02.06.1933
Neðri deild: 92. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 419 í D-deild Alþingistíðinda. (2971)
176. mál, mat tekna af eigin húsnæði til tekjuskatts
Fyrirspyrjandi (Pétur Halldórsson):
Ég get þakkað hæstv. forsrh. fyrir svör hans við fyrirspurn minni, sem felast í því, að hann gerir ráð fyrir, að ríkisskattan. myndi láta sér annt um, að samræmi komist á í þessu efni um allt land. Aðalatriðið er, að skattal. verði framkvæmd eins alstaðar á landinu. Hingað til hafa þau verið framkvæmd í Rvík harðar en annarsstaðar. Því er það ekki annað en það, sem vissa er fyrir, þegar slík fyrirspurn kemur fram, að hæstv. ráðh. tjái sig fúsan til að koma því til vegar, að einn landshlutinn sé ekki órétti beittur öðrum fremur. Í svari hæstv. ráðh. kom fram, að honum er það ljóst, að landshlutum hefir verið mismunað nokkuð í þessu efni. En eitt þótti mér undarlegt í ræðu hæstv. ráðh. Hann sagði, að hér í Rvík hefði jafnan verið miðað við brunabótamat, þegar reiknaðar hafa verið tekjur manna af eignum. Hér í Rvík er það mat ósanngjarnast af þeim matsgerðum, sem um gæti verið að ræða. Fasteignamat er til þess að miða við það skatta og gjöld af fasteignum. En brunabótamat er hér í Rvík óheppilegt að leggja til grundvallar, því að mjög er mislangt síðan það mat fór fram á hinum einstöku húseignum hér í bæ. Fyrir nokkru var reyndar látið fara fram skyldumat, því að þá hafði verðlag breytzt mjög, en einstakir húseigendur ekki haft framtak til að láta meta húseignir sínar. Síðan hefir ekki farið fram almennt brunabótamat, og er því meiri munur en svo á mati þeirra húsa, sem ekki hafa verið metin síðan 1922-23 og þeirra, sem nýmetin eru, að hægt sé að byggja á því skatta. T. d. myndi brunabótamat, sem fram færi í ár, verða miðað við núv. kostnaðarverð. Því er það óhentugur grundvöllur.
En þá kemur hitt, hvernig fara skuli að því að viðhafa sama fasteignamat um allt land og framkvæmt á sama tíma. Er þá að finna þá hundraðstölu, sem sanngjarnt sé að leggja til grundvallar við það mat. Ef það er ætlun hæstv. ráðh. að breyta þessu í það horf, að miðað verði við fasteignamat, þá vil ég leyfa mér að spyrja, hvaða hundraðstölu megi telja líklegt, að ráðuneytið samþykki, sem notuð yrði við þetta skattmat. Aðalatriðið er að sjálfsögðu, að samræmi fáist og að rétt hundraðstala verði fundin. Og það er mikils virði, að hæstv. ráðh. hefir gert d. grein fyrir því, að fasteignamat muni framvegis verða lagt til grundvallar.