24.03.1933
Efri deild: 33. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 227 í C-deild Alþingistíðinda. (3554)

36. mál, útflutninsgjald af landbúnaðarafurðum

Jón Baldvinsson:

Ég vil láta það álit í ljós, að ekki sé rétt að afgr. þetta mál sérstakt, heldur láta það bíða þangað til hægt er að taka það með öðrum málum, er miða að úrlausn á vandræðum þeim, er bændur eiga við að búa. Vil ég því mælast til þess við hv. flm. og forseta, að málið verði tekið af dagskrá og komi ekki fyrir aftur, nema í sambandi við önnur mál, er ræða um, hvernig létta skuli undir með bændum. Á slíkum till. mun vera von frá búnaðarþinginu.

Að öðru leyti skal ég játa, að flm. rökstyður mál sitt vel. Rétt mun það vera, að útflutningsgjaldið komi harðast niður á nokkrum hluta bænda, sem eigi bágt með að greiða það. En hér er ekki um mjög mikla fjárhæð að ræða. - Legg ég þá til, að málinu verði skotið á frest þar til er fleiri till. um lausn á erfiðleikum bænda geta orðið því samferða.