14.03.1933
Neðri deild: 24. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 12 í C-deild Alþingistíðinda. (2989)
28. mál, dragnótaveiði í landhelgi
Björn Kristjánsson:
Við 1. umr. þessa máls hér í d. var greinilega bent á það, hvað hrapallega hafa brugðizt vonir þeirra manna, sem höfðu búizt við góðum árangri af dragnótaveiðunum, jafnframt því sem þær hafa stórskaðað þá, sem aðrar veiðiaðferðir stunda. Eru það fyrst og fremst dragnótaveiðar Dana og Færeyinga, sem þeim skaða hafa valdið. Þessum staðreyndum hefir lítið verið andmælt, og hefi ég því vonað, að margir hv. þm., sem á undanförnum þingum hafa léð þessu máli fylgi sitt, myndu nú hafa látið sannfærast um það af reynslunni, að dragnótaveiðarnar í landhelgi eru ekki eins ágóðavænlegar og skaðlausar eins og þeir hafa haldið. Þessi von mín hefir nú að nokkru leyti brugðizt, þar sem hv. sjútvn. hefir nú svo að segja einróma lagt til, að bráðabirgðalögin verði staðfest.
Ég ætla ekki að þreyta hv. þdm. með því að endurtaka allar þær mótbárur, sem fram hafa verið bornar gegn þessu máli, öll þau dæmi um lítinn árangur, en mikinn skaða af þessum veiðum, sem bent hefir verið á. Ég ætla aðeins að minna á reynslu Austfirðinga á þessu sviði. Það hafði verið mjög gyllt fyrir sjómönnum þar austur frá, hvað dragnótaveiðarnar væru arðvænlegar, og þeir hvattir til að leggja stund á þær. Leiddi það til þess, að keyptar voru dragnætur fyrir 50-60 þús. kr. árið 1931. En niðurstaðan varð sú, að veiðivonin brást og verðið reyndist langsamlega miklu lægra en búizt hafði verið við, og varð afleiðingin sú, að Fisksölusamlag Austfjarða gat ekki selt nema lítinn hluta þessara veiðarfæra og liggur með þau óseld og arðlaus og getur þess vegna ekki útborgað þeim mönnum, sem það seldi fyrir kældan fisk það ár. Ég get bætt því við, að veiði var ákaflega lítil við Austfirði þetta ár, og hjálpaðist því allt að því, að þessi tilraun varð til stórskaða.
Í Norðlendingafjórðungi tókst ekki eins illa til, því þar var ekki ráðizt í jafnstórfelld veiðarfærakaup. En það lítið, sem dragnótaveiðin var reynd, gafst hún illa. Þó var það ár góð aðstaða að því leyti, að þann tíma, sem dragnótaveiðarnar voru leyfðar, voru skip í förum til þess að flytja fiskinn kældan til útlanda, svo alltaf var hægt að koma í verð jafnóðum því, sem veiddist.
Á síðasta ári voru einnig stundaðar dragnótaveiðar á þó nokkrum stöðum á landinu, mest þó við Faxaflóa og Vestmannaeyjar. Víðast hvar gekk mjög illa með þær. Nægir því til sönnunar að benda á grein þá eftir forseta Fiskifélagsins, sem ég vitnaði hér í fyrir nokkrum dögum. Hún hefir því meira gildi, þar sem höfundurinn er manna kunnugastur fiskveiðum víðsvegar kringum landið, og hefir auk þess þá aðstöðu í þessu máli, að hann hefir áður lagt mikið kapp á að fá rýmkaðan réttinn til dragnótaveiða í landhelgi. Hann telur ekki dragnótaveiðarnar hafa orðið til hagnaðar síðastl. ár. Sami er vitnisburður trúnaðarmanns Fiskifélagsins á Austfjörðum; hann telur þennan veiðiskap hafa orðið til lítilla eða engra hagsbóta.
Síðan 1. umr. fór fram hér í hv. d. hafa eitt eða tvö sönnunargögn fyrir mínum málstað bætzt við. Annað er bréf frá oddvita Gerðahrepps, þar sem hann lýsir átakanlega skaðsemi dragnótaveiðanna fyrir aðrar fiskiveiðar. Hitt er skýrsla frá formanni á varðbát, sem landhelgisgæzlu annast á Vestfjörðum. Hann er að afsaka sig vegna kvartana um lélega landhelgisgæzlu, sem komið hafa frá nokkrum Arnfirðingum. Telur hann, að fleiri orsakir geti legið til fiskþurrðar á fjörðinn inni heldur en ásælni togaranna. Vil ég, með leyfi hæstv. forseta, lesa upp ummæli hans, þar sem hann víkur að dragnótaveiðunum:
„Og grunur minn er sá, að fjarðarfiski á lóðir sé vonlaus atvinna þann tíma, sem dragnótaveiði er þar stunduð. Í afskekktri vík einni hér vestanlands var uppgripaafli í vor og fram eftir sumri, þar til dragnótaveiðar byrjuðu. Fyrst í stað var vík þessi gullkista þeirra, en síðar fékkst þar enginn fiskur, og var svo í allt haust, - hún varð þurrausin, ef svo mætti að orði kveða.
Þessa nýlundu vildi ég minnast á, ekki sízt ef sá grunur reyndist réttur, að hlerar væru ekki óþekktir í sambandi við dragnótina hjá sumum þeirra“.
Þessi umsögn er alveg nýskeð fram komin. Ég man eftir því á síðasta þingi, þegar þetta mál var rætt, að þá hélt hv. 1. þm. S.-M. fram, að tilraun þá, sem gerð var árið 1931 með dragnótaveiði við Austurland, væri ekki að marka, því tíminn, sem slík veiði var leyfileg þá, hefði verið svo stuttur. Á síðastl. sumri var ekki þeirri ástæðu til að dreifa, því veiðina mátti byrja strax 15. júlí samkv. bráðabirgðalögunum. Er því ekki hægt að kenna því um, hvað illa gekk, að veiðitíminn hafi ekki verið nógu langur.
Ummæli varðbátsformannsins, sem ég las upp úr Ægi, sýna það, að fleiri en Þingeyingar og Skagfirðingar álíta, að dragnótaveiðarnar spilli veiðiskap með öðrum tækjum. Vestfirðingar virðast hafa orðið hins sama varir. Þó mun skaðinn hvergi eins augljós eins og við Norðurland, því þar eru aðrar fiskveiðar mest stundaðar á sama tíma og dragnótaveiðarnar. Það versta við dragnæturnar er nefnilega það, að þær fæla fiskinn af þeim stöðum, sem þær eru dregnar um, en ekki hitt, að þær skemmi botninn, sem Árni Friðriksson heldur fram, að þær geri ekki. Það er fullvíst og margsannað af reynslunni, að annar fiskur heldur en kolinn fælist burt þaðan, sem dragnætur eru notaðar. Þess vegna eru dragnótaveiðarnar skaðlegastar við Norðurland, þar sem þær fara fram samtímis öðrum fiskveiðum. Þær hljóta að valda minni skaða á þeim stöðum, sem aðalfiskveiðarnar fara fram á öðrum tíma árs. En þrátt fyrir þetta koma fram kvartanir um skaðsemi dragnótaveiðanna úr öllum landshlutum. Það mætti mikið vera og merkilegt heita, ef svo samhljóða dómur fiskimanna víðsvegar um land væri tóm markleysa.
Ég skal ennþá minna á það, sem oft hefir verið bent á við þessar umr., að fjöldamargar fundarsamþykktir og áskoranir frá sveitarstjórnum liggja fyrir um það, að lina ekki á banninu gegn dragnótaveiðum í landhelgi. Hinsvegar hefi ég ekki orðið var við, að neinar áskoranir hafi borizt þinginu í þá átt, að dragnótaveiðitíminn væri lengdur. Það væri undarlegt, að alveg er þagað um málið frá þeirri hlið, ef það er eins mikið hagsmunamál og sumir hafa haldið hér fram, að lengja þann tíma, sem dragnótaveiðarnar eru leyfðar.
Þegar litið er á það, hvað sárafáum dragnótaveiðarnar hafa orðið til verulegs gagns, og hinsvegar tekið tillit til þess, hvað þær valda öðrum miklum skaða, þá virðist mjög furðulegur sá ákafi, sem verið hefir í sumum hv. þm. að berja þetta mál fram. Mér skildist nú reyndar á hv. frsm. sjútvn., að hann væri ekki eins sannfærður um hina miklu nauðsyn þess nú eins og hann var í fyrra og hitteðfyrra. Þá leit svo út, sem það væri orðið hálfgert trúaratriði hjá sumum hv. þm., hvað afarnauðsynlegt væri að rýmka leyfi til dragnótaveiðanna. Þeir hafa látið sem vind um eyrun þjóta, þó þeim hafi hvað eftir annað verið bent á, að þessar veiðar hafi nær alstaðar verið reknar með tapi, að þær hafa valdið öðrum fiskiveiðum stórskaða, að verðið á veiðinni hefir verið mjög lágt og að vantað hefir samgöngur til þess að hægt væri að koma henni á markað. Þrátt fyrir allar þessar staðreyndir berjast þeir fyrir því að fá veiðitímann lengdan og skoða það sem bjargráð. Mér sýnist, að hér þyrfti kraftaverk til að sanna málstað þessara hv. þm., og sennilega trúa þeir á það. En ég verð að játa það, að mín trú er ekki svo sterk.
Sumarið 1931 voru í förum skip frá öllum landshlutum, sem fluttu út ísvarinn fisk, svo að þá var hægt að selja jafnóðum allan þann kola, sem veiddist. Síðastl. sumar var aftur á móti ekki um neinar slíkar skipaferðir að ræða frá Norður- eða Austurlandi, og þess vegna útilokað, að hægt væri að koma á markaðinn því, sem kynni að hafa aflazt. Það gat því ekki komið öðrum til góða en Dönum og Færeyingum, að linað var á banni gegn dragnótaveiðum á þessum slóðum. Mér hefir skilizt á sumum hv. þm., og á ég þar sérstaklega við hv. jafnaðarmenn, að þeim þyki of mikið gefið eftir fyrir hagsmuni útlendinga í hinum nýja samningi við Norðmenn. Vona ég, að þeir verði sjálfum sér samkvæmir og styðji ekki að því að opna íslenzka landhelgi til stórskaða fyrir íslenzka fiskimenn og útlendum dragnótaveiðiskipum einum til gagns.
Við 1. umr. hélt ég því fram, að með bráðabirgðalögunum og frv., þó samþ. yrði, væri ekki úr gildi numin alfriðun sú, sem gerð hefir verið á vissum svæðum samkv. heimild í 8. gr. 1. frá 1928. Finnst mér varla geta leikið vafi á, að þessi skilningur sé réttur. En þar sem framkvæmdavaldið hefir látið óátalið, að veitt væri með dragnótum á hinum alfriðuðu svæðum síðan bráðabirgðalögin gengu í gildi, þá hefi ég lagt fyrir hæstv. dómsmrh. fyrirspurn um það, hvort lögunum yrði þannig framfylgt framvegis. Vonast ég fastlega eftir, að hann svari nú þeirri fyrirspurn. Verði skilningur hæstv. ráðh. í samræmi við skoðun mína, óska ég að fá yfirlýsingu hans um það, hvort l. verði á þessu ári framfylgt á sama hátt og 1932.
Ég ætla svo ekki að fjölyrða meira um þetta mál. Það er ekki til annars en að þreyta hv. dm., og læt ég mér því nægja það, sem ég er búinn að segja. Ég óska eftir að fá ákveðið svar frá hæstv. ráðh., hvernig hann líti á þetta sérstaka atriði. Ég get hætt því við, að ef hann skildi l. eins og ég og hann lýsti því yfir, að framkvæmdum mundi hagað samkv. því, þá get ég fremur sætt mig við það, að 1. verði staðfest, þó ég að sjálfsögðu óski þess eindregið, að þau verði felld.