06.04.1933
Neðri deild: 46. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 85 í C-deild Alþingistíðinda. (3107)

71. mál, takmörkun eða bann innflutnings á óþörfum varningi

Frsm. meiri hl. (Hannes Jónsson):

Ég get fallizt á það, sem hv. þm. Seyðf. sagði, að þær ráðstafanir, sem þjóðirnar gerðu með viðskipti sín á milli, gætu orðið þess valdandi, að við yrðum neyddir til að afnema, eða a. m. k. breyta mikið þeim innflutningshöftum, sem við nú höfum. En þetta sannar ekkert um, hvort innflutningshöftin séu óheppileg fyrir þjóðina eða ekki. Þau óþægindi, sem hv. þm. benti á, að væru af þessum höftum, og sem vita inn á við, eru þau, að menn græða óhóflega mikið á þeim vörum, sem þeir hafa, eða því litla, sem þeir fá að flytja inn. Ég tel þetta ekki þann höfuðgalla, að innflutningshöftin ættu fyrir þá sök eina að uppleysast, því að ef þessir menn græða svona mikið á þessu, þá geri ég ráð fyrir, að þeir greiði ríflega af þeim gróða sínum, bæði til bæjar- og ríkissjóðs, og skapaðist þannig tekjustofn bæði fyrir ríkissjóð og bæjarfélag. Þessir menn, sem græða, eru þeir, sem líklegastir eru til að geta látið eitthvað af hendi rakna í því augnamiði. Annars er þetta mál, eins og það er hér flutt, talsvert stórt og stærra en ég hafði haldið, þegar talað er um, að þessi innflutningshöft setji mörg hundruð manna út á gaddinn. Ef til vill er hér nú fundin ástæðan til atvinnuleysisins og kreppunnar í landinu. Ef til vill er hugmynd þeirra manna, sem svo mjög tala um þetta, sú, að leysa atvinnuspursmálið með því að leyfa nú aukinn innflutning á óþörfum varningi. Einkennilega lætur nú þessi röksemd í eyrum. Það er ekkert undarlegt, þótt hv. 3. þm. Reykv. hrjósi hugur við að fá þessi mörg hundruð manna á framfærslu ríkisins, og eðlilegt, að hann vilji fá l. numin úr gildi, ef þau hafa það í för með sér. - Hv. þm. Vestm. benti á, að gjaldeyri væri úthlutað mjög ójafnt, og mér skildist hann telja nauðsyn bera til að létta af þessu óréttlæti. Það virðist koma fram sú skoðun hjá honum, að ekkert eftirlit eigi að hafa með úthlutun gjaldeyrisins. Ef nokkur takmörk eru á því, hvernig leyfður er útflutningur á erlendum gjaldeyri, þá hlýtur að koma ágreiningur um, hvort úthlutað sé réttilega eða ekki. (JJós: Mínar aths. áttu frekast við innflutningsleyfin. Það eru bæði skömmtuð gjaldeyrisleyfi og innflutningsleyfi). Það er nokkuð sama, því að ef ekki væri veittur gjaldeyrir, þá þýddi ekkert að veita innflutningsleyfi, og ef ekki væri veitt innflutningsleyfi, þá þýddi ekki að veita gjaldeyrisleyfi. Það var dálítið skringileg rökfærsla hv. 3. þm. Reykv. fyrir því, að lánstraust fari minnkandi við það, að skuldir þjóðarinnar og einstaklinganna minnki út á við. Ég hefi alltaf litið svo á, að eftir því sem einstaklingar eða stofnanir greiddu meira eða betur sínar skuldir, fengju þeir meira álit. Það er alveg sérstakt, ef það á aðeins að vera þannig um heilt þjóðfélag, að eftir því sem skuldir minnka, minnki lánstraust um leið. Eins eru það einkennileg rök, sem liggja að því að sanna, að rétt sé, að þessar takmarkanir hafi í för með sér aukna framfærsluþörf hins opinbera, þegar tekið er tillit til þess, að hv. þm. heldur því fram sjálfur, að innflutningshöftin hafi í raun og veru engin áhrif á, hvað flutt er inn í landið. Ef innflutningurinn minnkar á einu sviði, segir hann, þá bara eykst hann á öðrum sviðum. Svo segir hann ennfremur: Það þarf engin höft, því að árferðið skapar innflutninginn. Þá er alveg sama, þótt innflutningshöftin séu, því að ekki verður meira selt. Þá kemur nákvæmlega sama atvinnuleysið fyrir þessi mörg hundruð manna, sem eiga nú að vera úti á gaddinum vegna innflutningshaftanna. Þær stangast dálítið óþægilega þessar röksemdir hv. þm. Einmitt með tilliti til þess, að gera má ráð fyrir, að við verðum að breyta ýmsu í okkar verzlunarháttum, eftir því sem fram kemur í kröfum annara þjóða í viðskiptum landa á milli, þá tel ég, að það muni vera fyrir dyrum að breyta úr þessu formi, sem nú er, þótt það verði e. t. v. ekki gert á þessu þingi, í það að leyfa takmarkaðan innflutning og koma á háum tollum, til þess að sem mest takmarkist innflutningur óþarfa varnings. Þetta mál þarf allt saman að athuga vel og vandlega, og til þess tel ég ríkisstj. hafa bezta aðstöðu, og ég vildi ekkert í því efni gera, nema því aðeins, að fyrir lægi athugun fjármálastj. og till. til úrlausnar. Að öðru leyti hefir ekki komið neitt hér fram, sem ég tel nauðsyn á að svara eða gera aths.um. Þótt ég hafi lýst því yfir, að ég væri fús til þess að leysa þetta mái til þess að fullnægja óskum þeirra manna, sem að einhverju leyti vilja upphefja innflutningsbannið, þá er það bundið því skilyrði, að áður hafi farið fram rannsókn um þessi efni og að henni fylgdi viðunandi till. um, hvað eigi að koma í staðinn.