29.03.1933
Efri deild: 37. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 235 í C-deild Alþingistíðinda. (3623)

36. mál, útflutninsgjald af landbúnaðarafurðum

Forseti (GÓ):

Ég býst nú ekki við, að ég hafi síðasta orðið í þessum umr., en ég vil taka þetta fram: Ég hefi jafnan fylgt þeirri reglu að ganga ekki eftir því, að hv. þdm. greiddu atkv., þegar ég sé, að það hefir ekki áhrif á afdrif mála, en mér fannst ástæða til þess að gera þá aths., er ég gerði áðan við atkvgr. hv. 5. landsk., því það er ekki algengt, að sá, sem biður um nafnakall, greiði ekki atkv. (JakM: Hann hefir gert það áður). Ég man ekki eftir því, þó það geti verið, en ég kann illa við það og ég býst við, að fleiri muni líta svo á, að sá, sem óskar nafnakalls, eigi sjálfur að greiða atkv.