10.05.1933
Efri deild: 68. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 374 í B-deild Alþingistíðinda. (312)
1. mál, fjárlög 1934
Jón Baldvinsson:
Ég á hér ekki margar brtt., þótt vera kunni, að sumum kunni að þykja ein þeirra nokkuð fjárfrek. En áður en ég vík að þeim vil ég minnast lítið eitt á eina eða tvær brtt. fjvn., þótt ástæða væri til að tala um fleiri brtt. hennar og jafnvel einstakra manna.
N. leggur til að fella niður framlag ríkissjóðs til ræktunarvega á Akranesi og í Hornafirði og lækka að mun samskonar framlag til Vestmannaeyja. Þessar till. get ég ekki fellt mig við. Þingið hefir undanfarið lagt kapp á ræktun, enda hefir mikið verið ræktað, sérstaklega út frá bæjum og þorpum, svo að þurrabúðarmennirnir gætu að einhverju leyti stuðzt við skepnueign og garðrækt. En nú hagar svo til víða, að margir menn verða að eiga litla bletti í töluverðri fjarlægð, en þá er nauðsynlegt að vegir séu lagðir þangað. Má og benda á, að stórfé hefir verið lagt til ræktunarvega í Flóanum vegna áveitunnar og mjólkurbúanna. En nú vill n. lækka framlag til ræktunarvegar í Vestmannaeyjum um 4000 kr. og skera niður Hornafjörð og Akranes. Ég er nokkuð kunnugur á Hornafirði af afspurn. Þar hafa 80 ha. verið teknir í rækt af verkamönnum, sem búa í þorpinu og þar í kring. Pálmi Einarsson ræktunarráðunautur hefir áætlað veginn 1500 metra og kostnað 6700 kr. Hefir verið farið fram á 3000 kr. í þessu skyni, en nú stendur svo á, að ríkið á jörðina, svo að hér er beinlínis verið að auka gildi lands, sem ríkið sjálft á. Eftirgjald er 12 kr. á ha., svo að það nemur næstum 1000 kr., og ræktunin eykst án efa enn, ekki sízt, ef vegurinn er lagður. Frsm. fjvn. væri kannske tilleiðanlegur eftir þessar upplýsingar til að taka brtt. þessa aftur. Ég álít rangt að fella slíka liði niður.
Þá er önnur brtt. frá fjvn. við 17. gr., um að skipta framlagi til sjúkrasjóðs verklýðsfélags Akureyrar til helminga á milli verklýðsfélagsins og verkamannafélagsins. Þessi till. mun vera fram komin fyrir atbeina kommúnista, og teldi ég réttara, að þessi liður stæði óbreyttur eins og hann er nú í fjárlögum.
Mun ég þá víkja að mínum till. Á þskj. 628 flyt ég brtt. um 1800 kr. framlag úr póstsjóði til kaupa á einkennisbúningum handa bréfberum. Umsókn frá bréfberunum liggur fyrir um þetta og virðist sjálfsagt, að þessum mönnum, sem gegna erfiðu og ábyrgðarmiklu starfi, sé veitt. þetta hér sem allsstaðar annarsstaðar. Þetta virðist jafnsjálfsagt og að mála merki á póstbílana, enda eru víðast hvar allir starfsmenn pósthúsanna í einkennisbúningi. Þótt brtt. þessi sé ekki fjárfrek er hún þó nokkuð fyrirferðarmikil, því að vegna hennar þarf að færa til þrjá liði: liðinn „Rekstrarhalli póstsjóðs“ og liðinn „Önnur gjöld“ og loks bætist aths. við liðinn samkv. brtt. Fjvn. hefir skotizt yfir það, hvað þessi útgjaldafjárhæð er lág; annars myndi hún hafa látið að óskum þeirra og ekki síður fyrir það, að póstþjónarnir eru ákaflega lágt launaðir, sennilega lægst launaðir allra þeirra, sem ríkissjóður hefir í sinni þjónustu.
Þá hefi ég flutt brtt. ásamt hv. 2. þm. Eyf. um 800 kr. styrk í 18. gr. handa Friðfinni Guðjónssyni leikara. Það ætti ekki að þurfa að tala mikið fyrir þessari till. Maðurinn, sem hér er um að ræða, er kunnur öllum hv. þm. og hefir skemmt þeim og mörgum öðrum bæjar- og landsmönnum með list sinni í nálægt 30 ár. Og við þurfum ekki heldur að tala um það, hvílíkur afburðamaður hann er á sínu sviði og sennilega hefði hann verið „stjarna“, ef hann hefði verið hjá stærri þjóð. En nú er hann hér í fásinninu. En hann er „stjarna“ hjá okkur. Nú er Friðfinnur orðinn roskinn maður, kominn yfir sextugt; en ekki er ætlazt til, þótt hér sé farið fram á lítilsháttar styrk til hans, að hann hverfi frá leiksviðinu fyrir það, því að sjálfsagt vill enginn missa hann þaðan, meðan hann vill og getur starfað. Ég býst við, að þessari till. minni verði vel tekið í hv. d.
Þá er í raun og veru höfuðtill. eftir, það er um framlag til atvinnubóta í kaupstöðum og kauptúnum, 1 milljón kr. Ætlazt er til, að móti þessu fé komi framlag frá hlutaðeigandi sveitar- eða bæjarfélagi og þeim gefinn kostur á láni, er nemi helming framlags þeirra móts við framlag ríkissjóðs. Með þessu móti verður þá fé til atvinnubóta 1934 um 2 millj. kr. til kaupstaða og kauptúna, ef á þarf að halda. En vegna örðugs fjárhags sveitarfélaga þykir ekki rétt að skylda þau til að leggja framlag á móti, nema þeim sé jafnframt opnuð einhver leið til að fá að láni, því að flest sveitarfélög eiga nú erfitt um fjárframlög, nema í smáum stíl. Ef til vill eru nokkrir kaupstaðir, sem gætu slíkt, en ég efast þó um það. Það má segja, að það sé stór fjárhæð, sem hér er um að ræða — 2 milljónir kr. á einu ári —, en menn verða líka að gera sér það ljóst, að ástandið er alvarlegt; væri betur, að til þess þyrfti ekki að taka, en við verðum að gera ráð fyrir því. Í atvinnuleysinu í fyrra hér á landi í kaupstöðum og kauptúnum, þar sem skýrslur voru teknar af n. þeirri, sem skipuð var í atvinnuleysismálinu, voru 2500 manns atvinnulausir og auk þess má gera ráð fyrir, að í smærri kauptúnum hafi verið a. m. k. 500 manns atvinnulausir, eða alls 3000 atvinnuleysingjar. En hér er aðeins um fjölskyldumenn að ræða og dálítið af einhleypum, en bak við þessa menn er ekki svo lítill hluti þjóðarinnar. Gera má ráð fyrir, að bak við þessa 3000 atvinnulausu menn séu varla færri en 12—15 þús., sem lifa á framfærslu þeirra. Ég ímynda mér, að svipað hljóti að vera nú. Og þegar Alþ. fer að leggja frá stórfé — um 12 millj. kr. — til þess að létta undir með einni stétt þjóðfélagsins — bændunum —, sem líka eru góðs maklegir og sjálfsagt að hjálpa á skynsamlegan hátt, þá sé ég ekki, að hægt sé að gera hinar stéttirnar afskiptar, þær sem nauðulega eru staddar, og það er ekkert efamál, að verkalýðsstéttin er nauðulega stödd á þessum tímum. Allt verðfall afurðanna, samdráttur atvinnuveganna og ekki síst samdráttur sá, sem orðið hefir á framkvæmdum sjálfs ríkisins, bitnar á atvinnu og afkomu verkalýðsins. Ég ætla ekki að tala um það nú, ef til vill verður tækifæri til þess seinna, að samtímis því sem harðnar í ári skuli ríkissjóður draga úr framkvæmdum sínum. Slíkt er þveröfugt við það, sem aðrar menningarþjóðir gera. Þar eru jafnvel tekin stórlán til þess að geta komið mannvirkjum í framkvæmd, sem veita mikla atvinnu og eru líka haganleg þjóðinni. En Alþ. hefir í þess stað dregið saman seglin. Ef litið er á afkomu fólksins, má líka vitna í þær skýrslur, sem áður var á minnzt og teknar voru árið 1931—1932, en samkv. þeim voru tekjur þessara manna frá 900 upp í 1400 kr. á ári. Margir hafa orðið að framfæra á þessu fjölskyldu og það sjá allir, hve skammt það hefir hlotið að hrökkva, hversu mikils sparnaðar sem gætt væri. Og þessir menn höfðu verið atvinnulausir frá 2 upp í 7 mán., eða meira en hálft árið sumir. Þá má geta nærri, hvernig ástandið er. En þessar skýrslur, sem ég byggi á nú, eru eldri, en svipað er að segja um ástandið nú og verður því miður fyrst um sinn. Ég sé raunar, að fjvn. þessarar d. hefir haft þetta mál í huga, og ég átti tal við n. um þetta, og taldi hún, að eitthvað yrði að greiðast í þessu skyni, en fram að þessu hefir verið látið sitja við orðin tóm. T. d. felldi Nd. samskonar till. og þetta við umr. fjárl. þar, og nú er komin 2. umr. fjárl. hér. Kreppufrv. okkar Alþýðuflokksmanna liggja óhreyfð í nefndum, svo að ástæða er til tortryggni um, að þm. og ráðandi menn þingsins vilji litla rækt sýna þessum málum. En ég get sagt hv. dm., að ef ekkert verður samþykkt af þessu, þá verður ríkisstj. nauðug viljug, hvort sem hún hefir peninga eða ekki, að láta fé af hendi til atvinnu handa fólkinu eða þá beina styrki, þótt hún fái enga heimild til þess í fjárl. Hún verður að gera það. En hitt er annað mál, að ég tel það réttari aðferð og meiri árangur, að stj. viti, að þarna er heimild, sem hún hefir og getur búizt undir að nota. Í gildandi fjárl. er nokkur fjárhæð veitt til atvinnubóta. Að hve miklu leyti það hefir verið notað, get ég ekki fengið upplýst. Ég hefi spurzt fyrir um það, en ekki fengið fullnaðarsvar. Því miður er víst, að þörfin kallar að, þegar frá liður og raunar þegar. En það verður meira á þessu hausti, og það, sem heimilað er í fjárl. nú, er ekki víst að hrökkvi til að halda uppi því fólki, sem þarf atvinnu, og því verður að taka til ríflegri fjárhæð í fjárl., þar sem fyrir stj. sé lagt að leggja það fé til atvinnubóta. En einkanlega álít ég, að þingið eigi fyrr og síðar að leggja ríkt á við stj. að reyna að sjá um, að þau verk, sem hún lætur vinna, séu unnin á þeim tímum, er þau koma bezt að gagni, þar sem árangur fæst fyrir ríkissjóð og sæmileg aðstaða er fyrir fólkið að starfa að verkinu. Ég hefi sagt þetta áður svo að segja á hverju þingi, sem ég man til að ég hafi hreyft þessum málum. Væri meira gagn að því, að þessi verk væru framkvæmd á hentugum tíma í stað þess að verkamenn eru reknir út í holt í skammdeginu til þess að mylja grjót og enginn árangur verður sjáanlegur af starfinu. Það er þá betra heldur en að láta vinna, að greiða einhvern atvinnuleysisstyrk. Mér skildist á fjvn. og fjmrh., að við 3 umr. málsins ætti að gera eitthvað í þessu efni. Fjmrh. óskaði þess, að þessar till. yrðu teknar aftur til 3. umr., en til þess sé ég enga ástæðu. Hitt er auðvitað mál, að ég mun þá flytja nýja till. svo framarlega sem þessi fellur, sem ég trúi ekki að verði og álít ekki rétt af þm. að gera. Ég tel ekki rétt að fella þessa till., þegar menn hafa í huga að veita öðrum stéttum þjóðfélagsins jafnmikla aðstoð og gert er í kreppufrv. því, sem nú er til 2 umr. í Nd. Ég hefði því viljað óska þess, að ef fjvn. er eitthvað að hugsa um framkvæmd í þessu máli og ætlar sér að bera fram till. í málinu, þá gætu þær aths. hennar komið fram nú og jafnvel, að hún flytti brtt., því að þegar málið er komið til 3. umr., þá er ekki víst, að tök séu á því að hreyfa málinu, þegar búið er að samþ. fjárl. í Ed. Nd. getur samþykkt fjárl. óbreytt eins og oft hefir komið fyrir áður, og það er rangt að fresta þessu fram á síðustu stund, þar sem þetta er stærra mál en svo, að til þess eigi að kasta höndunum og fleygja einhverju í verkalýðinn og segja: „Hafðu þetta“, þegar búið er að jagast og rífast um þetta svo og svo lengi. Ég vænti þess heldur, að þeir geri einhverjar orðabreyt. eða eitthvað slíkt á mínum till., en það má ekki vera minni upphæð en hér er farið fram á, heldur öllu meiri. Vænti ég því, að hv. dm. muni samþykkja þessa till.
Ég flyt ásamt hv. 1. landsk. og hv. 2. þm. N.-M. till. á þskj. 624 um síldarverksmiðju á Seyðisfirði. Ég ætla ekki að tala fyrir þeirri till. frekar, því að hv. 1. landsk. lýsti því mjög greinilega, hvert gagn mætti af því verða, að slík stöð yrði reist, en ég legg áherzlu á, að þessi till. nái samþykki og að á henni verði ekki gerðar neinar breyt., sem til skemmda gætu orðið. En það teldi ég, ef ætti að fara að gera till. óákveðna um, hvar verksmiðjuna ætti að setja, því að á Seyðisfirði er búið að vinna talsvert að undirbúningi þessa máls, sem gæti farið út um þúfur, ef ekki væri haldið áfram með málið eins og nú er til stofnað. — Ég ætla ekki að minnast á fleiri till., þótt e. t. v. væri ástæða til, nema það, að hv. 6. landsk. flytur alltaf 2 till. á hverju þingi um að lækka 3 liði fjárl. Það er að lækka risnu hjá forsrh., fella Halldór Kiljan Laxness burtu úr fjárl. og narta svolítið í Þórberg Þórðarson. Þetta eru væntanlega till. til sparnaðar, en eftir því sem því var tekið í fyrra, er ósennilegt, að hv. þm. takist að koma þessu fram, a. m. k. ekki lækkun á styrk til þessara skálda.