27.05.1933
Neðri deild: 84. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 151 í C-deild Alþingistíðinda. (3255)
168. mál, viðbótar- tekju- og eignarskattur
Jóhann Jósefsson:
Hæstv. fjmrh. virðist halda mjög fast í innflutningshömlurnar, og rökstyður hann þá stefnu eingöngu með því að segja, að gjaldeyrinn verði að skammta, og ekki mótmæli ég gjaldeyrisskömmtun yfirleitt. En þess ber að gæta, að nú er innflutningshöftum beitt ekki síður á þá, sem aðstöðu hafa til þess að fá alllöng lán hjá útlendum verzlunarmönnum, m. ö. o. menn, sem þurfa ekki yfir lengri tíma að fá þennan margumrædda gjaldeyri. Það er vitanlegt, að mikil óánægja er hjá mörgum út af innflutningshöftunum og framkvæmd nefndarinnar á ýmsum sviðum. Við höfum verið að vona, að hæstv. stj. mundi fallast á óskir, sem við höfum borið hér fram þáltill. um, að slakað verði á þessum höftum. En mér heyrist hæstv. ráðh. vera fjær því nú en nokkru sinni áður. Það verður langur sá tími, sem eitthvað þarf að hafa hömlur á gjaldeyrinum, og þá gæti innflutningsnefndin orðið eilífðarstofnun í þessu efni. (Forseti: Ég vil benda hv. þm. á að halda sér við efnið, tekju- og eignarskattinn). Við erum þeirrar skoðunar, að það sé alveg nóg að hafa gjaldeyrisskömmtun, og þá megi slaka eitthvað til á innflutningshöftunum.
Hæstv. forseti hefir áminnt mig um að halda mér við að tala um tekju- og eignarskattinn. Ég hefi við 1. umr. þessa máls lýst yfir skoðun minni á stefnu hæstv. ráðh. í þessu efni, og kann ég ekki við að endurtaka það nú. En mér finnst, að hæstv. ráðh. ætti að geta séð, að það fer ekki í öllum tilfellum saman þetta tvennt, að beita innflutningshöftum og að skammta gjaldeyrinn. Með innflutningshöftunum er ríkissjóður sviptur miklum tekjum, sem hann annars gæti haft, og það í sumum tilfellum án þess, að grípa þurfi til gjaldeyrisráðstafana, þegar svo stendur á, að kaupmenn hér hafa kynnt sig svo vel við kaupmenn erlendis, að þeir hafa lánstraust hjá þeim.
Mér virðist þessi fastheldni hæstv. ráðh. við gjaldeyrisskömmtunina muni rýra tekjur ríkissjóðs fremur en auka þær. Þetta mál má þess vegna ræða í sambandi við það mál, sem nú er á dagskrá.
Ég vil mælast til þess ásamt hv. 3. þm. Reykv., að forseti beri þáltill. okkar undir atkv. hér í d. að umr. lokinni. Við vonuðum, að hæstv. stj. tæki öðruvísi í þetta. En eins og komið er viljum við fá að vita úrskurð d.