04.05.1933
Efri deild: 63. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2252 í B-deild Alþingistíðinda. (3566)

77. mál, virkjun Sogsins

Frsm. minni hl. (Jón Þorláksson) [óyfirl.]:

Ég var að hinkra við eftir því, að hv. frsm. meiri hl. tæki til máls, en úr því að hann finnur ekki ástæðu til þess, þá vildi ég gjarnan segja nokkur orð.

Ég þarf í raun og veru ekki mikið að segja út af ræðu hv. 2. landsk. Hann veit það ákaflega vel, að okkur skilur ekkert á í þessu máli. En það hefir nú verið svo, að flokkur hans hér í bænum hefir verið að reyna að nota þetta mál til þess að hafa eitthvað til að tala um fyrir kosningar. Sömuleiðis hefir hann verið að reyna að láta líta svo út, sem einhver skoðanamunur væri um málið, og hv. 2. landsk. þarf nú náttúrlega að reyna að halda uppi skildi fyrir flokksbræður sína í bænum hér í deildinni, sem tilraun til þess eingöngu að halda áfram samskonar tali hér.

En þó ég vilji nú ekki svara fyrir afstöðu hvers einstaks borgara í bænum að því er snertir þetta eða önnur mál, þá stend ég við það, sem ég sagði, að hv. 2. landsk. veit, að okkur skilur ekkert á um þetta mál, nema þá þegar til þess kemur, er hann segir, að hann sé í undirbúningi með nýjar till. í málinu, sem sé þær, að framkvæmd verði ríkisvirkjun á Soginu. Þar greinir okkur á, og þetta atriði hefir sérstaklega verið rætt nýlega í bæjarstj. Rvíkur, því að það var einn af flokksbræðrum hv. 2. landsk. sem hreyfði þar samskonar till., en við þær umr. kom það allgreinilega í ljós, að bæjarstj. Rvíkur óskar ekki eftir því, að neinn annar en bæjarfélagið verði eigandi að þeim hluta Sogsvirkjunarinnar, sem Rvíkurbær þarf að nota handa sjálfum sér. Bæjarstj. vill gjarnan ganga inn á að vera í samlögum við ríkið með þessa virkjun, þannig að ríkið sé eigandi að þeim hluta virkjunarinnar, sem aðrir en Rvíkingar þurfa að nota sér. En því er haldið föstu, að Rvíkurbær vilji eiga sinn hluta í virkjuninni. Og bæjarstj. vill heldur ekki ganga inn á, að ríkið sé eigandi þess hluta, svo ef hv. 2. landsk. er að undirbúa till. í þessa átt, þá er hann kominn inn á nýjan grundvöll, sem ég get ekki fylgt honum á, og flokksbræður hans í bæjarstj. mundu fylgja honum mjög nauðugir, ef þeir þá fengjust til þess. Hv. 2. landsk. vék annars mest að því í ræðu sinni, hverjar horfur mundu verða fyrir því, að hægt væri að byrja á framkvæmd þessa verks á yfirstandandi ári. Ég get í sjálfu sér ekki meira um það vitað en aðrir. Það var held ég nokkurnveginn samhuga álit bæjarstj., að eftir þennan útúrdúr, sem „h/f Sogsvirkjun“ gerði í málinu, að það hefði ekki haft neina aðra þýðingu en að tefja það a. m. k. um eitt ár, þá var ekki annars kostur en að láta fara fram nýja fullnaðarrannsókn.

Það var komið töluvert kapp í málið frá hálfu þeirra manna, sem stóðu að „h/f Sogsvirkjun“, og þessarar keppni kennir hér í þinginu, þar sem hér finnast í d. þm., sem vilja ganga það langt í erindrekstri fyrir þetta frv., að vilja kasta burt öllum uppástungum þessa frv. um að gera Sogsvirkjunina nothæfa fyrir aðra en Reykvíkinga. Þegar svona mikið kapp er komið í málið, og það frá hálfu þeirra manna, sem maður sízt skyldi ætla, að væru forvígismenn að því að útiloka aðra landshluta frá eðlilegri aðstöðu þeirra, þá er ekki að undra, þó að verið sé að taka málið upp til úrskurðar af nýju. Þetta hefir bæjarstj. Rvíkur séð, og varð sammála um það, að ekki yrði hjá þessu komizt. Fyrir mitt leyti álít ég þó ekki, að þessi nýja rannsókn hafi verið nauðsynleg vegna þess, að hinum tekniska undirbúningi málsins hafi verið svo áfátt, en sú nauðsyn var vegna þess, að þennan útúrdúr, sem upp hefir komið í málinu, er ekki hægt að kveða niður með öðru móti.

Ég hefi engin tök á því að gefa hv. 2. landsk. að svo komnu nokkrar upplýsingar um það, hve langan tíma þessir verkfræðingar þurfa til að sinna verkinu. Ég get ímyndað mér, að þeim sjálfum sé það ekki ljóst fyrr en eftir að þeir eru komnir hingað og búnir að athuga alla staðhætti. Ég get ekki búizt við, að þeir geti sagt um það fyrr, og því síður get ég sagt um það á þessu stigi málsins. En ég vil taka það fram, að mér er það alveg eins ljóst eins og honum, hversu æskilegt það væri, ef unnt væri nú að byrja á stórvirkjun sem þessari, meðan stendur yfir sú mikla kreppa og það atvinnuleysi, sem nú ber svo mikið á hér. Mér er þetta alveg eins ljóst og honum, en vilji hann sakast um það, að málið er ekki tilbúið til þessa, þá má hann ekki saka neina aðra um það en þá, sem hafa beint þessu máli út á þá göngubraut, sem tekur tíma að hverfa frá aftur.

Hv. 2. þm. S.-M., formanni þeirrar n., sem málið hafði til meðferðar, get ég sagt það, að náttúrlega verð ég að viðurkenna, að að forminu til hefir hann rétt fyrir sér, að undirbúningi málsins er ekki lokið. Og ég get ekki annað en viðurkennt, að þetta gefur honum átyllu en ekki ástæðu — til þess að bera fram frestunartill. sína.

Hv. þm. sagði það sjálfur, og lagði allmikla áherzlu á, að sem leikmaður treysti hann sér ekki til þess að dæma um ýms atriði þessa máls. En það er nú svo, að jafnvel þó að þetta mál hafi sína verklegu hlið, þá eru aðrar hliðar málsins, sem verður að krefjast af hv. þm., að þeir geri sjálfa sig dómbæra um. Og það, sem fyrst og fremst verður að krefjast af hv. þm., og það öllum jafnt, er, að þeir geri sig dómbæra um það, hvort þeir vilji styðja það mál, sem flutt er hér í öllum greinum þessa frv., nema 2. gr., að sú virkjun, sem ráðizt verður í með ríkisábyrgð, verði gerð þannig, bæði að því er snertir verklegan grundvöll og fjárhagslegan grundvöll, að héruðin á Suðvesturlandi fái aðstöðu til að njóta hennar til jafns við Rvík. Þetta er stjórnmálaatriði og undirstöðuatriði í þessu máli, sem enginn þm. getur komizt hjá að gera sér grein fyrir.

Það, sem er það sorglegasta í mínum augum við undirtektirnar undir þetta mál í n., er það, að meiri hl. hennar vill fleygja alveg í burt úr frv. öllum þeim ákvæðum, sem að því lúta að gera héruðunum utan Reykjavíkur hagstætt að nota þessa virkjun. Hér er ekki að tala um neitt tekniskt vandamál, þegar honum er sagt, að það þurfi 60 þús. v. spennu, en sú virkjun, sem þeir binda sig við, á ekki að hafa nema 35 þús. v. spennu. Þá er það nú á dögum ekki neitt sérfræðilegt atriði, að það er ekki hægt að komast af með svo lága spennu fyrir hin fjarlægu héruð, svo þau yrðu alveg útilokuð frá því að geta notið þessa. Ég veit ekki, hvaða skilning ég á að leggja í afstöðu þessara tveggja nm. Mér er hún svo alveg óskiljanleg.

Hv. 2. þm. S.-M. fann ástæðu til þess, eftir að hann hafði lýst því, hvað mikið sig skorti til þess að geta dæmt um þetta mál, að fara að gera upp á milli þeirra uppástungna um virkjun Sogsins, sem fyrir liggja, og það var þá þannig, að hann taldi frá sínu sjónarmiði, að sú síðari væri aðgengilegust og álitlegust. En ég var búinn að gera grein fyrir því, að þessi uppástunga er svo lítilfjörleg að öllu leyti, að þó að hún kannske gæti skilað nokkru rafmagni til Rvíkur, þá er alveg útilokað, að almenn þátttaka landshlutanna geti verið á henni byggð. Það þarf enga tekniska sérþekkingu til þess að skilja, að þetta er svona. Það þarf aðeins að líta á það, sem fram er tekið, og engum dettur í hug að mótmæla, að það er þessi munur á uppástungunum. Hv. þm. fór svo að reyna að finna þessu stoð með einskonar orðaleik. Hann sagðist ekki sjá neina ástæðu til að búa fyrirtækið svo út í byrjun, að öll héruð, sem talin eru upp í grg. við frv., gætu notfært sér það, en aðeins að sjá um, að enginn möguleiki sé útilokaður. En þetta er ekki annað en að segja sitt í hvoru orðinu.

Það er ekki hægt að búa orkuver út svo, að möguleikar fyrir fjarlægari héruð til að nota það séu ekki útilokaðir, nema að það sé búið svo út í byrjun, að fjarlægari héruðin geti notað það.

En að öðru leyti en þessu, sem ég nú hefi sagt, get ég vottað hv. 2. þm. S.-M. það, að hann hefir í raun og veru í n. tekið vinsamlega á þessu máli nú. En hann á aðeins eftir að stíga síðasta sporið, og það er að fá sig til að veita stj. þá heimild, sem nú er nauðsynleg til þess að fullnaðarundirbúningur á þessu máli komist í kring. Þá meina ég ekki aðeins verklegan undirbúning, heldur einnig fjárhagslegan fullnaðarundirbúning, þ. e. a. s. að útvega tilboð um fé til þess að framkvæma fyrirtækið. Það eru ekki líkur til, að það sé unnt að ganga frá undirbúningi á fjárhagshlið málsins fyrr en stj. er búin að fá heimild til þess að veita ábyrgð. Ég get ekki annað en óttast, að eins árs bið á veitingu ábyrgðarheimildar muni geta kostað eins árs bið á framkvæmd málsins.

Það er nú mismunandi, hvað fljótt og greiðlega gengur að útvega fé til stórfyrirtækja, jafnvel eftir að öll skilyrði eru fyrir hendi. Og enginn getur ábyrgzt, að ef ábyrgðarheimildin verður ekki veitt fyrr en seint á næsta þingi, við skulum segja í apríl eða maí næsta ár, að sú fjárútvegun gangi svo fljótt, að fært þyki að ráðast í framkvæmd fyrirtækisins á næsta sumri. Tíminn getur auðveldlega verið hlaupinn frá manni, þegar það er komið í kring að útvega féð, þannig að óhætt þyki að byrja. Ég er ekki að spá því, að svona muni fara, en bendi aðeins á það, að þetta getur auðveldlega kostað eins árs drátt á málinu, en ég yrði að telja það ákaflega óhentugt og mjög fjarri því að vera nokkur velgerningur við þetta mál og þjóðina í heild, eins og hv. 2. þm. S.-M. vildi vera játa, ef tækist að draga þetta mál svo, að hinar verklegu framkvæmdir koma ekki niður á þau atvinnuleysis- og kreppuár, sem nú ganga yfir, heldur kannske á næsta uppgangstímabil, þegar ekki er sérstök þörf á slíkri aukningu á atvinnu í landinu, og atvinnuvegunum kannske ekki neinn búbætir, að hún fari þá fram, en það er mögulegt, að þessi áframhaldandi dráttur verði til þess.

Það, sem hv. 2. þm. S.-M. sagði um ágreining þessa máls innan bæjarstj. Rvíkur, þarf ekki að fara út í. Ágreiningur um þetta mál er enginn innan bæjstj. Rvíkur, ef málið er tekið sem heild. Það getur verið, að ágreiningur sé um annað eins aukaatriði og það, hvort eigi að bæta við 2—3 þús. hestafla vélasamstæðu við stöðina við Elliðaárnar áður en byrjað er á virkjun Sogsins, eða hvort á að bíða eftir, að lokið verði virkjun Sogsins, en það er algert aukaatriði í þessu máli. Hitt er öllum ljóst, að þar sem búið er að gera mikil mannvirki til undirbúnings þessari virkjun, þá verður vélasamstæða við Elliðaárnar sett upp fyrr eða síðar. En það dregur ekki á nokkurn hátt úr nauðsyn Sogsvirkjunarinnar, því að þegar hún er komin á, verður þetta fyrst og fremst og aðallega varastöð við hliðina á Sogsstöðinni.

Ég vil svo að endingu aðeins leiða lítilsháttar rök að því, að sú hámarksupphæð fyrir ábyrgðinni, sem farið er fram á í frv., er ekki hærri en það, sem nú á yfirstandandi þingi alveg hiklaust er verið að veita öðrum landshlutum í samsvarandi tilgangi.

Ég sé í fjárlagafrv. eins og það nú liggur fyrir, að stungið er upp á heimild fyrir stj. að ábyrgjast allt að 600 þús. kr. lán fyrir Ísafjarðarkaupstað og Eyrarhrepp til rafmagnsvirkjunar, gegn þeim tryggingum, sem ríkisstj. tekur gildar. Þetta er hærri upphæð á mann, sem njóta þeirrar virkjunar, en 7 millj. eru á hvern mann, sem á að njóta Sogsvirkjunarinnar. Og það er þar að auki sá munur á, að hér í Rvík er fyrir blómlegt fyrirtæki í þessari grein, sem er búið að finna upp mikið af þeim markaði, sem á að bera virkjunina uppi.

Ég gæti nefnt fleiri dæmi, en ég mun láta þetta eina dæmi nægja til viðbótar því, sem áður hefir verið sagt um það, að það, sem hér er farið fram á, felur ekki í sér neina áhættu fyrir ríkissjóð og fer ekki að neinu leyti fram úr því, sem eðlilegt þykir, þegar verið er að ræða um samsvarandi ábyrgð fyrir aðra.