27.04.1933
Neðri deild: 59. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2126 í B-deild Alþingistíðinda. (3372)

167. mál, kreppulánasjóð

Dómsmrh. (Magnús Guðmundsson):

Ég skal ekki tefja umr., en vil aðeins segja fáein orð út af ræðu hv. þm. Vestm. Hann kvaðst ekki sjá sparnað hjá landsstjórninni. Ég verð að segja, að þetta er ómakleg ásökun. Ég hefi reynt að spara í minni stjórnargrein, eins og ég hefi talið fært, og ég geri ráð fyrir, að hinir ráðherrarnir hafi gert hið sama. Ég get bent á einstök atriði þessu til sönnunar. Við landhelgisgæzluna hefir verið dregið úr kostnaðinum um ¼ millj. Sömuleiðis hafa sparazt útgjöld til strandferða, sem nemur líkri upphæð. Reyndar hefir þetta að einhverju leyti komið niður á landsmönnum, en hefir verið nauðsynlegt. Ég gæti bent á fleiri dæmi, þar sem reynt hefir verið að spara, en það er fjöldi laga í gildi, sem ákveða mikil útgjöld, og það er ekki hægt að breyta þeim lögum milli þinga. Þannig er um starfsmenn ríkisins, að þeir eru bundnir með samningi, og þess vegna er ekki hægt að lækka laun þeirra í skjótri svipan. Ég hefi sagt upp nokkrum samningum, sem mér virtust ósanngjarnir og hefi hlotið ámæli ýmsra fyrir. Ég kippi mér ekki upp við það, en bendi á þetta til þess að sýna fram á, að það er ósanngjarnt að saka stjórnina um, að hún hafi ekki reynt að spara.

Hæstv. atvmrh. er ekki viðstaddur, en ég býst við, að hann hafi bætt inn í frv. ákvæðinu um lágmarksverð á landbúnaðarafurðum, af því að sýnt er, að samningarnir við England verða ekki búnir þegar þingi er lokið. Þess vegna er þetta nauðsynlegt ákvæði til þess að bæta bændum upp, ef markaðurinn í Englandi verður mjög slæmur. Þegar það hefir hent sjávarútveginn, að aðalmarkaður hans hefir verið í hættu, þá hefir verið reynt að bæta úr því. Ég minnist þess, að þingið hefir samþ. að breyta íslenzku löggjöfinni, sem þurfti til þess að varðveita markaðinn.

Að öðru leyti er ég ekki óánægður með undirtektir hv. þm. Vestm. í þessu máli, því að ég álít, að hann hafi sýnt því fulla sanngirni.