27.05.1933
Neðri deild: 84. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 148 í C-deild Alþingistíðinda. (3237)
168. mál, viðbótar- tekju- og eignarskattur
Pétur Halldórsson [óyfirl.]:
Það er ekki sanngjarnlega mælt, að ef skattborgari verður að borga meira í beina skatta en tekjum nemur, þá sé það útsvarinu að kenna. Þetta hlýtur þá að þýða það, að ríkissjóður eigi fyrstu kröfu á skattborgara Rvíkur, og að þegar búið er að fullnægja henni, þá komi fyrst til greina útsvar, sem þá geti valdið því, að ekkert verði eftir af tekjunum. Nú vita bæði hæstv. ráðh. og hv. dm. það, að aukaútsvörin eru aðaltekjustofn bæjarfélagsins hér, eða að 4/5 hlutum. Ég verð því að segja, að þegar sú regla er upp tekin, að ríkið fer að ganga mjög svo fast á hinn sama tekjustofn, sem bæjarfélagið verður að mestu að byggja tekjuöflun sína á, þá er það ríkið, sem tekur síðari hluta teknanna, eða meira. Þetta þykir kannske ekkert óeðlilegt frá sjónarmiði þeirra, sem álíta, að tekjur og eignir einstakra manna séu eign ríkisins. En þegar þess er gætt, að Rvík verður að taka tekna sinna af tekjum og eignum manna, en ríkið fær sínar tekjur ekki nema að 1/10-1/15 í beinum sköttum, þá er ekki að undra, þótt hæstv. ráðh. segi, að flokksmenn okkar hv. 3. þm. Reykv. fari djúpt niður í vasa skattborgaranna hér. Þetta er aðaltekjustofn bæjarfélagsins, en ríkisins ekki nema að litlu leyti. Er því alveg óviðeigandi að níðast á þessum aðaltekjustofni bæjar- og sveitarfélaga á öllu landinu. Annars þýðir víst ekki meira um þetta að deila. Atkv. verða að skera úr.