19.05.1933
Neðri deild: 78. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 246 í C-deild Alþingistíðinda. (3672)

36. mál, útflutninsgjald af landbúnaðarafurðum

Lárus Helgason:

Þetta er ekki stórt frv., enda hefi ég ekki séð bjargráð í því. Þetta er hégómamál, sem segja má, að standi á sama um, hvorum megin hryggjar það liggur. Hv. 2. þm. Rang. sagði, að útflutningsgjaldið næmi 10-20 kr. á meðalbónda. En slíkri upphæð nær það ekki nema hjá stórbændum, því að fáir bændur munu leggja inn 100 dilka á hausti, hvað þá 200.

Ég legg svo litla áherzlu á þetta mál, að ég læt mig engu skipta, hvort það verður samþ. eða ekki. En hitt er réttmætt og mikilsvert, að finna ráð til þess, að bændur fái ekki minna en einhverja tiltekna upphæð fyrir kjöt sitt.

Hv. 2. þm. Rang. sagði, að það kæmi úr hörðustu átt frá mér, að leggjast gegn frv. Ég veit ekki, hvernig átt hefir að skilja þetta, nema að hann hafi átt við, að ég hafi unnið bændum í Skaftafellssýslu minna gagn en hann rangæskum bændum. Ég tek þessa slettu þó ekki alvarlega, vegna þess hve málið, sem fyrir liggur, er ómerkilegt, en læt mér nægja að vísa henni til föðurhúsanna.