29.04.1933
Neðri deild: 61. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 139 í C-deild Alþingistíðinda. (3219)
168. mál, viðbótar- tekju- og eignarskattur
Haraldur Guðmundsson [óyfirl.]:
Mér er mesta ánægja að því að heyra röksemdir hæstv. fjmrh. fyrir nauðsyn og sanngirni þessa aukna tekjuskatts. Ég hefði raunar kosið þær fyrr en þær hafa komið, en ég vænti þess, að nú verði framhald af till. hans í þessa átt. En viðvíkjandi einu atriði, sem hann drap á í fyrri ræðu sinni, þegar hann talaði um, hvort ætti að taka þá aðferð að ákveða í frv., til hvers tekjunum skyldi varið, vil ég segja nokkur orð. Hæstv. ráðh. taldi það réttu leiðina að láta þessar tekjur, sem aflað væri með tilliti til kreppunnar, renna beint í ríkissjóð, og síðan á ríkissjóður að leggja fram fé til kreppuráðstafana. Ég skal játa, að í fljótu bragði virðist það ekki skipta miklu máli, hvor leiðin er farin. En ég vii benda á það, að hæstv. ráðh. skýrir ekki rétt frá í þessu efni.
Í því frv., sem fer fram á mest útgjöld í sambandi við kreppuna, er átt við, að féð renni í kreppulánasjóð, en ekki í ríkissjóð. Má í því sambandi minna á vaxtagreiðslur þær, sem Búnaðarbankinn á að inna af hendi til ríkissjóðs, að þær eiga að fara beint í kreppulánasjóð. Að því er þetta frv. snertir er sérstök ástæða til þess að benda á það, að tekjurnar eru miðaðar við ákveðið hlutverk. Og vegna þess að það er vitað, að þessi tekjuauki kemur nær eingöngu úr kaupstöðunum og kauptúnunum, og þar er atvinnuþörfin mest, þá virðist eðlilegast og sjálfsagt, að þær verði notaðar til þess að bæta úr þeirri þörf. Mér skildist á ræðu hæstv. ráðh., að hann væri ekki andvígur því, að þetta væri gert, enda er í grg. frv. tekið fram, að fénu skuli varið til kreppuráðstafana.
Ég vil nú gera það að till. minni, að þessu frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til kreppunefndar. Hún hefir með höndum frv. okkar jafnaðarmanna um tekju- og eignarskatt, sem verja á til atvinnubóta. Ég tel því rétt, að frv. fari þangað, og vænti, að hv. d. fallist á það.
Ég geri mér vonir um, að samkomulag náist um það við hv. stj., hvernig þessu fé skuli varið. Byggi ég þá von mína á ummælum hæstv. ráðh. við þessa umr.
Ég hefi áður tekið það fram, að hér sé of skammt gengið um hækkun skatta, og ég verð að telja rök hæstv. ráðh. skýr fyrir því, að hægt hefði verið að fara lengra en gert er með frv. En það yrði þá athugað í þeirri n., sem málið fær til meðferðar.