02.06.1933
Efri deild: 87. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 182 í C-deild Alþingistíðinda. (3296)
168. mál, viðbótar- tekju- og eignarskattur
Jón Þorláksson:
Ég er þessu frv. mótfallinn og vísa um það til nál. og þeirra ástæðna, er ég flutti fram við 1. umr. málsins. Finn ég ekki ástæðu til að endurtaka neitt af þeim, nema tilefni gefist.