11.05.1933
Neðri deild: 71. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2172 í B-deild Alþingistíðinda. (3398)

167. mál, kreppulánasjóð

Pétur Ottesen [óyfirl.]:

Ég skal vera mjög stuttorður.

Hv. 1. þm. Skagf. heldur því fram, að sjóðstj. hefði meiri þekkingu á að skipa, ef hún yrði skipuð eftir till. hans, en ég hefi áður gert grein fyrir því, að stj. búnaðarbankans hefir fyrir margra ára starfsemi nægilega þekkingu á högum og háttum bænda, auk þess sem fyrir liggja niðurstöðurnar af þeirri rannsókn á hag og afkomu bænda, sem gerð var fyrir og eftir áramótin.

Því verður og ekki á móti mælt, að ef stórum kröfuhöfum eins og SÍS og Landsbankanum verður einum af öllum kröfuhöfum gefinn kostur á að taka þátt í stj. sjóðsins, er þar með opnuð leið til víðtækrar tortryggni og óánægju, sem ekki er að vita, hvert leiddi, og jafnvel þótt þekking sjóðstj. kynni að verða eitthvað meiri með þessu móti, mundi það þannig vinnast upp með þeirri óánægju og tortryggni, sem þetta fyrirkomulag skapaði.

Hv. 1. þm. Skagf. sagði, að sambandsverzlanirnar teldu yfir helming allra bænda í landinu. Verð ég að segja það, að þótt ég beri góðan hug til SÍS, eins og líka bezt má marka af því, að ég er í stj. eins stærsta samvinnufélagsins á landinu, álít ég þó ekki ástæðu til að gera þeim bændum hærra undir höfði, sem verzla við samvinnufélög, en öðrum bændum, er njóta styrks og aðstoðar af þessari hjálparstarfsemi, sem setja á á stofn. Ég þykist þess fullviss, að stj. búnaðarbankans muni haga till. sínum án tillits til þessa og þræða þá leið um hjálpina, sem er sanngjörnust og réttlátust. Þeir bændur, sem verzla við samvinnufélög, geta varpað öllum sínum áhyggjum í þessu efni upp á stj. kreppulánasjóðs, enda þótt þeir hafi ekki sérstakan aðila í stj. til þess að gæta hagsmuna sinna. Það er rétt, að ekki verður komizt hjá kröfuhöfunum, enda eiga þeir samkv. frv. að ákveða, hvort þeir vilja ganga inn á þau skilyrði, sem stj. kreppulánasjóðs kann að setja, og er það önnur aðstaða en að þeir gætu jafnframt ráðið, hvernig skuldaskilin eru framkvæmd. Það leiðir og af sjálfu sér, að ef 2 eða fleiri kröfuhafar fá aðstöðu til að taka þátt í stj. sjóðsins, og allir aðrir kröfuhafa eru útilokaðir frá þessu, verður óhjákvæmilegt, að af því spretti tortryggni og óánægja, bændum til mikils skaða, sem eiga að njóta góðs af þessari starfsemi.

Hv. þm. Seyðf. talaði um það, að sjálfsagt væri, að Landsbankinn hefði hönd í bagga með þessari starfsemi, þar sem honum væri falin forustan í peningamálum þjóðarinnar. Fæ ég þó ekki séð ástæðuna til þessa. Búnaðarbankanum er falin forustan í lánastarfsemi landbúnaðarins, án íhlutunar Landsbankans, og fellur það í þann sama farveg, ef honum er einnig falin þessi sérstaka lánastarfsemi. Alþingi hefir og ákveðið upphæðina, sem verja á í þessu skyni, án þess að spyrja Landsbankann ráða um það, hve langt ætti að fara í slíkum fjárframlögum, enda kemur þetta á engan hátt í bága við það, þótt Landsbankanum í öllum verzlunarviðskiptum út á við sé falin forustan í peningamálum landsins. Hér er og aðeins um framkvæmd á vissri lánastarfsemi að ræða.

Ég tek undir það með hæstv. atvmrh., að heppilegra er, að sjóðstj. sé skipuð færri heldur en fleiri mönnum, enda er sízt ástæða til að gera kostnaðinn af þessari starfsemi meiri en þörf er.