. Sem sagt hefir n. ekki séð sér fært að breyta neitt sínum till. í þessu efni, og verður hún því að leggja á móti þessari hækkunartill. hv. þm. N.-Ísf.
Þriðja brtt. á þskj. 366 er frá hv. þm. Ísaf., um 2500 kr. fjárveitingu til fjörefnarannsókna í þjóðlegum íslenzkum matvælum. Við 2. umr. var borin fram af sama hv. þm. till. um að veita 5000 kr. í þessu skyni. N. mælti á móti þeirri till., og var hún felld. Afstaða n. til þessa máls er hin sama enn, þó fjárveitingin, sem farið er fram á, hafi verið lækkuð, og leggur hún því til, að þessi brtt. sé felld.
Undir þessum lið er önnur brtt. frá sama hv. þm., um að veita 2000 kr. til að kaupa stórsegul til augnlækninga. Um þá till. hafa nm. óbundin atkvæði.
Þá er IV. liður á sama þskj., sem er till. frá hv. þm. Seyðf., um 6000 kr. styrk til viðbyggingar sjúkrahússins á Seyðisfirði. Við 2. umr. lá fyrir till. um 12 þús. kr. framlag til þessarar byggingar, og var hún felld. Nú hefir upphæðin verið lækkuð um helming, en afstaða n. er samt óbreytt, og leggur hún eindregið á móti þessari till. N. lítur svo á, að áður en til mála geti komið, að þingið taki til greina beiðni um slíkt framlag, þurfi að liggja fyrir kostnaðaráætlun og skýrsla frá húsameistara ríkisins um það, hvort þessi fyrirhugaða viðbótarbygging, sem engin lýsing liggur fyrir um, er haganleg, og hvort sjúkrahúsið verður sæmilegt til frambúðar, ef hún kæmist upp.
Um V. brtt. á sama þskj., sem er frá hv. þm. Barð., um styrk til Reykhólalæknishéraðs til greiðslu vaxta af skuldum vegna læknisbústaðar, hefir n. óbundin atkv.
VI. brtt., sem flutt er af þremur hv. þm., er um það, að bætt sé við liðinn um styrk til gervilimakaupa þeirri aths., að hann skuli því aðeins veittur, að gervilimirnir séu smíðaðir innanlands. En það er í raun og veru hið sama og krefjast þess, að gervilimirnir séu smíðaðir af einum og sama manni, því aðeins einn maður smíðar slíka hluti hér á landi. N. telur eigi rétt að stuðla þannig að nokkurskonar einokun á þessu sviði. Virðist því síður hægt að fallast á þetta, þar sem fram hefir komið við þessa umr., að við borð lægi, að þessi eini gervilimasmiður hætti starfi sínu um næsta nýjár. N. leggur því á móti því, að þessi aths. verði sett inn í fjárl. Sömuleiðis leggur hún á móti því, að styrkurinn til þessa manns verði hækkaður, eins og farið er fram á í 2. tölul. þessarar till.
Þá er VII. brtt., frá hv. þm. Rang., um styrk til hjónanna Finnboga Sveinssonar og Sæunnar Sæmundsdóttur til hælisvistar handa fávita syni þeirra. Um þessa till. er það að segja, að n. efar að vísu ekki, að þessi hjón eigi mjög erfitt með að sjá um þennan son sinn, sem þannig er ástatt um. En það verður jafnframt að athugast, að eftir því sem næst verður komizt, eru um 200 fávitar á landinu, og gera má ráð fyrir, að aðstandendur flestra þeirra eigi við lík kjör að búa og þessi hjón. Og í mörgum tilfellum verða sveitarfélögin að sjá um framfærslu þessara aumingja. N. getur ekki betur séð en að allir, sem þarna eiga hlut að máli, eigi sama rétt til hjálpar frá hinu opinbera. Og ef veita ætti aðstandendum allra fávita í landinu svipaðan styrk sem hér er farið fram á, er sjáanlegt, að það mundi nema 200 þús. kr. útgjöldum. Þar sem málið horfir svona við, treystir n. sér ekki til að mæla með því, að eitt heimili sé tekið út úr í þessu efni, og leggur hún því á móti þessari brtt.
Þá koma næst nokkrar till. um að hækka framlög til ýmsra vega. Voru þær teknar aftur við 2. umr. og eru nú bornar fram að nýju, sumar eitthvað breyttar. Um þær hefir n. ekki margt að segja annað en það, að hún treystir sér ekki til að mæla með þeim. Get ég fyrst minnzt á Hofsósveg; nú er farið fram á að hækka framlagið til hans um 2000 kr. N. vill játa þess getið, að í till. vegamálastjóra til stj. var ekkert ætlað til þessa vegar, en hæstv. stj. tók upp 3000 kr. framlag til hans gegn till. vegamálastjóra. Eftir þeim upplýsingum, sem fyrir liggja, og eftir því, sem n. hefir getað gert sér hugmynd um þetta mál, fannst henni það vera sæmileg úrlausn, eftir því sem lagt er til annara vega. Hv. flm. talaði um, að þessi 2000 kr. viðbót mundi nægja til þess að koma af einhverjum þýðingarmiklum kafla af þessum vegi, en eftir upplýsingum vegamálastjóra skilst mér, að það geti naumast verið fyllilega rétt. Ég held, að 5000 kr. myndu ekki nægja til að koma af þeim vegarspotta, sem hv. þm. talaði um.
Út af till. hv. 1. þm. N.-M. um framlag til Úthéraðsvegar vil ég geta þess, að samkv. upplýsingum vegamálastjóra er þessi vegur nú kominn út að Eiðum, og yrði því fjárveitingin, sem hér er farið fram á, notuð til að gera veg frá Eiðum og út eftir héraðinu. Upplýsir vegamálastjóri, að sá vegarkafli verði mjög dýr, og því mundi lítið vinnast fyrir svona lága upphæð, en hinsvegar sé héraðið þarna fremur fámennt. Telur hann því, að þessi vegur eigi ekki jafnan rétt á því, að honum sé hraðað nú, eins og margir aðrir vegir. Treystir n. sér því ekki heldur til að mæla með þessari fjárveitingu.
Um hækkun þá á framlagi til Fjarðarheiðarvegar, sem hv. þm. Seyðf. gerir till. um, hefir n. ekki annað að segja en það, að hún treystir sér ekki til að ganga lengra heldur en hún þegar hefir gert í sínum till. hvað þennan veg snertir. Enda heyrðist mér á hv. þm., að hann mundi e. t. v. taka till. sína aftur.
Sama er um till. hv. 1. þm. S.-M., um 3000 kr. framlag til Skriðdalsvegar, að segja. N. treystir sér ekki að mæla með henni. Hinsvegar gerir n. það ekki að neinu kappsmáli, hvað hv. d. vill leggja til þessara mála.
Þá kem ég næst að brtt. XX. á þskj. 366, sem er um að veita til bátabryggju á Vattarnesi 3000 kr., gegn helmingsframlagi annarsstaðar að, sem flutt er af hv. 1. þm. S.-M. N. þykir þetta kynleg till. og kemur hún í raun og veru alveg óvænt, þar sem hv. flm. lýsti því yfir við 2. umr., að hann teldi sjálfsagt, að héraðið legði til þessarar bryggju 2/3 byggingarkostnaðar móti 300 kr., eins og venja er, en nú tekur hv. flm. till. um þetta aftur og vill, að héraðið þurfi aðeins að leggja fram helming kostnaðarins. N. hefir tekið inn á sínar till. þessa 3000 kr. fjárveitingu með því skilyrði, að helmingi meira framlag komi annarsstaðar að, eins og flm. taldi sjálfur sjálfsagt við 2. umr. og almennt er krafizt. Getur n. alls ekki gengið inn á þessa breyt. á hlutfallinu. Hv. þm. færði það fram, að hér væri um ríkiseign að ræða og þess vegna væri hér öðru máli að gegna, þar sem fé þetta yrði til þess að hækka verð eignarinnar, en ég fæ ekki séð, hvaða tekjum ríkið getur búizt við vegna þessarar bryggjubyggingar, og það er ekkert einstakt tilfelli, að bátabryggjur séu byggðar á jörðum, sem eru ríkiseign. En engum hefir dottið í hug að breyta framlagshlutföllum þess vegna. Ég vil t. d. nefna eitt dæmi úr mínu kjördæmi, þar sem bryggja var byggð á ríkiseign, en það er í Flatey á Skjálfanda, sem öll er ríkiseign. Þar lagði héraðið fram 2/3 kostnaðar, en ríkið 1/3, annað kom ekki til mála. Annars finnst mér þessi till. hv. þm. ekki koma sem bezt heim við þau rök, sem hann í löngu máli flutti hér í þessari hv. d. í gær fyrir því, að það væri allt of mikið að ríkið legði fram 2/5 kostnaðar til hafnargerða og lendingarbóta víðsvegar um landið, og vildi ekki að framlag ríkissjóðs yrði meira en 1/3 kostnaðar. Samtímis vill hann endilega fá til bátabryggju í sínu kjördæmi helming kostnaðar. Ég hygg, að varla verði talin þörf á hærra ríkisframlagi til bryggjubygginga heldur en til hafnar- og lendingarbóta.
Þá er á þskj. 376 till. um 3500 kr. framlag til þess að setja útvarpstæki í landsspítalann, frá hv. þm. Dal. N. treystir sér ekki til þess að mæla með þessari fjárveitingu, enda telur hún nokkuð öðru máli að gegna um landsspítalann en t. d. heilsuhæli berklasjúklinga. Á landsspítalanum eru flestir sjúklingar aðeins stuttan tíma og oft svo veikir, að þeir geta ekki haft not af útvarpi. Því vill n. leggja á móti þessari till.
Þá ber sami hv. þm. fram á sama þskj. till. um að hækka um 1000 kr. tillag til læknisbústaða, og að sú hækkun verði látin ganga til læknisbústaðar í Búðardal. Fjvn. leitaði álits landlæknis um þessa till. og fékk þær upplýsingar, að venjan væri sú, að styrkir til sjúkraskýla frá ríkissjóði væru ekki bundnir við kostnaðinn, heldur við þá áætlun, sem húsameistari gerir á hverjum stað um byggingarkostnaðinn. Þetta sjúkraskýli hafði hann áætlað á 24 þús. kr., og þar sem ríkið hefði þegar greitt 8 þús. kr. til skýlisins, taldi landlæknir ekki ástæðu til, að veitt yrði meira þangað úr ríkissjóði og telur, að þetta hérað hafi farið sæmilega út úr byggingu sjúkraskýlisins, samanborið við önnur héruð. N. leggur því á móti þessari brtt.
Þá á hv. 1. þm. Eyf. brtt. III. á sama þskj., um 3000 kr. hækkun á tillagi til Öxnadalsvegar. Um þá till. er það sama að segja, að n. treystir sér ekki til að mæla með henni. Viðvíkjandi því, sem hv. flm. var að færa fram sem sérstaka ástæðu fyrir hækkuninni, að með henni yrði kleift að fullgera vegarkafla, sem annars kæmi að engum notum, af því þar væri vegurinn lagður á öðrum stað en hann nú er, þá vil ég taka það fram, að vegamálastjóri hefir gefið n. þær upplýsingar, að 3000 kr. mundu alls ekki nægja til þess að fullgera þennan vegarkafla, og skipti því ekki máli, að hans áliti, hvort þessi viðbót fengist til vegarins.
Þá er á sama þskj. V. till. um nýjan lið, 20 þús. kr., en til vara 10 þús. kr., til þess að byggja öldubrjót í Bolungavík. Fyrir n. lá engin skýrsla þessu viðvíkjandi og engin áætlun um það, hvað gera skal á þessum stað, og skildist mér, að beðið sé eftir áliti frá hreppsnefndinni í Bolungavík. Hinsvegar hefir n. snúið sér til vitamálastjóra og beðið hann um álit hans á þessu máli, en hann kveður sér það alveg ókunnugt. Eins og mál þetta horfir nú við, sýnist ekkert viðlit að veita fé þetta út í bláinn, og verður n. því að leggja eindregið móti þessari brtt.
Þá er brtt. 376,VI, frá 1. þm. Eyf., um 200 þús. kr. framlag úr ríkissjóði til byggingar öldubrjóts austur af Siglufjarðareyri, gegn tvöföldu framlagi frá hafnarsjóði Siglufjarðar. Það er rétt hjá hv. flm., að fyrir n. lágu teikningar um þetta mannvirki og áætlun upp á 600 þús. kr., en sú skýrsla, teikningar og áætlun hefir aldrei komið í skrifstofu vitamálastjóra, eftir hans sögn, og kvað hann sér þetta mál algerlega ókunnugt, hvað þá að hann hafi komið nærri því að gera þessar teikningar eða áætlun. Þegar svo horfir, þá er það álit n., og ég býst við allra hv. þdm., að það sé öldungis óhugsanlegt, að ríkið leggi fé í svo stórt mannvirki án þess að trúnaðarmaður ríkisins hafi svo mikið sem litið á hið fyrirhugaða mannvirki, og leggur n. því eindregið á móti þessari brtt.
Þá er næst brtt. 376,VII, frá hv. 1. þm. Árn., um allt að 20 þús. kr. styrk til sjóvarnargarðs á Eyrarbakka, gegn jafnmiklu framlagi annarsstaðar að. Hugmyndin mun vera sú, að verja höfnina á Eyrarbakka sandi með fyrirhuguðum garði. Nú er um þrætt af kunnugum mönnum, hvert gagn þessi garður myndi gera, og meðfram með það fyrir augum telur n. sér ekki fært að mæla með þessari fjárveitingu, þar sem svo margt þarf að skera niður af þörfum fjárveitingum, eins og kunnugt er.
Næst vil ég minnast á till. hv. 1. þm. Skagf. á þskj. 386 um 10 þús. kr. hækkun á framlagi til vegar yfir Siglufjarðarskarð. Hv. flm. gaf þær upplýsingar, að vegarstæði þarna hefði verið rannsakað á síðasta sumri. En rannsóknin var ekki önnur en sú, að einn af verkstjórum vegamálastjóra hafði eftir beiðni héraðsmanna athugað þennan veg og gert áætlun um hann upp á 35 þús. kr. til þess að gera hann slarkfæran. En vegamálastjóri upplýsir, að sú áætlun hljóti áreiðanlega að vera röng og byggð á skökkum mælingum, en vill þó ekki fortaka, að hægt væri að gera þarna slarkfæran sumarveg án þess að hann kosti afarmikið. Áður hafði þessi vegur verið mældur og áætlaður að kosta um ¼ milljón kr. Vegamálastjóri segir, að hægt muni að vísu að ryðja veg þennan án geysilegs kostnaðar, en leggur til, að framkvæmdum verði frestað þangað til ýtarlegri rannsókn hefir farið fram næsta sumar. Enda er það svo, þó hægt væri að gera bílfært yfir Skarðið, að þá er langur kafli, um 20 km., sem er ófær vestur eftir Fljótunum. Mál þetta er því í fjarlægð eins og stendur og sýnist ekki skipta miklu máli um þessar 10 þús. kr., og leggur n. því á móti þessari till.
Á þskj. 396,I er till. frá hv. þm. V.-Sk. um 2000 kr. hækkun á framlagi til Síðuvegar. N. leggur enga áherzlu á að fella þessa litlu fjárveitingu, þó hún muni fyrir sitt leyti ekki greiða henni atkv.
Þá er á þskj. 401 brtt. frá hv. 3. þm. Reykv. og fleirum um að veita úr ríkissj. 40 þús. kr. til þess að byggja radiovita á Reykjanesi. Þessi till. er komin fram nú á síðustu stundu, og hefir n. því ekkert tóm haft til þess að athuga hana eða bera hana undir vitamálastjóra. Þar sem hér er einnig um háa upphæð að ræða og órannsakað mál, leggur n. ákveðið á móti till.
Vera má, að ég hafi óviljandi gengið framhjá einhverjum liðum í brtt. hv. þdm., en við það verður að sitja, enda hlýða nú fáir á umr. og skiptir því sjálfsagt litlu, hvort talað er með eða móti einstökum brtt. af n. hendi, en eins og hv. þdm. hafa heyrt, heldur n. fast við þá stefnu að leggja á móti nær öllum útgjaldatillögum hv. þdm.