20.05.1933
Efri deild: 77. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 434 í B-deild Alþingistíðinda. (339)
1. mál, fjárlög 1934
Bjarni Snæbjörnsson:
Það eru 2 brtt. á þskj. 733, sem ég er flm. að ásamt hv. þm. Snæf.
Fyrri brtt. er við 12. gr., að þar komi nýr liður, er heimili að veita 3000 kr. til fjörefnarannsókna á þjóðlegum íslenzkum matvælum. Samskonar brtt. var borin fram í Nd., þá af hv. þm. Ísaf., en upphæðin var þá 2000 kr. hærri.
Það þarf ekki að tala mikið um þessa till. Ég býst við, að allir hv. þdm. skilji, hvað hér er farið fram á. Nú á þessum síðustu tímum hefir mjög aukizt þekking manna á nauðsyn fjörefna. En það er svo ástatt hér hjá okkur, að mjög mikið af matvælum okkar, sem við neytum, er t. d. skyr og allskonar súrsuð matvæli. Þar sem við notum svo mikið af svona matvælum, og þar sem við Íslendingar höfum sérstöðu í þessum matartilbúningi frá öðrum þjóðum, þá er ekki nema sjálfsagt, að rannsakað sé, hvað mikið af bætiefnum er í þeim og hversu hollt fæði þetta er.
Ég hefi lækkað þessa fjárveitingu úr 5000 kr. niður í 3000 kr. í samráði við Niels Dungal, forstöðumann rannsóknastofu háskólans, sem er ætlazt til, að geri þessar rannsóknir. Hann telur, að hægt sé að komast af með þessa fjárupphæð. Þar sem svo mikið er í húfi fyrir öllum landsbúum, að fá að vita það rétta í þessu máli, þá vona ég að hv. þd. sjái sér fært að samþ. þessa till.
Loks er seinni brtt., undir rómv. lið XLIV. Það er lækkunartill. og þess vegna þykir mér sennilegt, að hún fái góðar undirtektir hjá hv. þdm. og verði samþykkt.
Það er eins og hv. þdm. vita, að inn í frv. kom í Nd. liður um það, að verja mætti allt að 25000 kr. af verzlunarágóða Viðtækjaverzlunarinnar til þess að greiða fyrir útvarpsnotum þar sem raforka er ekki fyrir hendi. Það hafa verið skiptar skoðanir um það, hversu mikill greiði væri veittur með þessu, og eins og hv. þdm. muna, þá var meirihl. fjvn. meðmæltur því, að þessi liður félli niður við 2. umr., þó svo yrði ekki. En ég er þeirrar persónulegu skoðunar, að þetta komi ekki að tilætluðum notum, ef greinin er þannig orðuð eins og hún stendur í frv. Ég er viss um, að þetta yrði ekki nema kák að miklu leyti, og ég er líka persónulega sannfærður um það, að það yrði til þess að vekja ríg milli sveitarfélaga og einstakra manna, hverjir ættu að verða þeirra hlunninda aðnjótandi, sem hér er farið fram á, að fá styrk til rafvirkjunar á sínu eigin heimili. Öðru vísi get ég ekki skilið, að hægt verði að koma því í framkvæmd. En annað mál er það, að það er vitanlega fjöldi manna hér á landi, sem hefir við misjafna aðstöðu að búa til þess að geta hagnýtt sér útvarp. Þess vegna vil ég mæla með því, að gerð verði tilraun með það, hvernig megi koma þeim að liði, sem verstu aðstöðuna hafa, og leggja það í vald atvmrn., hvernig það álítur það bezt gert. Í framkvæmdinni gæti verið um þrjár leiðir að velja. Í fyrsta lagi sú, sem á hefir verið minnzt. Í öðru lagi mætti lækka afnotagjald hjá þeim útvarpsnotendum, sem nota þurfa dýrust batterí og erfiðast eiga um hleðslu á þeim. Og í þriðja lagi mætti hugsa sér, að þessu yrði varið til að létta mönnum kaup á batteríum og útvarpstækjum. Og fleiri leiðir mætti ef til vill fara. En við, sem erum flm. þessarar brtt., teljum bezt að láta óbundið, á hvern hátt þetta verður framkvæmt. Við teljum heppilegast, að ríkisstjórnin ráði fram úr því á þann hátt, sem heppilegast er að hennar og kunnugra manna áliti. Vonum við, að háttv. d. geti orðið okkur sammála um þetta. Hér er líka um sparnaðartill. að ræða: Mun nóg hlaðast á fjárl., þótt þessi verði samþ.