27.05.1933
Neðri deild: 84. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 151 í C-deild Alþingistíðinda. (3254)
168. mál, viðbótar- tekju- og eignarskattur
Magnús Jónsson:
Hæstv. fjmrh. var nú ekki langt undan landi og hefði því getað svarað sjálfur. Annars er það algerlega rangt, að ég hafi haldið því fram, að Svafar Guðmundsson sé sérstaklega ranglátur maður. Ég veit ekki um annað ranglæti hjá honum en að ákaflega er kvartað undan úrskurðum hans í innflutningsnefndinni. Og komi till. á dagskrá, verður tækifæri til að rökstyðja orð mín, en það get ég ekki gert nú, þar sem ég hefi aðeins leyfi til að gera aths. En að þá menn megi ekki nefna hér á nafn, sem falin eru þau opinber störf, sem liggja sérstaklega undir gagnrýni, því get ég ekki séð neina sanngirni mæla með. Þeir hafa lagt sig undir þessa gagnrýni með því að taka að sér þessi opinberu störf, og ég veit þá ekki, hvort nokkuð er betra að vera að dylgja um þá nafnlaust.