29.03.1933
Efri deild: 37. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 233 í C-deild Alþingistíðinda. (3618)

36. mál, útflutninsgjald af landbúnaðarafurðum

Forseti (GÓ):

Ég býst nú við, að ég haldi mínum siðum, hvað sem hinn virðulegi hv. 5. landsk. segir. Ég hefi haft þá reglu jafnan að heimta, að þm. tilgreindu ástæðu, ef ég sá, að það hafði áhrif á afgreiðslu mála, að þeir greiddu ekki atkv. Annars vil ég segja það, að mér finnst það koma úr hörðustu átt frá hv. 5. landsk. að bera mér á brýn hlutdrægni í þessum efnum, því ef ég hefi sýnt hér hlutdrægni, þá mundi hún helzt hafa verið honum í vil. Ég býst við, að hann geti, ef hann vill, fundið þau dæmi, þar sem ég hefi gert minni kröfur til hans en sumra annara í þessum efnum, og má þar til nefna þetta síðasta dæmi, sem er alveg óvenjulegt, að sá þm., sem óskar nafnakalls, greiðir ekki atkv. Það getur verið, að það sé þessi hlutdrægni, sem hv. 5. landsk. vill ásaka mig fyrir.

Hv. þm. Snæf. bar mér góða sögu og sagði, að ég hefði ekki beitt sig eða sína flokksmenn hlutdrægni, þó í andstöðuflokki séu, og hygg ég, að það sé betri málsvörn fyrir mig heldur en umsögn frá mínum samflokksmanni. Enda býst ég alls ekki við að spyrja hv. 5. landsk. að því, hvenær ég kref hv. þm. um ástæður og hvenær ekki. Ég skal taka það fram um hv. 2. landsk., að þó ég hafi oft átt erfiðara með þennan þm. heldur en flesta aðra, þá held ég nú, að hann hafi að gamni sínu margfaldað tölu úrskurðanna.