18.04.1933
Efri deild: 50. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 205 í C-deild Alþingistíðinda. (3477)
124. mál, geldingu hesta og nauta
Jón Jónsson:
Hún er náttúrlega mjög virðingarverð þessi mannúð, sem kemur fram hjá þessum tveim hv. þm., en ég verð að segja það um hv. þm. Snæf., að mér finnst það einkennilegt, að hann skuli allt í einu nú fyllast þessari miklu mannúð, að vilja ganga lengra en n. í Nd., sem hefir borið þetta mál fyrir brjósti. Hann hefir nú setið um 20 ár á þingi, og maður hefir ekki orðið var við, að hann hafi borið svo mikla mannúð í brjósti í þessu tilliti, að hann þurfi nú að ganga svo langt að leggja svona mikinn skatt á bændastéttina, þegar hún á við svo mikla erfiðleika að stríða. Því þetta er ekki svo lítill skattur, þegar miðað er við það verð, sem fæst fyrir afurðir bænda. Ég held, að þessi mannúð, sem kemur fram hjá þessum tveim hv. þm., stafi af misskilningi og af því, að þeir þekkja ekki eins vel og við sveitamennirnir, hvernig þetta gengur til. Ég hefi oft séð lömb gelt og einnig verið við það sjálfur, og það hefir alltaf farið vel. Yfirleitt skiptir það minnstu, hvernig svæft er eða deyft, heldur að sæmilegir menn starfi að þessu, sem fara þriflega að verki. Ég verð því, þrátt fyrir ummæli þessara hv. þm., að vænta þess, að d. sjái sér fært að fylgja brtt. minni.