12.04.1933
Efri deild: 49. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2321 í B-deild Alþingistíðinda. (3704)

93. mál, ábúðarlög

Frsm. (Jón Jónsson):

Það hafa þótt allmargir gallar á núgildandi ábúðarlöggjöf, sem betur hafa komið í ljós eftir því sem árin hafa liðið, en einkum munu það hafa verið þrír annmarkar, sem helzt hafa komið í ljós. Að ábúðin hefir iðulega verið til of skamms tíma. Leiguliðarnir hafa orðið að hrekjast frá einni jörðinni á aðra, og sjá allir, hve óhentugt það er og hvað það dregur mikið úr því, að jörðunum sé gert mikið til góða og spillir aðstöðu leiguliðans. Þá hefir landsdrottinn samkv. núgildandi 1. ekki verið skyldur að leggja til nema mjög takmörkuð jarðarhús. Af því hefir leitt, að leiguliðarnir hafa þurft að koma upp húsum, sem þeir hafa þurft að hafa til starfrækslu búsins á þessari og þessari jörðinni, og afleiðingin hefir orðið sú, að húsin hafa orðið af mjög skornum skammti og mjög ófullkomin og jafnvel heilsuspillandi. Loks hefir réttur leiguliðans gagnvart jarðabótum ekki verið tryggður eftir núgildandi 1.; þó að leiguliðinn hafi gert allmiklar jarðabætur, hefir hann ekki átt rétt til að fá nema litlar eða engar réttarbætur fyrir sín verk. Eins og allir sjá, hafa þetta verið stórkostlegir annmarkar, bæði fyrir leiguliðana sjálfa og líka gagnvart því, að jarðirnar væru sæmilega setnar og bættar. Þetta frv., sem hér liggur fyrir, á fyrst og fremst að ráða bót á þessum meginannmörkum á leiguliðalöggjöfinni, og ég verð að segja f. h. n., að hún lítur svo á, að það miði mjög mikið í þá átt.

Þetta frv. hefir legið fyrir flestum þingum síðan 1929 og var í fyrra loks afgr. frá Nd. eftir að hafa fengið þar mjög rækilega endurskoðun. Hafði verið unnið að þeirri endurskoðun að nokkru leyti af báðum landbn. þingsins, í undirnefnd, sem þær settu, og svo af Nd. sérstaklega, og með þeirri endurskoðun tók frv. stórmiklum endurbótum. Nú hefir núv. hæstv. atvmrh. tekið sig til og endurskoðað frv. af nýju mjög rækilega, og n. lítur svo á, að það hafi tekið geysimiklum endurbótum í hans höndum, bæði að því leyti, að frágangur sé töluvert betri, málið betra og ýmsu betur fyrir komið hvað formhliðina snertir, og líka þá efnislegu; sumpart að því leyti, að sanngjarnlegar sé tekið tillit til hagsmuna beggja aðila, leiguliðans og landsdrottins. Má benda á það, að mjög góður lögfræðingur leit svo á, að í raun og veru gerðu ákvæði 6. gr., eins og þau voru í fyrra, ábúðarl. lítils virði í framkvæmdinni. Hann leit svo á, að ákvæði 6. gr. giltu aðeins að því leyti, að ekki væri annað tekið fram. Í byggingarbréfinu væri opin leið fyrir landsdrottin að ákveða um flest hin stærri atriði, og þetta gerði ábúðarl. svo og svo lítils virði. Þetta hefir verið leiðrétt og ýms fleiri ákvæði, sem líka hafa verið sett leiguliðunum til bóta. M. a. er gert ráð fyrir, að ef húsabætur eru gerðar á kostnað landsdrottins, geti landsdrottinn ekki ákveðið að hækka landskuldina ótakmarkað, heldur er hann bundinn við að fara ekki hærra en sem nemi búnaðarbankavöxtum af kostnaðarverði. Loks má benda á það, sem helzt kann að orka tvímælis í þessu tilliti, að nokkuð er dregið úr skyldu landsdrottins um húsabyggingar. Þannig er gert ráð fyrir því í 11. gr. frv., að landsdrottinn þurfi ekki að leggja fram meira af jarðarhúsum en sem nemi 2/3 landverðs jarðarinnar, hvorttveggja miðað við fasteignamat.

Loks er gert ráð fyrir, að ef landsdrottinn sér sér ekki fært að inna af hendi þær skyldur, sem leiguliði leggur honum á herðar, þá sé honum vitalaust að bjóða leiguliða jörðina til kaups við því verði, sem úttektarmenn meta, og játa hann hafa greiðslufrest, sem nánar er tiltekinn í lögunum. Því er ekki að neita, að margir líta svo á, að með frv. eins og það upphaflega var sé réttur landeiganda ærið harkalega sterkur. En á þessu var ráðin talsverð bót, bæði á þinginu í fyrra og eins af hæstv. atvmrh., og þó er það svo, að réttur leiguliða í því, sem máli skiptir, er lítið skertur frá því, sem áður var. Landbn. hefir kynnt sér þetta frv. rækilega, og hefir hún komizt að þeirri niðurstöðu, að þetta sé mikil umbót frá þeirri löggjöf, sem er, og mun hún heita sér fyrir, að þetta mál nái fram að ganga á þessu þingi. En þrátt fyrir það hefir n. leyft sér að bera fram nokkrar brtt. Skal ég svo fara nokkrum orðum um hverja einstaka út af fyrir sig.

Fyrst er brtt. við 2. gr. frv. Þar er svo gert ráð fyrir, að landeigandi þurfi að fá samþykki trúnaðarmanns Búnaðarfél. Ísl. til þess að skipta jörð sinni, og úttektarmanna um það, hvernig skiptingunni skuli fyrir komið. N. leit svo á, að þetta væri óþarflega umfangsmikið og hugsaði, að það mundi duga að fá samþ. úttektarmanna. — Þá þótti n. skýrara að taka fram í 9. gr., þar sem gert er ráð fyrir, að landsdrottni sé heimilt að taka jörð úr lífstíðarábúð handa sjálfum sér eða vandamönnum, að á eftir orðunum „að taka jörð“ í 2. málsgr. komi: eða jarðarpart. Því að það kemur oft fyrir, að það eru fleiri en einn, sem eiga jörðina.

Þá er 3. brtt., við 11. gr. Eins og ég tók fram, þá eru það 11. og 12. gr., sem ræða um skyldur landsdrottins til húsagerðar, sem helzt orka tvímælis og draga úr þeim rétti, sem leiguliði hafði eftir frv. eins og það var upphaflega. En n. leit svo á, að þessu væri í hóf stillt. Við 2. málsgr. 11. gr. frv., sem fjallar um skyldu landsdrottins um að láta jörðinni fylgja nauðsynleg hús, vill n. bæta því við, að þessi hús skuli vera í nothæfu lagi. Það má að vísu segja, að þetta felist í greininni, en n. þótti réttara að láta þetta koma skýrar fram.

Þá er aðalbreyt., sem n. hefir gert við 12. gr. Þar er svo ákveðið, að í vissum tilfellum eigi leiguliði að leggja til innlent efni, aðdrætti og gröft, ef landsdrottinn vill ekki auka jarðarhúsin. N. fannst þetta ósanngjarnt, að landsdrottinn ætti að njóta hlunninda fyrir það eitt að vanrækja að gera skyldu sína, en viðurkenndi það með hæstv. atvmrh., að það mundi verða fjárhagslega og þjóðhagslega réttara að leggja leiguliða á hendur nokkrar skyldur um þessa hluti. Þetta verður leiguliða ódýrara heldur en landsdrottni, sem venjulega er í fjarlægð, og þess vegna er leiguliða lögð þessi kvöð á herðar um húsagerðina almennt. En jafnframt leggur n. til, að honum sé tryggður nokkur réttur til endurgreiðslu, ef hann færi frá jörðinni fljótlega og nyti þessara umbóta ekki nema skamma stund. N. var í nokkrum vafa um það, hvað þessi kvöð ætti að ná langt, en henni fannst sanngjarnt, að ef ekki þyrfti að sækja innlent efni lengra en þetta, þá væri heppilegra, að leiguliði annaðist það. Sama er að segja um flutning á útlenda efninu. Oft getur það átt sér stað, að vagnfær vegur sé heim undir bæinn, en ekki alla leið heim. Þá er þeim, sem þar býr, hægara að flytja efnið þann spöl heldur en þeim, sem er í fjarlægð. En til þess að gera leiguliða ekki of erfitt fyrir, þá leggur n. til, að ef hann flytur af jörðinni innan 6 ára, þá á hann að fá nokkurn hluta af framlagi sínu endurgreitt eftir mati úttektarmanna. Þetta er ein höfuðbreyt. n. og telur hún hana mjög nauðsynlega.

Loks er brtt. við 14. gr. Þar er talað um leiguliðabót, sem leiguliði verður að svara af húsum landsdrottins. N. fannst það ekki sanngjarnt að miða hana við allt kostnaðarverðið, heldur skyldi hún miðuð við kostnaðarverðið að frádregnu framlagi leiguliða.

Þá er 6. brtt., við 15. gr. Þar er svo ákveðið í síðari málsl. fyrri málsgr., að atvmrh. skuli setja reglur um viðhald húsa á leigujörðum, að fengnum till. búnaðarbankastjórnar og Búnaðarfél. Ísl. A. m. k. nokkur hluti n. leit svo á, að ekki væri bein ástæða til þess að blanda búnaðarbankastjórunum inn í þetta, heldur væri nóg að fá álit Búnaðarfél. Ísl. um þetta, og leggur því til, að orðið „búnaðarbankastjórnar“ falli burt, en leggur þó ekki mikið kapp á þetta, því að nokkuð mun mæla með þessu, þar sem sjóðir þeir, sem ávaxta fé sitt í slíkum mannvirkjum, heyra undir búnaðarbankann.

7. brtt. er aðeins um það, að aftan við fyrirsögn 3. kafla komi: „og leiguliða“. Það er réttara, því sá kafli fjallar bæði um skyldur landsdrottins og leiguliða.

Svo kemur 8. brtt., við 23. gr., um það, að orðið „hrognkelsaveiði“ falli burt. N. fannst það ástæðulaust að meina fráfaranda að nota sér hrognkelsaveiði, ef hún er einhver, og leggur því til, að orðið „hrognkelsaveiði“ falli burt.

Þá er 9. brtt., við 25. gr. 1. málsgr. Þar er gert ráð fyrir, að jörðinni fylgi öll hlunnindi, sem þar eru talin upp, nema sérstakur samningur sé um annað og Búnaðarfél. Ísl. samþ. En þetta stríðir á móti laxveiðalögunum, því að þar er gert ráð fyrir, að laxveiðina megi undanskilja, ef veiðistjóri mæli með og atvmrh. samþ. Þess vegna bætti n. við: nema lög mæli öðruvísi fyrir.

Þá kemur 10. og 11. brtt., sem ræða báðar um það sama, við 30. og 32. gr. Þar er ákveðið, að útbyggingin skuli vera bréfleg og við votta. En eins og nú er högum háttað, þá hagar öðruvísi til nú en 1880, þegar lögin voru samin. Þá var nær eingöngu byggt út við votta, en nú getur útbyggingin verið jafntrygg bréflega eða með símskeyti, ef útbyggingin er skýrt tekin fram í bréfinu eða símskeytinu og hægt er að sanna, að það hafi verið gert. Svo að n. leggur til, að „bréflega og við votta“ falli niður, og niðurlag 32. gr. verði : „þannig að sannað verði“.

Þá er, samkv. brtt., sem n. leggur til, að gerð verði við 12. gr., um skyldur leiguliða almennt til þess að annast heimflutning á efni til bygginga, það álit n., að rétt sé að fella niður 35. gr., sem ákveður um skyldur leiguliða í einstökum tilfellum, þegar hús verða fyrir skemmdum af völdum náttúrunnar. Ef brtt. við 12. gr. verða samþ., þá er þessi gr. þýðingarlaus, því að í henni eru að mestu sömu ákvæðin og þar eru tekin fram. Leggur n. því til, að hún verði felld niður. Þá er um leið fyrirsögn 5 kafla fallin niður og 36. gr. færist aftur fyrir fyrirsögn 6. kafla. Í þessu sambandi skiptir það aðallega máli, að n. lítur svo á, að 35. gr. eigi að falla niður.

Svo er 15. brtt., við 43. gr. Er það aðeins orðabreyt. eða leiðr. vegna málsins. Loks er 16. brtt., við 55. gr. Í upphafi 55. gr. skal skýrt tekið fram, að lögin gangi í gildi 1. jan. næsta ár, en ákvæðin koma til framkvæmda eftir því, sem nánar er til tekið í lögunum.

Þó að brtt. séu 16 talsins, eru þær allar frekar smávægilegar, nema helzt brtt. við 12. gr. Væntir n. því, að hæstv. d. geti fallizt á flestar þessar brtt., og leggur svo eindregið til, að frv. verði samþ. með þessum breyt.