09.03.1933
Neðri deild: 20. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 72 í C-deild Alþingistíðinda. (3090)

71. mál, takmörkun eða bann innflutnings á óþörfum varningi

Fors.- og fjmrh. (Ásgeir Ásgeirsson) [óyfirl.]:

Það má segja, að það sé viss mótsögn í því að banna óþarfann, en leyfa þó innflutning á víni og tóbaki: En ástæðurnar til þess eru þær, að það eru engar vörutegundir, sem gefa tiltölulega jafnmikla tolla og verzlunarágóða í ríkissjóð og einmitt þessar vörutegundir. Það er nú svo um hvorartveggja þessar vörutegundir, að það er heldur lítið fé, sem fer út úr landinu, sérstaklega þó til að greiða vínið, en tiltölulega mikið. kannske upp undir 70%, sem fer beint í ríkissjóð. Það er nú svo, að ríkið hugsar um sinn hag, og þess vegna er leyfður innflutningur á þeim vörutegundum, sem gefa mestar tekjur, en heldur látinn falla niður innflutningur á vörum, sem ekki gefa nema 15-20% í ríkissjóð. Ég kalla það, að vörurnar dreifðust óeðlilega, ef meira á að flytja inn af óþarfavörum, en minna af þarfavörum. Til þess að varðveita eðlilegan innflutning er nauðsynlegt að halda þessum höftum uppi.