23.02.1933
Neðri deild: 8. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1 í C-deild Alþingistíðinda. (2979)

28. mál, dragnótaveiði í landhelgi

Dómsmrh. (Magnús Guðmundsson):

Frv. þetta er lagt fyrir Alþingi nú sökum þess, að hinn 6. júlí í sumar gaf stj. út bráðabirgðalög um breyt. á lögum nr. 55 7. maí 1928, um bann gegn dragnótaveiði í landhelgi. Það er skylda samkv. stjskr. að leggja fyrir þingið öll bráðabirgðalög, sem stj. gefur út, til þess að það geti tekið ákvarðanir um þau. Er frv. þetta því shlj. bráðabirgðal. frá 6. júlí síðastl. Ástæðan fyrir því, að lög þessi voru sett, er sú, að í þinglokin í fyrra bárust stj. áskoranir frá meiri hl. þm. í báðum deildum um að gefa út bráðabirgðalög um þetta efni; annars hefði hún ekki sett þessi lög.

Hirði ég svo ekki að ræða mái þetta frekar nú, en óska því vísað til 2. umr. og sjútvn., að umr. þessari lokinni.