04.05.1933
Efri deild: 63. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2260 í B-deild Alþingistíðinda. (3568)

77. mál, virkjun Sogsins

Bjarni Snæbjörnsson:

Ég sagði við 1. umr., að ég vonaðist eftir, að þetta mál fengi góða afgreiðslu hér á þingi, þar sem fullt samkomulag hefir orðið um það milli sócíalista og sjálfstæðismanna í bæjarstj. Rvíkur. En eftir nál. meiri hl. að dæma ríkir enn sami andi í þeim herbúðum og 1931. Mér fannst það ekki fjarri sanni, er hv. 2. þm. S.-M. sagði, að Rvík hefði ekki gert annað með því að flytja frv. ár eftir ár en að berja höfðinu við steininn. Það kom ljóst fram í ræðu hv. 2. þm. S.-M. og nál. meiri hl., að þessi steinn er andúð Framsfl. Eftir skoðun hv. 2. þm. S.-M. á ekki að hefjast handa í málinu fyrr en allir eru orðnir sammála, bæði í bæjarstj. og á þingi. Eigi að taka þetta bókstaflega, er þetta sama og að segja, að málið eigi eða geti dregizt um aldur og æfi. Ég vona því, að þetta hafi ekki verið meining hv. 2. þm. S.-M.

Hv. þm. bar brigður á það, að héruðin utan Rvíkur væru fær um að taka á móti rafmagninu, ef fullkomin virkjun væri hafin. En sannleikurinn er sá, að virkjunin er ekki fyrst og fremst nauðsynleg vegna Rvíkur. Rvík kemst af með það rafmagn, er hún nú hefir, og það er margfalt ódýrara en í Hafnarfirði og verstöðvunum syðra, sem ég veit, að þessi hv. þm. er mér sammála um að hafa fulla þörf á ódýrara rafmagni, bæði til ljósa og smáiðnaðar. Ég vil því minna þá, sem kann að vera eitthvað í nöp við Rvík, á, að virkjunarinnar njóta fyrst og fremst aðrir en Rvíkingar, menn, sem nú verða að greiða meira fyrir rafmagn en þeir. Það hefir verið tekið fram af hv. 1. landsk., að sá undirbúningur, sem þarf til að veita rafmagninu utan Rvíkur, kostaði hærri spennu og þyrfti að gerast strax og virkjunin hefst og því sé fé til þess áætlað í frv.

Hv. 2. þm. S.-M. talaði um, að hann myndi hafa gert málinu greiða 1931. Ég held nú, að hann hafi fremur gert því stóran ógreiða. Hefði lánsheimildin verið veitt þá, væri byrjað á framkvæmdum nú og stórum minna atvinnuleysi en nú er. Sökum þess, að lánsheimildina vantaði, hefir ekki verið hægt að undirbúa málið. Bæjarstj. hefir vantreyst því að fá ríkisábyrgð, og það hefir lamað allar framkvæmdir.

Hv. 2. landsk. hefir greinilega sýnt fram á, og því ekki verið mótmælt, að þetta væri ekkert fjárhættuspil. Enda kemur það skýrt fram í öðrum undirbúningi málsins. Ég á hér við Sogsfélagið. Ég trúi því ekki, að það félag hafi ætlað að ráðast í virkjunina af tómum mannkærleika, heldur hreint og beint af því, að hún er gróðafyrirtæki.

Ég vona, að nægilega margir hv. þm. hafi þegar gert sér ljósa nauðsyn þessa máls fyrir Rvík og aðra landshluta og ríkissjóð í heild, og það fái góða og greiða afgreiðslu þegar á þessu þingi.