10.05.1933
Efri deild: 68. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 398 í B-deild Alþingistíðinda. (320)

1. mál, fjárlög 1934

Forseti (GÓ):

Út af orðum hv. þm. Snæf. um það, að vani hafi verið að taka mál af dagskrá, ef farið hefir verið fram á það, og að ég hafi jafnan orðið vel við slíkum málaleitunum, vil ég geta þess, að það hefir ekki verið vani, að einungis helmingur þm. hafi verið viðstaddur fjárl.umr. í Ed. Hefir slíkt ekki komið fyrir síðan ég kom á þing, og hefi ég þó verið hér alllengi.