27.05.1933
Neðri deild: 84. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 142 í C-deild Alþingistíðinda. (3230)

168. mál, viðbótar- tekju- og eignarskattur

Fors.- og fjmrh. (Ásgeir Ásgeirsson):

Ég tek undir till. hv. þm. V.-Húnv. En ég get ekki fallizt á till. á þskj. 601, um að binda tekjurnar í ákveðnu augnamiði.

Í fjárl. er það fé, sem ætlað er til atvinnubóta, veitt í 16. gr. fjárl., og verður því það fé, sem ætlað er til atvinnubóta, að renna inn í ríkissjóðinn á móti.