06.05.1933
Efri deild: 65. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2286 í B-deild Alþingistíðinda. (3587)

77. mál, virkjun Sogsins

Jón Þorláksson:

Ég vil taka undir með hv. 2. landsk., að mér finnst nær að taka þetta mál á dagskrá mánudagsins heldur en frv. um löggæzlu, sem var gerbreytt hér við 2. umr. í gær. Með því að hraða slíku máli svo mjög gefst ekki svigrúm til að bera fram brtt. við það, þannig að þær geti legið fyrir til útbýtingar fyrir fund á mánudag. Mér finnst nær, að hæstv. forseti gefi svigrúm til þess, að þær brtt. geti komið fram.