08.05.1933
Neðri deild: 68. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2309 í B-deild Alþingistíðinda. (3667)
173. mál, óréttmæta verslunarhætti
Vilmundur Jónsson:
Ég sé mig nauðbeygðan til að taka aftur til 3. umr. 1. brtt. mína á þskj. 545, því að hún fellur ekki vel inn í frv. eins og það verður með brtt. n. — 3. brtt. get ég alveg tekið aftur, með því að hún má heita samhlj. 9. brtt. n. á þskj. 583, en óska hinsvegar eftir því, að 2. brtt. mín komi til atkvæða.