09.03.1933
Efri deild: 20. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2230 í B-deild Alþingistíðinda. (3499)

77. mál, virkjun Sogsins

Jón Baldvinsson:

Þetta frv. er, eins og hv. flm. sagði, gamall kunningi hér á þingi. Þessi hugmynd, að virkja Sogið, hefir átt miklum vinsældum að fagna hér í Rvík. Það er því skiljanlegt, að þaðan komi till. um, að þeirri hugmynd verði komið í framkvæmd.

Það leit út fyrir um tíma, að enginn ágreiningur væri um það í bænum, að nú þegar væri farið að virkja Sogið, a. m. k. ekki hjá meiri hl. bæjarstj. Þó er það vitanlegt, að fyrrv. borgarstjóri, Knútur Zimsen, áleit, að ekki væri rétt að byrja nú á virkjun Sogsins, heldur ætti málið nokkurn tíma fyrir sér, þangað til rétt væri að ráðast í að framkvæma virkjunina. Það hefir talsvert verið unnið að undirbúningi þessa máls, og þá sérstaklega af einstökum mönnum. Það hefir farið fram ný athugun á því, hvar bezt væri að virkja Sogið, og það, sem ég vil láta koma fram í þessu frv., er það, að virkjunin sé ekki bundin við neinn sérstakan stað. Hv. flm. sló upp á því við mig um daginn, að ég gerðist meðflm. þessa frv., en úr því varð ekki. Alþfl. hefir verið að útbúa frv. svipaðs eðlis og þetta að öðru leyti en því, að þar er virkjunin ekki bundin við neinn ákveðinn stað. Við viljum aðeins fastákveða, að Sogið skuli virkjað, en ekki binda það fast, hvar það verður gert. Staður til virkjunarinnar yrði þá valinn eftir á á þeim stað, sem hentugastur þætti að dómi sérfræðinga, og í samráði við bæjarstj. Rvíkur og ríkisstj.

Þær rannsóknir, sem Rvíkurbær hefir játið gera á Efra-Soginu, hafa verið framkvæmdar af Steingrími Jónssyni rafveitustjóra. Að þeim hefir verið fundið af ýmsum, og veit ég ekki, hvort það er með réttu eða ekki. Gerðar hafa verið nýjar till. um virkjun neðar við Sogið, einnig af sérfræðingum, en að þeim hefir einnig verið fundið. Og þegar svona stendur á, þá er erfitt fyrir leikmenn að sjá, hver þessara sérfræðinga hefir rétt fyrir sér. Þess vegna vil ég, að í frv. sem þessu sé virkjunin ekki bundin við tiltekinn stað, heldur vil ég taka þann stað, sem að vel athuguðu máli virðist hentugastur. En um það, hvernig væri hægt að fá þá vitneskju, skal ég ekki segja að svo stöddu, en mér fyndist ekki óráðlegt, að Rvíkurbær og ríkið fengi einhverja af Norðurlandaríkisstj. til að benda á mann til að athuga þetta, svo að ekki væri hægt að segja, að neinir einstaklingahagsmunir réðu því, hvar Sogið væri virkjað. Ég bendi aðeins á þetta til athugunar, án þess að ég ætli að þessu sinni að gera nokkra till. þar um.

Þá er annað, sem mér hefir virzt vera deilumál í bænum og bæjarstj. Rvíkur hefir ekki heldur komið saman um, og það er, hve lengi eigi að halda áfram með virkjun Elliðaánna. Hv. 1. landsk. hefir nú haldið fram þeirri skoðun, sem ég býst við, að flokksmenn hans í bæjarstj. fylgi, að rétt sé að virkja Elliðaárnar til fulls, og með því eigi að fást 3000 hestöfl í viðbót við það, sem nú er, og alls fáist þá úr Elliðaánum 7000—7300 hestöfl. Þessari framhaldsvirkjun hefir verið fært það til ágætis, að þarna fáist ódýrt rafmagn. Mér hefir nú skilizt svo, að síðustu hestöflin séu því aðeins ódýr, að áður hafi verið lagt í mikinn kostnað við þá fyrri virkjun, sem komi svo að notum við þá síðari virkjun. Það væri því sennilega réttast við slíkan útreikning að taka meðalverð hestaflanna, en taka ekki síðustu hestöflin og segja, að þau hafi kostað svo og svo lítið, sem kemur þá bara af því, að með hinni fyrri virkjun hefir sú síðari verið undirbúin. Það sýnist a. m. k. frá leikmanna sjónarmiði, að ólíku sé saman að jafna að virkja Sogið, þetta mikla vatnsfall, sem hefir sjálfgerðan vatnsgeymi þar sem Þingvallavatn er, eða Elliðaárnar, þessa litlu sprænu, sem a. m. k. leikmönnum finnst ákaflega hæpið, að öruggt sé að byggja á. Sérfræðingar hafa líka verið ólíkrar skoðunar í því máli. Lengi vel var það, að sérfræðingar — ég veit ekki hvort það voru vatnsvirkjunarfræðingar — álitu, að ekkert þýddi að virkja Elliðaárnar. Einn rafmagnsfræðingur hér, en þó ekki fullkominn sérfræðingur á þessu sviði, hélt, að þarna mætti fá 600 hestafla raforku, en síðan eru milli 20 og 30 ár. En nú halda menn, að þarna megi fá talsverða raforku, og kann að vera, að þessi skoðanabreyting stafi af því, að menn kunna nú betur en áður að hagnýta sér vatnsorkuna, eða þá af því, að þeir, sem áður gerðu þarna athuganir, voru ekki vatnsvirkjafræðingar, en þarna er þó talið, að því aðeins megi fá rafmagn, að það verði dýrt, og einnig hitt, að alltaf verði tilfinnanlegur rafmagnsskortur, þó að þessi viðbótarvirkjun verði framkvæmd, jafnvel þótt notkuninni verði haldið niðri með háu verði. Áreiðanlegt er, að rafmagn lækkaði mikið í verði, ef tekið væri til notkunar miklu meira afl en Elliðaárnar geta látið í té. Einn allra stærsti rafmagnsnotandi hér í bænum, sænska frystihúsið, getur ekki, að því er mér hefir skilizt, fengið orku frá stöðinni hér í Rvík, og iðnaðinn vantar tilfinnanlega meiri og ódýrari orku. Þetta gerir það að verkum, að mér virðist nauðsynlegt að ráðast sem allra fyrst í virkjun Sogsins. Það er sameiginlegt hagsmunamál allra bæjarbúa. Með því móti geta menn fengið mjög mikla raforku til sinna þarfa, og vatnsvirkjafræðingunum kemur saman um, að raforku úr Soginu verði hægt að selja talsvert ódýrara en rafmagnið frá stöðinni við Elliðaárnar. Hér er því ekki eftir neinu að bíða.

Mér hefir skilizt af því, sem fram hefir komið á bæjarstjórnarfundi, að hv. 1. landsk. búist ekki við, að hægt verði að virkja Sogið fyrr en eftir 9—10 ár, en ég gæti nú ímyndað mér, að á þeim tíma yrði rafmagnsskortur í Rvík alltilfinnanlegur. Eins og áður hefir verið getið um, er rafmagnsþörf Rvíkur alltaf að vaxa, og þar sem raforka er nú af það skornum skammti, að draga verður úr notkuninni með háu verði, þá má nærri geta, hvernig það verður eftir mörg ár.

Annað er það líka, sem frá sjónarmiði leikmanna sýnist varhugavert við Elliðaárstöðina. Í skýrslu rafmagnsstjóra um þetta mál er sagt frá því, að vélarnar við Elliðaárstöðina séu látnar vinna meira en þær eru stimplaðar fyrir. Ég hefi ekki nóga þekkingu á þessum málum til að vita, hvort það hefir skaðvæn áhrif á þessar vélar, að þær séu að staðaldri látnar ganga með meira krafti en þær eru gefnar upp fyrir. Allir vita, að slíkt hefir mjög skaðleg áhrif á aðrar vélar t. d. mótorvélar, svo að þær endast miklu verr, ef meira er reynt á þær en þær eru gefnar upp fyrir. Frá leikmannssjónarmiði hlýtur þetta einnig að sýnast athugavert að því er rafmagnsvélarnar snertir, allt þangað til þeir, sem sérþekkingu hafa í þeim málum, upplýsa, að þetta sé vélunum ekki skaðlegt.

Að öllu þessu athuguðu sýnist mér, að nú beri að hrinda virkjun Sogsins í framkvæmd sem allra fyrst, og ég vil beina þeirri áskorun til hv. 1. landsk., sem er líka borgarstjóri Rvíkur, að hann beiti sér fyrir því, að nú þegar verði byrjað á þessu verki, svo að við getum eftir 3—4 ár fengið ódýrara rafmagn en nú er hægt að fá og svo mikið, að ekki þurfi að óttast þar neinn skort.

Ég skal taka það fram, að í ræðu hv. 1. landsk. kom ekkert það fram, sem benti í þá átt, að hann vildi ekki byrja undir eins á virkjun Sogsins, en þetta, sem ég hefi nú sagt, kom ég með af því, að mér hefir fundizt, að sumir flokksmenn hans í bæjarstj. væru á því að láta þetta mál bíða fyrst um sinn, en það er það, sem aðalágreiningurinn er um á milli Alþflmanna og sjálfstæðismanna í bæjarstj.

Hv. flm. sagði, að Elliðaárnar fullnægðu þeirri aukningu, sem þörf væri á næstu 4 ár, meðan verið væri að reisa stöðina við Sogið. Ég held, að Elliðaárstöðvarnar fullnægi ekki þörfinni, en það verður að bjargast við það, en það er auðsætt, að frá Elliðaánum fáum við ekki nóg rafmagn, eins og sjá má af því, að það verður að halda rafmagnsnotkuninni niðri með háu verði og ýmsum takmörkunum.

Það er alveg rétt, að virkjun Sogsins byggist á notkun rafmagnsins í Rvík og Hafnarfirði, sem hljóta að nota langmest af raforkunni. Þess vegna er það sjálfsagt, að Rvíkurkaupstaður verður að virkja Sogið, annaðhvort sjálfur eða í samráði og félagsskap við ríkið. Það gæti reyndar komið til mála, að ríkið eitt virkjaði Sogið, en þá yrðu þar á undan að ganga samningar um það, að Rvík fengi keypt við kostnaðarverði það rafmagn, sem hún þyrfti á að halda, en þetta er ekkert aðalatriði. Það, sem mest er um vert, er það, að á þessu verði byrjað nú þegar. Framkvæmd þessa verks skapar líka miklar atvinnubætur, og í sambandi við það sparaðist þá mikið af því fé, sem ríkið verður nú að leggja fram til að halda uppi atvinnubótum nú á þessum þrengingatímum.

Ég vona því, að Alþingi fallist á það, sem er höfuðatriði þessa frv., þó að ég sé ekki samþykkur einstökum atriðum þess — og að ríkið taki á sig ábyrgð á því fé, sem þarf til fyrirtækisins, því að gera má ráð fyrir, að annars fáist ekki lán til þess eins og nú standa sakir.

Það er að því leyti afarheppilegt fyrir ríkið að gera þetta nú, að þá er hægt að láta ýmsa þá staði fá rafmagn, sem ríkið hefði ekki getað komizt undan að sjá fyrir raforku fyrr eða síðar, en það hefði vitanlega orðið til miklu tilfinnanlegri útgjaldaauka fyrir ríkið, ef ekki hefði verið hægt að gera það í sambandi við þessa virkjun Sogsins. Hinu hefi ég ekki trú á, að sveitabæir geti orðið þessa rafmagns aðnjótandi, nema þá þeir, sem yrðu alveg á leiðinni þar sem þessar raftaugar liggja um. Þessar leiðslur eru svo dýrar, að það er ekki vert að vera að gylla þetta fyrir sér með því, að hver sveitabær í þessum héruðum geti orðið rafmagnsins aðnjótandi, en virkjunin er auðvitað jafnnauðsynleg fyrir því.

Ég og flokksmenn mínir erum ekki búnir að ráða það við okkur, hvort við berum fram sérstakt frv., þar sem virkjun Sogsins er ekki bundin við neinn ákveðin stað, eða berum fram brtt. við þetta frv., sem ef til vill væri það einfaldasta, en það munum við ráða við okkur mjög bráðlega.