03.05.1933
Efri deild: 62. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2244 í B-deild Alþingistíðinda. (3514)

77. mál, virkjun Sogsins

Jón Baldvinsson:

Skömmu eftir að frv. á þskj. 103 kom fram, bar ég fram brtt. þær, sem um getur á þskj. 242. Þessar brtt. bar ég fram af því, að mér þótti eins og þá var komið orðalag frv. of bundið, þar sem virkjunin var eingöngu miðuð við Efra-Sogið, því að fleiri uppástungur, sem komið gætu til greina, lágu fyrir. Ég vildi þá ekki og vil ekki enn leggja neinn dóm á það, hvar hentugast væri að virkja Sogið fyrir þau héruð, sem raforkunnar eiga að njóta. Ég vil vona, að þeirri rannsókn, sem staðið hefir yfir í fjöldamörg ár, sé nú senn lokið. Því er ekki að leyna, að í meiri hl. bæjarstjórnar Rvíkur hefir verið uppi sú skoðun, að ekki væri rétt að byrja nú á virkjun Sogsins. Það hefir að vísu verið samþ. í bæjarstj. ýmislegt, sem benti til þess, að bæjarstj. vildi nú þegar láta hefja verkið, en það hefir alltaf tafizt einhvernveginn, þannig, að enn hefir ekkert orðið úr framkvæmdum, og er það mikið að kenna tómlæti Alþingis um að sinna þessu nauðsynjamáli, því að það er öllum þeim ljóst, sem nokkuð hafa kynnt sér þetta mál, að ríkissjóði stafar af því engin fjárhagsleg áhætta. Raforka er ein af þeim nauðsynjum, sem menn hvorki geta né vilja neita sér um og kaupa hana því alveg jöfnum höndum og þeir kaupa sér fæði og klæði. Þess vegna eru rafveitur, þar sem skynsamlega er til þeirra stofnað, taldar einhver þau öruggustu fyrirtæki, sem til eru.

Það er því þetta, sem gerir mér það alveg óskiljanlegt, að Alþingi skuli svo lengi hafa staðið á móti því, að Rvíkurbæ yrði veitt þessi heimild. Ég get þó ekki verið svo ósanngjarn að viðurkenna ekki, að þessi tregða Alþingis er að nokkru leyti því að kenna, að í bæjarstj. hefir að undanförnu verið mikil andstaða gegn virkjun Sogsins. Ég ímynda mér, að ef bæjarstj. hefði með einbeitni ýtt undir málið, þá væri það nú lengra komið en nú er.

Það er út af þessu, sem nokkrir áhugasamir menn mynduðu félag til að reyna að flýta fyrir málinu og athuga, hvort ekki væri eitthvert seinlæti í þessum rannsóknum og hvort ekki mætti flýta fyrir málinu með því að finna nýjar leiðir. Það má segja, að starf þessa félags hafi orðið til þess, að fram kom tilboð um, að sérstöku félagi yrði veitt sérleyfi til virkjunarinnar og það seldi svo bænum rafmagn, svo sem hv. þdm. er kunnugt. En um það var bæjarstj. sammála, að þessu tilboði skyldi hafnað, enda er það öllum ljóst, að ef félag einstakra manna getur gert þetta, þá ætti það engu síður að vera arðvænlegt fyrir bæinn eða ríkið.

Málið er nú komið á þann rekspöl, að rafmagnsstjóri Rvíkur hefir farið til útlanda til þess að fá sérfræðinga til að dæma um áætlanir þær, sem hafa verið gerðar um virkjun Sogsins. Ég hefi heyrt undir væng, að þessar rannsóknir muni taka tíma, sem frá mínu leikmannssjónarmiði er afarlangur. Mér er sem sé sagt, að þessar rannsóknir muni standa yfir allt þetta ár. Þessir menn eiga að koma hingað í næstu viku, svo eiga þeir sennilega að fara á staðinn, athuga alla möguleika og öll tilboð, fara síðan með öll plöggin til sérfræðinga erlendis og leggja málið undir þeirra álit. Þetta allt hlýtur að taka svo langan tíma, að það er óskiljanlegt hverjum leikmanni, eftir allar þær rannsóknir, sem fram hafa farið um virkjun Sogsins. Mér virðist, að heimta verði af þessum sérfræðingum, að þeir skili álitinu strax. Ef ekki verður ýtt þannig á eftir málinu, getur rannsóknin staðið yfir í ein 50 ár, því að það er alltaf hægt að fá sérfræðinga fyrir borgun til að gera nýjar og nýjar athuganir og rannsaka nýjar leiðir, og þær rannsóknir geta haldið áfram meðan bærinn eða ríkið fæst til að greiða fé fyrir þær. En ég tel fullvíst, að þeim mætti ljúka af á fáeinum mánuðum, ekki sízt þegar málið er nú þegar svo mikið rannsakað sem nú er orðið. Það ríkir sá ótti í huga mínum, að flokksmenn Sjálfstfl. í bæjarstj. hafi ekki svo mikinn áhuga fyrir því, að byrjað verði á þessu verki undir eins í sumar. Það er og kunnugt, að bæjarstjórnarkosningar eiga að fara fram næsta vetur, og verði ekki lokið við rannsóknina nú bráðlega, má búast við, að ekkert verði gert fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í janúar 1934. Þá er hægt að lifa á því við slíkar kosningar, að verið sé að rannsaka málið og hægt að fara að byrja. En síðan má slá málinu á frest, ef þeir fá meiri hl., sem ekki hafa áhuga fyrir virkjun Sogsins.

Það verður ekki um það deilt, að knýjandi nauðsyn er til að byrja á virkjuninni sem allra fyrst. Rvík er mikil þörf á rafmagni. Hér er mikill iðnaður og stórar verksmiðjur, sem þurfa mikið rafmagn, eins og t. d. sænska íshúsið, sem notar ekki raforku frá rafmagnsveitu Rvíkur, og t. d. hjá vélsmiðjunum er raforkan nú mjög dýr, og er það mjög tilfinnanlegt fyrir þær, þar sem þær þurfa svo mjög á raforku að halda. Það er því stórkostlegt tjón fyrir iðnaðinn í Rvík að geta ekki komið þessu máli í framkvæmd árinu fyrr.

Ég tek undir þau orð hv. 1. landsk., að þetta sé stærsta framfaramál suðvesturhluta landsins. En því þá ekki að taka svo á þessu máli nú, að við getum hafizt handa nú á þessu, sumri? Ég veit, að það hefði mikla þýðingu fyrir framgang þessa máls, ef borgarstjóri, sem einnig er verkfræðingur, skýrði frá því, að ekkert væri því til fyrirstöðu að því er rannsóknirnar snertir, að hafizt væri handa nú á þessu sumri. Það hefði mjög mikla þýðingu fyrir málið.

Alþýðufl. hefir litið svo á bæði í bæjarstj. og á Alþingi, að virkjun Sogsins ætti að vera í höndum stærstu notendanna, og þá fyrst og fremst Rvíkur, en ef svo færi, að hin stóru bæjarfélög, Rvík og Hafnarfjörður, sæju sér það ekki fært, þá ætti ríkið að koma til skjalanna að virkja Sogið, og þá yrðu að gerast samningar um sölu orkunnar til þessara kaupstaða. Þess vegna hefi ég gert drög að brtt. við þetta frv. frekar en þær, sem ræðir um á þskj. 242. Ég hefi ekki viljað bera þær fram enn, því að ég vildi fyrst vita, hvernig tekið yrði í málið við 2. umr. Þessar brtt. fara í þá átt, að stj. verði heimilað að byrja á virkjun Sogsins þegar á þessu sumri, t. d. 1. eða 15. júlí, ef bæjarstj. Rvíkur er þá ekki tilbúin að byrja á virkjuninni. Ég hefði þá viljað láta þessa heimild ríkinu til handa koma sem viðbótargr. eða nýjan kafla í frv.

Ég get ekki heldur skilið annað en að stj. ætti að vera annt um, að þetta mál gengi fram, og það sem fyrst. Þetta er, eins og áður hefir verið tekið fram, eitt hið mesta þjóðþrifamál, og þá ætti stj. ekki síður að vera umhugað, að byrjað væri á verkinu einmitt nú, vegna þess atvinnuleysis, sem nú er hér á landi. Yrði hafizt handa með virkjunina á þessu sumri, ætti stj. að sparast að leggja fram nokkuð af því fé, sem útlit er fyrir, að leggja verði fram til atvinnubótavinnu. Þetta tvennt mundi því vinnast: Meiri vinna fyrir verkalýðinn og sparnaður fyrir ríkið.

Ég hefði því viljað fá að heyra það t. d. frá hv. 1. landsk., að rannsókn málsins dragist ekki langt fram á þetta ár, svo að það verði ekki notað sem ástæða á móti þessari ábyrgðarheimild, að málið mætti eins bíða til næsta þings, því að Rvíkurbær verði ekki tilbúinn að byrja á verkinu á þessu ári.

Ég er hræddur um, að það, sem komið hefir fram í skrifum um þetta mál hjá rafmagnsstjóra Rvíkur, og jafnvel hv. 1. landsk. líka, spilli fyrir fljótum framgangi málsins, þar sem talað var um, að halda ætti áfram að virkja Elliðaárnar, en ekki byrja á virkjun Sogsins fyrr en eftir 10 ár. Þess hefir einnig verið getið í þessum skrifum, að rafmagnsveitan væri svo vel stæð fjárhagslega, að eftir þessi 10 ár yrði hún búin að greiða allar skuldir sínar og gæti þá ráðizt sjálf í þessa virkjun án ábyrgðar ríkisins. En þessi dráttur þýddi það, að Rvík yrði allan þennan tíma í sama rafmagnssvelti og hún er nú. Þetta þýddi það, að bæjarbúar og iðnaðarfyrirtæki gætu ekki átt von á að fá aukna raforku eða lækkun á rafmagnsverðinu.

Eins og ég tók fram áðan, álít ég þetta svo mikið stórmál, að það megi ekki dragast lengur að byrja á framkvæmd þess. En það er einhver tvískinnungur í þessu máli hjá ýmsum fulltrúum sjálfstæðismanna. Málinu hefir ekki verið fylgt fram með nógu mikilli einbeitni í bæjarstj. Rvíkur, sem mestra hagsmuna hefir að gæta í þessu máli.