19.05.1933
Efri deild: 76. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 214 í C-deild Alþingistíðinda. (3529)

123. mál, lýðskóla með skylduvinnu nemenda

Frsm. (Guðrún Lárusdóttir):

Ég ætla ekki að tala langt mál um þetta frv., svo mikið hefir það verið rætt síðan 1929. Það hefir ekki átt miklum vinsældum að fagna og hefir heldur ekki náð samþykki. Síðasta ferð þess varð nú til menntmn. Ed. Hefir nú verið gefið út nál. ásamt umsögn fræðslumálastjóra. Aðalhugmynd frv. er góð og merk. Er það leitt, að frv. skyldi ekki fá að reyna sig neitt, því að það felur í sér möguleika til framfara á þessu sviði. Hnígur hugmyndin í átt þeirrar skoðunar, sem nú er mjög að ryðja sér til rúms annarsstaðar, og má þar til nefna Þýzkaland. Hefi ég lesið og þýtt kafla úr ritgerð eftir þýzkan lýðháskólakennara, sem ég vildi, með leyfi hæstv. forseta, mega lesa hér upp. Greinin var rituð áður en Hitlersstjórnin tók við völdum:

„Þýzkaland er sem stendur eina landið í heiminum, sem hefir komið á hjá sér sjálfboðavinnu í uppeldisskyni. Í júlí 1931 var gefin út reglugerð um þessa starfsemi, en hún var þá þegar hafin og átti sér mikið fylgi um allt land. Það er komizt þannig að orði í reglugerðinni:

Fyrirkomulag hinnar frjálsu sjálfboðastarfsemi gefur æskulýð Þýzkalands tækifæri til að inna stórkostlega þýðingarmikið starf af hendi í þarfir alþjóðar, jafnframt því að þroska og efla eigin hæfileika til líkama og sálar.

Þessi sjálfboðavinnuhreyfing hefir eflzt mjög mikið, og við síðustu áramót tóku virkan þátt í henni um 280 þús. menn og konur. Svo að segja allir lýðskólar í Þýzkalandi, mikill hluti kvöldskóla og félög þau, sem starfa að menntun alþýðu, taka virkan þátt í þessari sjálfboðavinnu. Skólarnir skipta nemendum sínum og félögum í nemendadeildir, sem vinna að ýmiskonar störfum vissan hluta dagsins, svo sem garðyrkju, jarðyrkju, trjáyrkju, byggingum, íþróttavallagerð o. fl.“.

Ég þýddi þetta að gamni mínu, því að mér virtist hér vera stefnt í svipaða átt og í frv., í því að sameina vinnu og nám á hentugan hátt. Þó að hér greini nokkuð á um framkvæmdirnar, er þó í frv. nokkur hluti, sem athuga ætti nánar. Til þess að þurfa ekki að tefja mikið fyrir hv. d. með löngu máli um frv., sem því miður mun ekki eiga sér lífsvon hér í hv. d., hefi ég hugsað mér að bera fram svofellda rökstudda dagskrá:

„Í því trausti, að ríkisstj. láti íhuga þetta mál í sambandi við athugun þá á alþýðufræðslulöggjöfinni, sem menntmn. Nd. hefir lagt til, að gerð verði, tekur d. fyrir næsta mál á dagskrá“.