19.05.1933
Neðri deild: 78. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 241 í C-deild Alþingistíðinda. (3647)

36. mál, útflutninsgjald af landbúnaðarafurðum

Hannes Jónsson:

Ég hafði ekki skrifað niður hjá mér þau köpuryrði, sem féllu hjá einum dm. út af þessu frv., þegar það var til umr. hér um daginn. Sá þm. held ég að hafi verið hv. þm. G.-K., og var hann að tala um það, að þeir, sem stæðu með frv., væru að dingla rófunni framan í bændur landsins. Nú geri ég ráð fyrir því, að hann þykist hafa dinglað rófunni framan í sömu menn, með afskiptum sínum af norska samningnum, og segi ég honum það ekki neitt til lasts. En ef yfirleitt á að nota svona löguð ummæli um það, þegar gert er eitthvað hér á þingi til að reyna að greiða fram úr málum bænda, þá má nú segja, að gripið sé til ýmissa ráða til þess að veita þeim andstöðu á þingi. Þm. G.-K. hefir sjálfsagt ofreynt sig á þessu rófudingli viðkomandi norsku samningunum, því að honum er farið að fatast í því, sem kom fram í umr. um mál það, sem rætt var hér næst á undan. Þá tókst honum það svo ófimlega og máttleysislega, að sennilega mun hann hafa bilazt í liðnum. Vonandi verður þó rófan komin í gott lag, þegar hann þarf að fara að finna bændur, er líður að næstu kosningum. Ég held, að þessi sami þm. og ýmsir fleiri hafi ekki gert það neitt utan við sig að greiða atkv. með þeirri brtt. sem dró allmikið úr þeirri gagnsemi, sem bændur hefðu annars haft af kreppulánasjóðsfrv.

Það sýnist ekki ósanngjarnt, þegar svona er óvíst um sölu á þessari vöru, þó létt væri útflutningsgjaldi af henni, enda þótt það sé nú ekki mikið. Það er að vísu ekki stór upphæð, sem kemur á hvern bónda eða fjáreiganda, en samt verður heildarupphæðin töluverð. Í raun og veru er hér ekkert annað á ferð en viðurkenning á því, að hinir afskekktari bændur landsins eigi við örðug skilyrði að búa nú sem stendur. Ég skal líka fallast á það, að þær röksemdir, sem færðar hafa verið gegn þessu, eiga nokkurn rétt á sér, að bændur eigi að draga úr framleiðslunni. En á meðan það er að gerast, verður ríkið að hlaupa undir baggann.

Það hefir verið tekið fram, að bændur úti um land eigi mjög mismunandi aðstöðu um að njóta innlends markaðar fyrir vörur sínar, og hinir verði verr úti. Mér hefir virzt það koma fram, að þeim, sem hér á þingi eru úr þeim héruðum, sem hægast eiga með að nota innlenda markaðinn, sé einna ósárast um, þótt þetta útflutningsgjald af vörum bænda haldist, sem sízt er fórnfýsi í garð hinna, sem verri aðstöðu hafa. Og einmitt nú, þegar við erum að ganga frá máli, sem mjög getur létt undir með þeim bændum, sem nærri standa Reykjavíkurmarkaðinum, sem er sennilega bezti innlendi markaðurinn fyrir framleiðslu bænda, þá er það nokkuð harkalegt, að létta ekki undir með hinum, sem hafa mjög illa aðstöðu til markaðarins. Og ákaflega ómerkileg er sú ástæða fyrir þeirri synjun, að bændur muni ekki nokkurn skapaðan hlut um útflutningsgjaldið.

Þessi hv. d. hefir verið því samþykk að létta undir með öðrum greinum framleiðslunnar í landinu, t. d. að lækka mikið útflutningsgjald af fiskmjöli. Og þótt þar væri ekki heldur um mikla upphæð að ræða, sá þingið ekki ástæðu til að standa á móti óskum þessara útflytjenda. En í þessu máli er það aleina ástæðan, sem færð er fram á móti afnámi útflutningsgjaldsins, að um það muni bændur alls ekki neitt. Ekki standa bændur betur að vígi en þeir, sem framleiða fiskmjöl.

Við umr, var það fært fram sem ástæða fyrir hækkun á útflutningsgjaldi af hausum og beinum, að vinnsla þessarar útflutningsvöru væri framkvæmd fyrir erlent fé, og ekki bæri okkur skylda til að styðja þá atvinnugrein, en eigi að síður var þó gengið inn á að lækka útflutningsgjaldið, vegna hagsmuna þeirra, sem seldu hausana og beinin. En þegar við erum að tala um að létta eitthvað ósköp lítið kjör bænda, sem ekki geta notið hins innlenda markaðar, þá er talað um, að verið sé að dingla rófunni framan í þá og fremja eitthvert það glapræði, sem geti orðið til þessa og hins ófarnaðar fyrir land og þjóð. Hygg ég, að móti þessu máli sé staðið af einhverjum sérstökum ástæðum öðrum en þeim rökum, sem menn álíta, að gildi um það.

Það má ekki, að þessara manna áliti, verja fé til styrktar landbúnaðinum, sem er eitthvað verulegt. (Dómsmrh.: Það hefir ekki verið synjað um ríkisfé). Og það má heldur ekki nema burt þetta gjald, af því að það munar svo litlu. Hv. dm. verða að skilja það, að það er ekki verið að fara fram á framtíðarhjálp til bænda með kreppulánasjóðsfrv. Það í því, sem gat skoðazt þannig, var strikað út, og að því er mér skildist vegna þess, að það væri of dýrt fyrir ríkissjóð.