20.05.1933
Efri deild: 77. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 449 í B-deild Alþingistíðinda. (342)

1. mál, fjárlög 1934

Jón Þorláksson:

Ég á eina litla brtt. á þskj. 733 IX ásamt hv. 2. landsk. og hv. 1. þm. Reykv. um 1000 kr. fjárveitingu til Ferðafélags Ísl. upp í greiðslu kostnaðar við byggingu sæluhúss hjá Hvítárvatni. Við hv. 2. landsk. höfum einu sinni áður flutt till. um lítilsháttar styrk til Ferðafélagsins. Félagið var þá á byrjunarskeiði, og voru þá látin þau ummæli fylgja, að það mundi eftirleiðis geta starfað án styrks frá því opinbera. En þessi styrkbeiðni nú stafar af því, að félagið hefir að vísu af vanefnum ráðist í það að byggja sæluhús hjá Hvítárvatni og varið til þess 8 þús. kr. fyrir utan einhvern styrk, er það hefir fengið til byggingarinnar af opinberu fé. Nú hefir það sýnt sig, þó að bygging þessi sé mjög nauðsynleg, að þá er félaginu um megn að borga niður þær skuldir, er það hefir stofnað til vegna húsbyggingarinnar, og þar sem hér er um að ræða fyrirtæki til almenningsþarfa og það mjög nauðsynlegt, þá finnst okkur rétt eftir tilmælum félagsins að fara fram á, að ríkissjóður veiti þessa litlu upphæð svo sem til viðbótar við þann styrk, sem veittur hefir verið til sæluhússins af fjallvegafé. Vonast ég til þess, að hv. d. meti þessa till. eftir málavöxtum. Ég skal geta þess, að sæluhúsið er í alla staði gott og myndarlegt, og er þegar komið í ljós, að þess var mikil þörf. Þangað hafa fallið straumar ferðafólks, einkum innlent fólk, sem hefir leitað sér hvíldar og hressingar til fjallanáttúrunnar yfir sumartímann.