14.03.1933
Neðri deild: 24. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 30 í C-deild Alþingistíðinda. (2994)
28. mál, dragnótaveiði í landhelgi
Pétur Ottesen [óyfirl.]:
Það má segja, að hv. frsm. hefir sótt í sig veðrið nú í sinni seinni ræðu frá því, sem var í fyrri ræðunni, því að nú var ræðutónn hans í þessu máli orðinn hinn sami og á undanförnum þingum. Ætla ég, að þetta stafi af því, að hv. frsm. hefir hlaupið nokkurt kapp í kinn, eins og gengur, og sé meir að marka hina fyrri ræðu hans um hið sanna innræti hans í málinu, því að hana flutti hv. þm. rólegur og áður en kappsemin hafði leitt hann í sama farveginn og á undanförnum þingum í þessu máli.
Hv. frsm. vildi nota það sem ástæðu fyrir að slaka á. dragnótaveiðalöggjöfinni, að erfitt hefði reynzt að halda banninu uppi suður með sjó, enda hefði það verið brotið fyrir 2 árum. Í samræmi við þetta ætti þá vegna landhelgisbrotanna að leyfa Englendingum, Þjóðverjum og öðrum landhelgisbrjótum að veiða í landhelgi. Röksemdafærslan er jafnfjarstæð í hvorumtveggja þessum tilfellum.
Hv. frsm. kvaðst vilja standa á þeim grundvelli að viðurkenna sjálfsákvörðunarrétt héraðanna í þessum efnum. En hvað koma þá hv. frsm. til þess í vor að ganga hér um á milli þm., til þess að fá þá með undirskriftum til að skora á stj. að afnema þennan sjálfsákvörðunarrétt héraðanna? Ég ætla, að það sé nefnilega af slysni, að frv. tekur ekki þennan rétt af héruðunum til fulls, og hefir það að þessu leyti ekki náð þeim tilgangi, sem því var ætlað að ná, að láta stj. ganga í vatnið og slaka algerlega til á löggjöfinni og þannig að ganga í berhögg við yfirlýstan vilja Alþingis í þessu máli.
Hv. frsm. talaði um það mikla gagn, sem sumstaðar hefði orðið af dragnótaveiðunum. Hefi ég bent á það áður, að þetta gagn, sem á að hafa orðið af dragnótaveiðunum, er ekki mikið, þegar allt er athugað, sem hér skiptir máli, heldur sáralítið, því að ég vil ekki neita því, að eitthvað kunni það að vera. Það verður nefnilega að athuga, hvort ógagnið, sem dragnótaveiðarnar leiða yfir aðra, er ekki meira en gagnið, sem einstaklingar þeir, sem við þessar veiðar hafa fengizt, hafa af veiðunum, en ég hefi sýnt fram á það, að dragnótaveiðarnar valda stórmiklu tjóni fyrir þá alla, sem stunda fiskiveiðar með öðrum veiðiaðferðum. Það er lafhægt að færa rök að því, að togararnir hefðu gagn af því að veiða í landhelgi, en engu að síður er þeim þó bannað að veiða í landhelgi, af því að tillitið til hagsmuna allrar þjóðarinnar er látið sitja í fyrirrúmi fyrir tillitinu til hagsmuna einstakra togaraeiganda, sem gagnið af landhelgisveiðunum félli einum í skaut. Á nákvæmlega þessu sama byggist bannið gegn dragnótaveiðunum. Menn mega ekki loka augunum fyrir ógagninu, sem dragnæturnar valda, þegar talað er um gagnið af þeim, og við, sem stöndum á móti öllum tilslökunum á löggjöfinni, höfum einmitt fært óyggjandi rök fyrir því mikla ógagni, sem dragnótaveiðarnar hafa í för með sér fyrir aðrar veiðiaðferðir.
Hv. frsm. var eitthvað að tala um, að það væri undarlegt, að ekki hefði verið amazt við botnvörpunum suður með sjó um síðustu aldamót, þegar botnvörpuveiðar voru að byrja hér, á þeim grundvelli, að sjórinn gruggaðist upp og botnvörpurnar hefðu skaðvænleg áhrif á aðrar fiskiveiðar. Auðvitað grugguðu botnvörpurnar upp, þegar þær voru notaðar á sömu miðum og dragnæturnar eru notaðar á, en þegar togað var úti í flóa, gætti þess minna, að ég ekki tali um, þegar togað var á hörðum botni. Annars fæ ég ekki séð, að það geti verið neinn munur á því, hvort óhreinindin berast ofan úr landi eða þeim er rótað upp úr óhreinum botni, enda er það viðurkennt, a. m. k. að því er suðurströndina snertir, að þetta fæli fiskinn frá, og dragnótaveiðarnar eru að þessu leyti líka óheppilegar.
Hv. frsm. vitnaði í ýmsar samþykktir, sem fyrr meir voru gerðar viðvíkjandi þorskveiðum og gufuskipaumferð. Þótti mér hv. frsm. seilast helzt til langt til þess að geta komið þessu við í þessu máli, enda getur það varla verið deilumál, að botnvörpuveiðarnar eru mjög skaðlegar, einmitt af því, að þær drepa ungviðið jafnt og nytjafiskana. Er þetta og viðurkennt af öllum þjóðum með sérstakri löggjöf til þess að takmarka þessar veiðiaðferðir, og þýðir ekki að vera að vitna í þetta. Má og vitna í ýmislegt frá fyrri tímum, sem okkur nútímamönnum sýnist hafa verið ástæðulaust, og að ætla að heimfæra samþykktarbönnin gegn gufuskipaumferðinni undir þetta mál, nær því alls ekki marki.
Hv. frsm. vildi halda því fram, að ákvæðið um möskvastærðina væri til mikils öryggis í þessum efnum, og er það að vísu rétt, að slík ákvæði hafa sumstaðar verið sett, en engu að síður er það þó viðurkennt af öllum, sem til þessara mála þekkja, að ekkert lið er að þessu, af því að þegar botnvarpan er dregin upp, síast sílin ekki úr, varpan límist saman af sandi og leir og verður ein samfelld húð, svo að sílin komast ekki út, enda er ekki um þetta deilt af mönnum, sem þekkingu hafa á þessum veiðum. Það er því ekki hið minnsta lið í því, þótt sett séu einhver ákvæði um möskvastærðina í dragnótunum. Í löggjöf okkar um lax- og silungsveiði eru ákvæði um ákveðna möskvastærð, og þar koma þessi ákvæði að gagni, af því að smásílin komast út í gegnum möskvana, enda er lax- og silungsnetunum lagt í hreint vatn, en svo er ekki, þegar um dragnætur er að ræða.
Hv. frsm. lét orð falla um það, að ég hefði áður í þessu máli vitnað til reynslu annara þjóða, en léti mér nú nægja að vitna til oddvitans í Gerðahreppi. Að ég ekki nú hefi vitnað í erlenda reynslu, stafar fyrst og fremst af því, að ég hefi svo oft gert þetta áður, að ég hélt satt að segja, að þm. ætti að reka minni til þess, en að ég vitnaði í þessa innlendu reynslu þarna suður frá, var af því að sérstakt tilefni gafst til þess, þar sem það hefir einmitt verið notað sem höfuðröksemd fyrir bráðabirgðal., hversu mikið væri af þessum veiðum í Faxaflóa sunnanverðum.
Hér hefir oft verið vitnað til þess, hve Danir ættu mikla tekjugrein, þar sem dragnótaveiðarnar eru, en mönnum hefir hinsvegar eins og láðst að draga það fram jafnframt, að nú er svo komið um Dani í þessum efnum, að þeir hafa séð, að við svo búið mátti ekki lengur standa, og hafa þeir nú leitt í lög heimild fyrir viðkomandi héruð til að setja samskonar hömlur um dragnótaveiðar og í gildi eru hér á landi, en hv. frsm. vill fella niður. Í sambandi við dragnótaveiðar Dana er og gott að minnast þess, að þar er ekki nema um 2 fiskitegundir að ræða aðallega, kola og ýsu, sem dragnætur eru bezt lagaðar til að veiða. Skaðsemi dragnótanna kemur því þar ekki fram á sama hátt og hér, þar sem þetta er aðalveiðiaðferðin og eyðileggur því ekki fiskveiðar með öðrum hætti. Danir hafa þannig gagn af þessum veiðum, án þess jafnframt að þurfa að þola það ógagn, sem dragnæturnar leiða yfir aðra fiskimenn. Þetta verða menn að hafa í huga í þessu sambandi. Menn verða að gera sér ljóst, hvílíkt tjón dragnótaveiðarnar leiða yfir aðrar fiskiveiðar og þá alla, sem á þeim lifa, áður en farið er að leyfa hér dragnótaveiðar í algleymingi.