24.05.1933
Efri deild: 80. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2204 í B-deild Alþingistíðinda. (3420)
167. mál, kreppulánasjóð
Atvmrh. (Þorsteinn Briem):
Eftir að hafa heyrt ummæli hv. frsm. get ég fallizt á, að atkvgr. fari nú þegar fram um þær þrjár brtt., sem ég áður óskaði eftir, að yrði frestað til 3. umr. En ég vænti þess, að hv. n. tæki þessi þrjú atriði samt sem áður til sérstakrar yfirvegunar fyrir 3. umr.
Samkv. brtt. n. við 15. gr. er talsvert vikið frá grundvallarhugsun frv., þar sem gert er ráð fyrir, að þeir bændur geti fengið lán úr sjóðnum, sem þurfa ekki einu sinni á aðstoð að halda til þess að komast að hagkvæmum samningum við aðra lánardrottna. Ég get að vísu verið á sama máli og hv. frsm. um það, að þeir bændur séu alls góðs maklegir, sem hafa staðið svo af sér ölduföll kreppunnar, að þeir þurfa ekki hjálpar við eða afsláttar á skuldum. Og ég er ekki að draga úr því, að þeim verði veitt lán, af því að ég unni þeim ekki aðstoðar. Heldur er ég hikandi við það af því, að svo kynni að fara, að þeir bændur, sem eru enn meira þurfandi þessarar aðstoðar, njóti ekki fullkominnar hjálpar, ef þeir, sem betur eru efnum búnir, fá líka lán að verulegum mun. Ég skal í þessu sambandi benda á, að mér þykir því meiri ástæða til að taka þetta til rækilegrar athugunar þar sem að nú hefir verið afgreidd í fjárl. heimild til stjórnarinnar til þess að veita bændum verðuppbót á kjötinu, ef til vandræða horfir um sölu á því. Það liggur því í augum uppi, að þeir bændur, sem betur eru stæðir og hafa stærri bú, njóta á þann hátt meiri hjálpar en hinir, ef til kemur. Það var einkum þetta atriði, sem mér þótti æskilegt, að frestað væri atkvgr. um til 3. umr. og ég vildi, að hv. n. tæki til rækilegri yfirvegunar. En eftir að ég hefi nú heyrt undirtektir hv. frsm., get ég fallizt á, að atkvgr. um þessa brtt. fari fram nú, með þeim fyrirvara, að það komi þá aftur fram brtt. við 3. umr., ef það við nánari athugun á þessu þykir nauðsynlegt.
Viðvíkjandi því atriði í frv., sem hv. 2. landsk. ræddi mest um, hvort smábýlamenn í grennd við kaupstaði og kauptún eigi að njóta stuðnings samkv. þessum l., þá verð ég enn að halda mér við það atriði, að ástæður þessara manna eru ekki enn nægilega rannsakaðar til þess, að réttmætt sé að taka þá nú upp í þetta frv., og ég taldi mér ekki sérstaklega skylt að láta þessa rannsókn fara fram, samhliða athugun á hag bænda, af því að það er einkum landbúnaðurinn, sem heyrir undir mitt ráðuneyti, og þessir menn hafa ekki landbúnað að aðalatvinnu. Hinsvegar skal ég taka það fram, að ég álít, að þessir menn hafi fyllstu sanngirniskröfu fram að bera um opinbera aðstoð sér til handa. En ég álít, að það eigi fyrst og fremst að veita þeim þann stuðning, að láta lánadeild þá til smábýla, sem gert er ráð fyrir í 1. um Búnaðarbanka Íslands, taka til starfa sem fyrst.
Hv. 2. landsk. lét mörg orð falla um það, að hér væri mjög misjafnlega skipt á milli stétta í landinu með þessum lögum. Stórkostlegar ráðstafanir væru gerðar eingöngu vegna landbúnaðarins, en sáralítið gert fyrir aðrar stéttir, sem ættu við erfiðleika að etja. Ég hefi áður tekið það fram, að þessum stéttum, t. d. verkamönnum í kaupstöðum og kauptúnum, hefir verið veittur nokkur stuðningur með fé því, sem ætlað er til atvinnubótavinnu. Og fulltrúar Alþfl. í Nd. virtust sætta sig vel við, að sú ráðstöfun væri afgreidd líkt og verið hefir, með því að áætla allverulega fjárhæð í fjárl. til atvinnubóta. En ef gera þyrfti róttækari ráðstafanir í þessu efni, þá yrði það að bíða næsta þings.