10.05.1933
Neðri deild: 70. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2310 í B-deild Alþingistíðinda. (3670)

173. mál, óréttmæta verslunarhætti

Frsm. (Jóhann Jósefsson):

Mér virðist báðir liðir 1. brtt. hv. þm. Ísaf. á þskj. 606 vera til bóta. Þar er farið dálítið ýtarlegar út í þau ákvæði frv., sem miða í þá átt að koma í veg fyrir skrum og villandi umsagnir um vörur. En 2. brtt., um að fella 15. gr. frv. niður, get ég ekki verið samþykkur. Grein þessi ræðir um smásalaálagningu á vörur. Að ég tel misráðið að fella grein þessa niður, er vegna þess, að þegar framleiðandi vöru eða verksmiðja setur verð á framleiðslu sína, þá mun mega treysta því, að verðinu sé stillt svo í hóf, að það sé í hlutfalli við framleiðslukostnaðinn og tryggi seljanda hæfilega þóknun fyrir fyrirhöfn sína og áhættu. Samkv. þessari 15. gr. er bannað að selja vörur með lægra verði en 25% álagningu, nema um sé að ræða skyndisölu eða skemmdar vörur, sbr. 1. málsgr. 5. gr. frv. Ég held, að þetta geti ekki verið neitt hættulegt, því að hver sem tekur að sér að framleiða einhverjar vörur, sem seljast eiga í smásölu, hlýtur að hafa það fyrir augum, að stilla verðinu svo í hóf, að þær séu samkeppnisfærar við aðrar vörur, jafnt innlendar sem erlendar, og jafnframt að tryggja útsölumanni hæfilegan ágóða. Það gæti t. d. komið fyrir, er um væri að ræða vörur, sem almenningur vildi kaupa og allir vildu selja, að sú keppni hlypi í framboðið, að hagnaðurinn af að selja vöruna yrði svo lítill, að enginn vildi verzla með hana. Gæti þá svo farið, að framleiðslan tepptist. Ég tel því ekki rétt að fella þessa 15. gr. frv. niður, því að hún kæmi í veg fyrir, að slíkt gæti komið fyrir, og svo fremi sem álagningin fer ekki fram úr 25%, getur hún ekki talizt óhófleg.