02.06.1933
Neðri deild: 92. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 422 í D-deild Alþingistíðinda. (2974)
176. mál, mat tekna af eigin húsnæði til tekjuskatts
Fors.- og fjmrh. (Ásgeir Ásgeirsson):
Það mun rétt, að oft líður langt á milli, að allsherjarbrunabótamat fari fram. En þá má breyta þeirri hundraðstölu, sem notuð er til að finna leigutekjur manns, sem notar eigin eign til íbúðar. Henni hefir nú verið breytt úr 10% í 9% hér í Rvík, með tilliti til þeirrar verðlækkunar, sem orðið hefir. Ef miðað er við leigu almennt, verður útkoman sæmileg, þó að um brunabótamat sé að ræða, því að í leigunni kemur fram sú verðbreyting, sem hv. síðasti ræðumaður taldi með réttu nauðsynlegt, að til greina kæmi.