09.03.1933
Efri deild: 20. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2237 í B-deild Alþingistíðinda. (3501)

77. mál, virkjun Sogsins

Jón Baldvinsson:

Ég verð að játa, að bæði þetta frv., sem hv. 1. landsk. og hv. 1. þm. Reykv. flytja, og framsaga hv. 1. landsk. bendir á þá átt, að hann óski þess nú að virkja Sogið sem fyrst. En þetta er í mótsögn við þá málafærslu, sem borgarstjórinn í Rvík hafði á síðasta bæjarstjórnarfundi, sem ég var staddur á nýlega; og það er enginn misskilningur hjá mér, að það hafi verið meiningin í ræðu borgarstjórans á þeim fundi, að Rvík ætti að virkja og nota til fulls Elliðaárnar áður en ráðizt væri í virkjun Sogsins. Og ég get fullvissað hv. 1. landsk. um það, að fleiri en ég hafa skilið ræðu hans á þann veg. Það er nú svo með Sogsmálið, að bæjarstjórnarmeirihlutinn hefir jafnan hindrað, að nokkrar framkvæmdir yrðu gerðar í því máli. Við þetta átti ég með orðum mínum um ágreining þann, sem kom fram í ræðu borgarstjórans á umræddum bæjarstjórnarfundi. En sé það svo, að hv. 1. landsk. óski nú, að þegar verði gengið til virkjunar Sogsins, þá skulum við sleppa þeim skoðanamun, sem hér hefir verið talað um. Það er skylt, að við Alþflmenn stöndum með þessu máli, og það engu síður, þótt sjálfstæðismenn verði okkur nú sammála um það. Það ætti einungis að tryggja greiðari framgang málsins, að þessir tveir flokkar sameinast um það, sérstaklega þar sem sjálfstæðismenn eiga nokkur ítök í ríkisstj. og hafa nú samstarf við framsóknarmenn, en þeir hafa stundum reynzt erfiðir í þessu sjálfsagða máli, sem ekki einungis er nauðsynjamál Rvíkurbæjar, heldur einnig margra annara staða, sem myndu njóta virkjunar Sogsins. — Það skal ekki standa á mér að gleyma fyrri ágreiningi um málið og vinna að því, að á því fáist sem fyrst heppileg lausn. Þykir mér vænt um, að hv. flm. hefir lýst yfir því, að hann muni taka til greina aths. mína um að hafa ekki virkjunarstaðinn fastbundinn í frv., því að ég álít í alla staði heppilegra að hafa slíkt ekki fastákveðið í l.