24.05.1933
Neðri deild: 82. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2085 í B-deild Alþingistíðinda. (3339)
117. mál, barnavernd
Bergur Jónsson:
Ég vil leggja á móti því, að málið sé tekið af dagskrá. Nú er alveg nýbúið að neita, að mál sé tekið út eða frestað umr. um, þar sem þó var brtt., sem leita þurfti afbrigða fyrir. Nú er sú brtt., sem óskað er eftir að tekin verði til nánari athugunar, fram komin fyrir viku, eða meira en viku. Ég álít a. m. k. réttara að bera það undir hv. deild, hvort málið skal tekið út. — Annars hafði mér skilizt, að hv. 3. þm. Reykv. ætlaði að taka aftur brtt. sína. Okkur er illa við að fella hana, en teljum það atriði ekki nóg rannsakað, hvort einn maður eða fleiri eigi að framkvæma þetta eftirlit.
Umr. frestað um stund, en fram haldið síðar á sama fundi.