11.05.1933
Efri deild: 69. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 413 í B-deild Alþingistíðinda. (329)
1. mál, fjárlög 1934
Ingvar Pálmason:
Ég þarf að gera lítilsháttar aths. við ræðu háttv. 2. landsk., að því er snertir þann kafla hennar, er fjallaði um brtt. þá, sem hann flytur ásamt öðrum um ábyrgðarheimild fyrir síldarbræðslustöð á Seyðisfirði. Hann sagði, háttv. þm., að ég hefði talað langt mál á. móti till. En þetta er ekki rétt. Ég talaði aðeins með brtt. þeirri, sem ég flyt við brtt. hans, og hún er þannig, að allir, sem opin hafa augun, hljóta að sjá, að ég hefi ekki getað talað á móti bræðslustöð á Austurlandi. Ég varð að sjálfsögðu að færa rök fyrir till. minni, og taldi mér þó sjálfsagt að skýra rétt frá staðháttum. Þá minntist hv. þm. á bréf það, er háttv. frsm. las upp áðan, og gaf það í skyn, að það væri pantað, og það pantað af mér. Það mun nú vera rétt, að bréf þetta var pantað, en það var fjvn., sem pantaði það, en ekki ég.
Hv. þm. skaut því fram áðan, að það væri bezt að sverja sem minnst. Ég ætla ekki heldur að fara að sverja neitt. En það verð ég að segja háttv. þm., að það er lítil trú hans á till., ef hann heldur, að þessar glósur hans séu rök, sem mæli með málinu. Annars er það alveg rétt, að skoðun sú, sem kemur fram í bréfi verksmiðjustjórans á Siglufirði, kemur nokkuð heim við það, sem ég hélt fram í gær, sérstaklega er það þó niðurlag bréfsins. Allur sá mótgangur, sem ég hefi sýnt í þessu mál, er sá, að ég hefi borið fram brtt. um að binda ábyrgðarheimild til þess að koma upp síldarbræðslustöð á Austurlandi ekki við neinn ákveðinn stað, því að ég tel, að víða megi reisa þar slíka stöð. Með því er ég alls ekki að útiloka það, að stöðin verði reist á Seyðisfirði. Reynist það við athugun málsins, að hún verði bezt sett þar, verður hún að sjálfsögðu byggð þar. Hitt nær engri átt, sem háttv. þm. sagði, að ef ábyrgðarheimildin yrði ekki staðbundin við Seyðisfjörð, þá yrði ekkert úr byggingu þessarar síldarbræðslustöðvar, því að það væri hvergi hægt að reisa hana annarsstaðar á Austurlandi. Fyrir mér vakir ekkert annað en að hafa þetta óbundið, og hvað upphæðina snertir, þá virðist mér hún heldur há, því að það eru takmörk fyrir því, hvað Alþingi má bæta á ríkissjóðinn af ábyrgðum eins og útgjöldum. En sem sagt vil ég láta rannsókn skera úr þessu öllu, og reynist það rétt og satt, að Seyðisfjörður liggi betur við síldarútgerð á Austfjörðum en aðrir staðir þar, hafa till.menn ekkert að óttast.