02.06.1933
Neðri deild: 92. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 421 í D-deild Alþingistíðinda. (2973)
176. mál, mat tekna af eigin húsnæði til tekjuskatts
Jón Auðunn Jónsson:
Ég held, að það sé ekki í samræmi við það, sem annarsstaðar gerist, að leggja brunabótamat til grundvallar. Er alstaðar þar, sem ég þekki til, fasteignamat lagt til grundvallar, enda meira ósamræmi í brunabótamati að öllum jafnaði.
Eignir í kaupstöðum voru árið 1909 metnar til brunabóta. Síðan voru þær ekki metnar fyrr en 1919, og var þá allt í miklu hærra verði. Mitt hús á Ísafirði var þá metið á 42000 kr. Í fyrra fór ég fram á endurmat, og var það þá fært niður í 23000 kr. Flestir sátu við sama mat þangað til í fyrra, er breyting varð á brunabótal., enda hefði ekkert brunabótafélag fengizt til að greiða mönnum hina fyrrmetnu upphæð, því að nú var verðlag aftur orðið svo miklu lægra. Það er svo, að þó að matið sé á einum tíma neðan við sannvirði, þá er það á öðrum tímum aftur þar fyrir ofan. En fasteignamat mun að jafnaði vera nálægt jafnaðarverði, meðan það stendur. Það geta komið smásveiflur, upp eða niður, en það munar aldrei miklu.
Sumum þykir gott, að hús þeirra séu metin hátt, einkum ef þeir þurfa að taka stór lán út á þau, en gæta þess þá síður, að þegar þeir eiga að borga skatt af þessum húseignum, þá geta þeir orðið illa úti. Ég veit, að allar húseignir hafa verið færðar mikið niður í mati síðan árið 1919.