08.05.1933
Efri deild: 66. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2286 í B-deild Alþingistíðinda. (3591)
77. mál, virkjun Sogsins
Jón Baldvinsson:
Ég hafði ráðgert að bera fram brtt. við frv. þetta við þessa 3. umr., en hefi horfið frá því vegna þess, að verði frv. samþ. eins og það er nú, geri ég ekki ráð fyrir, að nokkrum haldist uppi að tefja framkvæmd þess, ef heimildin verður sett í lög. Það, sem fyrir mér vakti, var það, að hafizt yrði handa um framkvæmdir á næsta sumri, því að mér þykir sennilegt, að verði frv. samþ., þá hljóti bæjarfélagið að hefja allan nauðsynlegan undirbúning, sem 3. gr. gerir ráð fyrir. Myndi það verða mikil bót hvað atvinnu snertir.
Ég vænti þess jafnframt, að rannsókn þeirri, sem gera á í sumar, verði flýtt svo, að á sumarmánuðunum verði byrjað á vegagerðinni, sem nauðsynleg er vegna aðdráttanna. Af þessum ástæðum hefi ég fallið frá að bera fram brtt. nú, enda mun verða hægt að koma henni að í Nd., ef málið tekur einhverjum breytingum.
Hvað snertir brtt. um að lækka fjárhæðina, sem ríkissjóður má ábyrgjast, þá má vel vera, að 7 millj. sé ekki sú nákvæmlega rétta upphæð, sem nauðsynleg er, enda stendur í frv. allt að 7 millj. kr. En að ákveða lægri upphæð er sama og binda við einhvern sérstakan stað virkjun á Soginu, en það er einmitt það, sem ég vil koma í veg fyrir, að sé gert, en nú er það komið inn í frv., að virkjunin er ekki bundin við neinn sérstakan stað. Það má vel vera, að horfið verði að því ráði að virkja Sogið eins og hv. 1. landsk. hefir farið fram á í till. sínum, að rannsókn lokinni, en ennþá er ekkert það komið fram, sem bendir til, að svo verði gert. Ég tel því till. þessa til skemmdar á frv., ef hún verður samþ., og vil því mælast til, að hún verði felld, en frv. samþ. með brtt. hv. 1. landsk., sem er aðeins lagfæring á máli.