18.04.1933
Efri deild: 50. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 208 í C-deild Alþingistíðinda. (3484)
124. mál, geldingu hesta og nauta
Jón Jónsson:
Ég veit ekki betur en að það sé skoðun allra þeirra, sem mest hafa fengizt við sölu á frosnu kjöti til Englands, og þá sérstaklega þess manns, sem mest hefir kynnt sér frystingu kjöts og hvernig Ástralíumenn hafa skipað þessum málum, að mikið sé heppilegra fyrir brezka markaðinn, að hrútlömb séu gelt. Það hefir verið gert talsvert að því á Norðurlandi og fer mikið í vöxt, og það er þeirra skoðun, að við það verði vaxtarlag og holdafar miklu betra. Þetta, sem hér er um að ræða, getur því skipt miklu máli.
Ég vil þakka hv. þm. Hafnf., sem mun hafa verið einn af flm. brtt., sem var samþ. hér við 2. umr., fyrir þá sanngirni, sem hann vill sýna í þessu máli. Hann óskaði eftir að heyra álit n., og hefir hann nú heyrt, hvað hv. 2. þm. N.-M. sagði, og ég og hv. 4. landsk. leggjum mesta kapp á, að þessi brtt. verði samþ.
Ég býst við, að það geti orðið minni mannúð en til er ætlazt, að halda fast á móti þessari breyt., því að það getur orðið til þess, að frv. dagi uppi, og er þá verr farið en heima setið fyrir þessa hv. þm.