13.05.1933
Efri deild: 71. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2189 í B-deild Alþingistíðinda. (3410)
167. mál, kreppulánasjóð
Jón Baldvinsson:
Þá langar sérstaklega mikið til þess, hv. 2. þm. Eyf. og hv. 3. landsk., að ég verði á móti þessu frv., þegar þeir eru að reyna að toga það út úr orðum mínum, að ég sé því andvígur. (JónJ: Við erum að brýna hv. þm. til þess að vera með því). Það er þá ný aðferð til þess að afla málum fylgis. Ég talaði alltaf um að styðja bændur á skynsamlegan hátt og ég veit ekki betur en að ég hafi gert það í þinginu bæði fyrr og nú. Ég talaði um, að mér fyndist það e. t. v. auðveldasta leiðin, af því að maður veit ekki, hvað þessi kreppa stendur lengi, að veita fé, jafnvel milljónir, til stuðnings verkamönnum. Af þessu dregur hv. þm. þá ályktun, að ég vilji þá láta hlutskipti bænda verða verra, en ég var einungis að tala um framlag, sem á þessu augnabliki þyrfti að veita bændum. Ég talaði ekkert um, að ég myndi verða á móti frekara tillagi til þeirra seinna, ef ástæður þeirra verða vondar áfram. Það er sjálfsagt að styðja þessar stéttir báðar hvenær sem þær eru nauðulega staddar. Munurinn á fólksfjölda bændastéttarinnar og verkamannastéttarinnar er ekki mikill. (JónJ: Ó, jú, jú). Það má telja til verkamannastéttarinnar iðnarmannastéttina, sem hv. 3 landsk. var svo naglalegur við í sínum till. um fjárl. að draga af þeim 3000 kr. styrk, sem iðnaðarmenn hafa haft til að fullkomna sig við iðn sína. Utanfararstyrkur þessi hefir verið veittur útlærðum mönnum og venjulega skipt á milli 10 manna á ári og hver fengið 300 kr. til þess að geta komizt út og komið sér fyrir. Þannig fer hv. 3. landsk. að í till. sínum við eina fjölmennustu stétt landsins, sem vissulega getur talizt til verkalýðsins.