11.05.1933
Neðri deild: 71. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2082 í B-deild Alþingistíðinda. (3332)
117. mál, barnavernd
Magnús Jónsson:
Ég tók svo eftir, að hv. þm. Ísaf. óskaði eftir að fá frest til þess að bera þetta undir barnaverndarráðið, en það hefir þegar verið gert. Ég gleymdi aðeins að geta þess, að það hefir verið snúið sér til barnaverndarráðs með þetta, og það hefir svarað með bréfi, dags. 29. apríl þ. á. Það er dálítið að ræða um þetta fram og til baka í bréfinu, t. d. um það ósamræmi, að banna mönnum að sjá það á kvikmynd, sem engar hömlur er settar fyrir, að sjá megi á leikhúsi. Enda eru leiksýningar teknar undir eftirlitið með frv. En barnaverndarráðið fellst á, að það muni vera heppilegra, a. m. k. mótmælir því ekki, og segir, að ýms rök geti stutt það, að hafa einn aðalmann og einn varamann hér í Reykjavík til að hafa eftirlit með öllum kvikmyndahúsum úti um land, sem börnum er ætlað að hafa aðgang að. En þeir segjast hafa verið að spyrjast fyrir um starf kvikmyndahúsa úti um land og muni hefjast handa í þessu efni, ef ástæða þykir til. Það klykkir út með því að segja, að því þyki óheppilegt, ef barnasýningar þurfi að falla niður. En það vill sameina það, að barnasýningar verði hvorttveggja í senn, börnunum til gleði og þroska.
Reynslan hefir verið sú hér í Reykjavík, að kvikmyndahúsin hafa ekki getað haldið uppi barnasýningum. Hið eina, sem leyft er að sýna börnunum, eru náttúrufræðimyndir og þ. h., sem börnunum þykir ekki gaman að og þau sækja lítið, af því að þær eru meira ætlaðar til fróðleiks sem skólamyndir heldur en beinlínis til skemmtunar.
Ég hefi ekki á móti því, ef n. vill það heldur, að barnaverndarráðið sé spurt enn einu sinni um þetta mál.