15.03.1933
Efri deild: 25. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2317 í B-deild Alþingistíðinda. (3701)
93. mál, ábúðarlög
Frsm. (Jón Jónsson):
Landbn. flytur þetta frv. samkv. ósk hæstv. atvmrh., og hefir hann algerlega undirbúið það, samið grg. o. s. frv. Upphaflega er frv. komið frá mþn. í landbúnaðarmálum, sem starfaði fyrir nokkrum árum. Fyrst var það borið fram árið 1929, og síðan á hverju þingi. Ég ætla þá að minnast á þrjú aðalatriði frv., sem öll eru mjög þýðingarmikil fyrir bændastétt landsins. Það er þá fyrst, að með frv. er ábúendum tryggð lífstíðarábúð á jörðunum, nema sérstaklega standi á. Í öðru lagi eru ábúendum með frv. tryggð viðunanleg hús á jarðir sínar, og í þriðja lagi fá þeir samkv. frv. endurgreiddan kostnað við jarðabætur, sem þeir gera á ábýlisjörðum sínum. —Frv. tók miklum breyt. í hv. Nd. í fyrra, og yfirleitt til bóta. Og nú er það algerlega endurskoðað af hæstv. atvmrh. og nokkuð breytt frá hans hendi. Landbn. þessarar d. telur allar þær breyt. til bóta. Annars er hæstv. atvmrh. staddur hér í d., og vænti ég þess, að hann geri ýtarlegar grein fyrir frv.