24.03.1933
Efri deild: 33. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 212 í C-deild Alþingistíðinda. (3526)

123. mál, lýðskóla með skylduvinnu nemenda

Flm. (Guðrún Lárusdóttir):

Þetta frv. er ekki nýr gestur hér á Alþingi. Það hefir legið fyrir hverju þingi allt frá 1929, og hefir allmikið verið um það rætt. Það væri því að bera í bakkafullan lækinn að fara að halda langa framsöguræðu fyrir því nú. Eins og kunnugt er, þá er það samið og undirbúið af Björgvin Vigfússyni sýslumanni og flutt hér fyrir eindregin tilmæli hans. Hann hefir óbifandi trú á því, að þetta skólafyrirkomulag megi verða að miklu gagni, og virðist því ekki nema rétt, að sú trú hans megi fá að sýna sig í verkinu, eins og talið er nauðsynlegt um alla trú.

Í frv. er lagt inn á nýjar brautir í skólamálum. Það er sprottið upp af mikilli hugsun um þessi mál. Eins og kunnugt er, þá stóðu fyrir nokkrum árum allmiklar deilur um héraðsskólamál austursýslnanna, Árnes- og Rangárvallasýslu. Varð endir þeirrar deilu sá, sem menn vita, að skólinn var byggður á Laugarvatni. Töldu þá ýmsir, að enn væri óleyst héraðsskólamál Rangárvallasýslu, og voru ráðagerðir manna á ýmsa vegu um lausn þess máls. Ávöxturinn af þeim ráðagerðum er svo frv. þetta, þó í nýrri mynd sé. Aðaltilgangur frv. er að auka almenna lýðmenntun. Að konur eru útilokaðar frá skólum, sem starfa kunna með þessu fyrirkomulagi, er eins og segir í grg. sakir þess, að hyggilegra sé, að reynsla fáist um skóla þessa, áður en þeim sé gefinn kostur á að sækja þá.

Hvað snertir þá hlið þessa máls, sem snýr að ríkissjóði, þá er hún með öllu hættulaus fyrir hann; þar eru sett svo þröng takmörk. Sama máli gegnir um sýslufélögin og sýslubúa. Þau hafa alveg frjálsan rétt til þess að hafna þessum skólum, ef þeim sýnist svo.

Eins og ég þegar hefi tekið fram, þá hefir mál þetta verið þrautrætt áður hér í þinginu, taldir fram kostir þess og lestir. Skal ég því ekkert endurtaka af því, sem um það hefir verið sagt, en ég vil benda hv. þm. á að lesa grg. frv., því að þar er saga þess rakin. Vænti ég svo, að þeir sýni því þá velvild að lofa því að ganga til 2. umr. og menntmn.