18.04.1933
Efri deild: 50. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 204 í C-deild Alþingistíðinda. (3475)
124. mál, geldingu hesta og nauta
Guðrún Lárusdóttir:
Síðasti ræðumaður tók það fram, sem ég vildi sagt hafa, en ég vil þó bæta því við, að þó það sé langt síðan ég átti heima í sveitinni, þá rekur mig enn vel minni til þeirra kvala- og sársaukastunda, sem ég á æskuárum mínum lifði með litlu lömbunum, helsærðum, alblóðugum eftir deyfingarlausar aðgerðir og harðneskjufulla og grimmlega meðferð mannanna.
Þó ekki væri annað en þessar endurminningar, þá eru þær nægilegar til þess, að ég get ekki samþ. þessa brtt. hv. 3. landsk.
Eins og þegar hefir verið tekið fram, þá er með þessari brtt. kippt nokkurn veginn fótunum undan frv., því vissulega hefir Dýraverndunarfélagið ekki látið sér þetta í hug að gleyma litlu lömbunum eða undanþiggja þau þeirri vægð, sem frv. felur í sér fyrir dýrin.
Ég hygg, að hvað sem annars verður sagt um sársauka lambanna og fullorðnu kindanna, þá sé ekki gott að gera greinarmun á því eða bera um það, hver finnur mest til, þó mönnum virðist e. t. v., að lömbin séu fljótari að taka sig eftir slíkar aðgerðir heldur en fullorðið fé. Ég er alveg viss um, að það vakti fyrir Dýraverndunarfélaginu að varðveita ungu skepnurnar fyrir þessum sársauka, engu síður en þær eldri. Svo mætti og virðast, að eldri skepnurnar hafi fullt eins mikla herkju til þess að þola sársauka og þjáningar eins og yngri og veikgerðari dýrin. Ég get því ekki fellt mig við brtt. og greiði atkv. á móti henni.